Fyllist stolti við að líta til fyrri fjallkvenna Ebba Katrín Finnsdóttir, fjallkona ársins 2024 í Reykjavík, kveðst full af stolti og þakklæti eftir daginn. Ávarp hennar var samið af Bergi Ebba Benediktssyni, rithöfundi og uppistandara. Ebba segir ávarpið ádeilu á hraða samfélagsins og vanrækslu náttúrunnar. 17.6.2024 18:34
Kringlan lokuð til fimmtudags Hreinsunarstarf í Kringlunni gengur vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reitum og verslunarmiðstöðinni. Stefnt er að því að opna að nýju á fimmtudag. 17.6.2024 18:07
Arnar Þór selur Arnarneshöllina Arnar Þór Jónsson fyrrverandi forsetaframbjóðandi og héraðsdómari hefur sett 400 fermetra einbýli á Arnarnesi á sölu. „Eitt fallegasta einbýlishús landsins“, segir í lýsingu fasteignasalans. 14.6.2024 23:45
Of snemmt að kenna bikblæðingum um Vegagerðin varaði við bikblæðingum á veginum um Öxnadalsheiði í dag. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að ekki megi gefa sér þær forsendur að blæðingarnar hafi valdið slysinu. 14.6.2024 22:59
Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Átök hafa staðið yfir á Alþingi í aðdraganda þingloka fyrir sumarfrí. Vantrauststillaga á hendur matvælaráðherra og „slátrun“ samgönguáætlunar er á meðal þess sem þingmenn takast á um á lokametrunum. 14.6.2024 22:09
Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Dómsmálaráðherra vill svipta þá flóttamenn sem „brjóta alvarlega af sér“ dvalarleyfum. Nýsamþykkt frumvarp segir hún stærstu breytingar á útlendingalögum til þessa. 14.6.2024 20:39
Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Hópslysaáætlun Almannavarna hefur verið virkjuð vegna rútuslyss sem varð í Öxnadal. Sömuleiðis hafa tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og tvær flugvélar verið kallaðar út til sjúkraflugs. Lögreglan segir slysið alvarlegt. Rútan hafi oltið og fjöldi farþega sé slasaður. 14.6.2024 17:19
Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Lengi lifir í gömlum glæðum. Slúðurmiðlar höfðu greint frá sambandsslitum þeirra Bad Bunny og Kendall Jenner en þau sáust á rómantísku stefnumóti í Púertó Ríkó, heimalandi Bad Bunny, fyrr í vikunni. 13.6.2024 22:43
Sérsveitin kölluð til vegna byssu sem reyndist leikfang Þrír sérsveitarbílar voru kallaðir til á Snorrabraut vegna tilkynningar um mann sem veifaði byssu. Byssan reyndist leikfang. 13.6.2024 21:38
Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Eigandi Gríska hússins, Zakaria Handawi, segist ávallt hafa starfað innan laganna ramma. Hann er sjálfur staddur erlendis og botnar ekkert í aðgerðum lögreglu. 13.6.2024 21:01