Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Til skoðunar er að veita læknum sem starfa á landsbyggðinni ívilnanir á borð við að fella niður hluta af námslánum þeirra og jafnvel ráðast í skattaívilnanir. Heilbrigðisráðherra segir læknaskort í Rangárvallasýslu óásættanlegan og að forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar sé að bæta úr. Íbúar upplifa öryggisleysi. 6.1.2025 21:30
Vigdís á allra vörum og nýtt námskeið kynnt til sögunnar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var langt á undan sinni samtíð með áherslu sinni á íslenska tungu og á náttúruna í forsetatíð. Þetta segir ævisöguritari Vigdísar sem hefur í tilefni af nýjum þáttum um Vigdísi, útbúið námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands um upphaf, mótun og áhrif hennar. 6.1.2025 12:02
Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Hinar árlegu janúarútsölur hefjast formlega í dag, en nokkrar verslanir tóku þó forskot á sæluna milli jóla og nýárs. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að neytendur ættu að geta gert góð kaup, sérstaklega með kaupum á árstíðabundnum vörum. 2.1.2025 13:10
Snjórinn léttur og laus í sér og fer auðveldlega af stað Snæviþakin jörð blasti við íbúum á höfuðborgarsvæðinu þegar þeir héldu út í daginn í morgun. Talsverður lausasnjór er nú á Vesturlandi og með deginum tekur að blása úr norðaustri og því er útlit fyrir að ansi blint verði á vestan til. 30.12.2024 12:50
„Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Í nýrri Grænbók heilbrigðisráðuneytisins um ADHD kemur fram að lyfjameðferð sé beitt í of ríkum mæli og að skýra þurfi betur viðmið fyrir lyfjagjöf til að tryggja að lyf séu aðeins notuð þegar þau eru nauðsynleg. Formaður ADHD samtakanna segir að nokkrar tillögur vinnuhópsins muni valda mikilli ólgu meðal fólks á biðlista eftir greiningu. 28.12.2024 19:21
Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark ef marka má gesti Kringlunnar sem fréttastofa náði tali af. Flestir sem voru mættir til að skipta gjöfum þurfu að skipta yfir í rétta stærð en aðrir skiptu bókum sem þeir fengu tvö, eða jafnvel þrjú eintök af. 27.12.2024 22:26
Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna vill benda neytendum á að þeir eigi mun ríkari og rýmri skilarétt ef vörurnar sem þeir vilja skila hafa verið keyptar á netinu fremur en í hefðbundnum verslunum. Neytandi á að geta skilað vöru sem keypt er á netinu fjórtán dögum eftir að hann fær hana í hendur. 27.12.2024 12:15
Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Uppi voru kenningar hér áður fyrr um að ævilöng vesælmennska biði þeirra barna sem ólust upp á „mölinni,“ eins og það var kallað, sem jafnvel legðist í ættir. Krakkaskarinn sem tók yfir götur Reykjavíkur á síðustu öld setti sterkan svip á borgina. Sagnfræðingur sem hefur ritað sögu reykvískra barna, sem spannar hundrað ár, segir börn dagsins í dag lifa mikla umbreytingartíma. 25.12.2024 22:10
Telur að niðurskurður muni ýta þeim sem eftir eru út í veikindi Formaður félags fangavarða segir niðurskurðaraðgerðir í fangelsismálum muni verða til þess að ýta þeim sem eftir eru í starfi út í veikindi eða önnur störf. Fangaverðir séu uggandi, sárir og reiðir. 19.12.2024 12:36
Víðtækar vöruhækkanir eftir áramót Samtök verslunar og þjónustu búast við talsverðum verðhækkunum um áramótin. Íslenskt grænmeti gæti til að mynda hækkað um allt að tólf prósent og þá er von á því að kjöt, mjólkurvörur, kaffi og súkkulaði hækki einnig. 14.12.2024 22:10