Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. 23.9.2024 21:45
Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Síldarleit frá Miklavatni í Fljótum lagði grunninn að Loftleiðaævintýrinu. Þrír ungir menn höfðu eftir flugnám í Kanada flutt einshreyfils flugvél heim með sér til Íslands í von um samstarf við Flugfélag Íslands. Þegar sú von brást stofnuðu þeir Loftleiðir árið 1944 og hófu eigin flugrekstur. 22.9.2024 07:17
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18.9.2024 19:44
Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Ný raforkuspá Landsnets gerir ráð fyrir viðvarandi orkuskorti í landinu næstu fimm árin og að raforkuskerðingar verði áfram við lýði fram eftir þessum áratug. 17.9.2024 20:40
Samstarfið við Braathen bjó til Loftleiðaævintýrið Samstarf Loftleiðamanna við flugfélag norska skipakóngsins Ludvigs Braathen var í raun byrjunin á Loftleiðaævintýrinu, að mati barna Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða. Þetta kom fram í þættinum Flugþjóðin. 16.9.2024 21:21
Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15.9.2024 07:27
Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. 12.9.2024 22:40
Útboðsstopp staðið í heilt ár meðan vegirnir grotna niður Uppsagnir eru hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Ekkert stórt verk hefur verið boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár. 12.9.2024 20:10
Skrúfuþoturnar sem byltu millilandaflugi Íslendinga Kaup Flugfélags Íslands á tveimur Vickers Viscount-skrúfuþotum árið 1957 byltu millilandaflugi Íslendinga. Þær voru fyrstu íslensku flugvélarnar með jafnþrýstibúnaði og gátu flogið mun hærra og hraðar en áður þekktist. 11.9.2024 12:20
Myndband af Airbus-þotu Icelandair koma úr málun Fyrsta Airbus-þotan, sem Icelandair mun taka við, kom út af málningarverkstæði Airbus í Hamborg í gærkvöldi. Þotan er af gerðinni Airbus A321 LR og fær skráningarstafina TF-IAA. 10.9.2024 20:55