Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. 9.7.2022 08:25
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8.7.2022 22:33
Strandveiðisjómenn með 300 þúsund krónur á dag fá meiri kvóta frá Svandísi Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, úthlutaði strandveiðisjómönnum 430 milljóna króna verðmætum í dag með því að auka þorskkvóta sumarsins um nærri ellefu hundruð tonn. Viðbótin dugar þó vart nema til að framlengja strandveiðarnar út þennan mánuð. 7.7.2022 21:44
Rannsaka hverastrýtur í Eyjafirði til að öðlast skilning á upphafi lífs Alþjóðlegur hópur vísindamanna, kostaður af geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, rannsakar nú hverastrýturnar í Eyjafirði í því skyni að kanna hvort líf hafi getað þróast á Mars og til undirbúnings frekari könnunarleiðöngrum til reikistjörnunnar. Jafnframt er vonast til að strýturnar gefi svör um líkur á lífi á öðrum hnöttum í sólkerfinu. 5.7.2022 23:31
Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. 5.7.2022 14:41
Þjálfun flugmanna að hefjast á fyrstu rafmagnsflugvél Íslands Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands er komin með flughæfisskírteini og hefst þjálfun flugmanna á næstu dögum. Flugvélin var dregin út úr flugskýli á Reykjavíkurflugvelli síðdegis en stefnt er að því að æfinga- og reynsluflug verði frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. 4.7.2022 22:42
Fjórtán hvalir komnir á land í Hvalfirði og fjórir við skipshlið Fjórtán langreyðar hafa verið dregnar á land til vinnslu í hvalstöðinni í Hvalfirði á þeim tólf dögum sem liðnir er frá því hvalbátarnir tveir héldu til veiða. Auk þeirra eru fjórar langreyðar til viðbótar veiddar, komnar að skipshlið, og á leið til lands. 4.7.2022 11:48
Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. 2.7.2022 07:07
Þotuflugið virðist lítið hafa mildað martröð flugfarþega Stór farþegaþota af gerðinni Boeing 757 lenti síðdegis á Reykjavíkurflugvelli er hún var fengin til að reyna að bjarga málum í innanlandsflugi Icelandair eftir að tvær vélar úr innanlandsflota félagsins biluðu. Innanlandsflug félagsins gekk engu að síður meira og minna úr skorðum í dag. 30.6.2022 22:33
Ná þrjátíu megavöttum með betri nýtingu á varma Reykjanesvirkjunar Mestu virkjanaframkvæmdir landsins um þessar mundir standa yfir á Reykjanesi en þar er verið að stækka jarðgufuvirkjun HS Orku um þrjátíu megavött. Ekki þarf þó að borar nýjar holur á svæðinu til orkuöflunar heldur er ætlunin að nýta betur þann jarðvarma sem þegar er til staðar. 29.6.2022 22:22