„Það er allt búið að vera á floti hérna“ Gífurleg úrkoma hefur verið víða um vestanvert landið síðustu daga. Í Grundarfirði er úrkoman „algerlega fáheyrð“ þar sem úrkoma mældist 227,1 mm frá kl 9 í gær til 9 í dag. Víða hefur flætt yfir tún og vegi. Bóndi í Dölum segir „fína og snyrtilega lindará“ við bæ hennar nú líta út eins og heljarinnar jökulsá. Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar hefur áhyggjur af ástandi vega og álagi á fráveitukerfinu. 14.7.2024 17:50
Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins Erlendir miðlar greina frá því að sprengjur hafi fundist í bíl Thomasar Crooks, sem og á heimili hans. Bíllinn fannst nálægt svæðinu þar sem kosningafundurinn fór fram í gær. 14.7.2024 16:56
„Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ „Ég hugsa nú til ykkar, mínir kæru Bandaríkjamenn. Við höfum alltaf verið sérstakt bandalag. Núna hriktir í grunnstoðum landsins okkar, en hugrekkið og skynsemin verða að rísa og sameina okkur á ný.“ Þetta eru upphafsorð yfirlýsingar sem Melania Trump gaf frá sér í dag, í kjölfar skotárásarinnar á eiginmann hennar Donald Trump. Þar sagði hún að mikilvægt væri að sýna fólki virðingu og að ástin væri ofar öllu. 14.7.2024 16:36
Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna slasaðrar hjólreiðakonu í Þórsmörk. Konan reyndist með opið ökklabrot. 14.7.2024 15:19
Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Umferðarslys varð við Geldingaá á Vesturlandsvegi og búast má við umferðartöf. 14.7.2024 15:06
Leysingar hugsanleg orsök E.coli bakteríu E.coli baktería greindist í einu sýni Heilbrigðiseftirlitsins á neysluvatni sem tekið var í íbúðarhúsi á Siglufirði í gær. Í kjölfarið voru fjögur sýni tekin til viðbótar, og er niðurstaðna að vænta úr þeim á morgun. Heilbrigðisfulltrúi segir að erfitt sé að vera með vangaveltur þegar maður hefur ekki heildarmyndina fyrir framan sig. Íbúar eru hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu. 14.7.2024 12:46
Leituðu að manni í sjónum í nótt Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um eittleytið í nótt, um að hugsanlega hefði maður farið í sjóinn við Granda í Reykjavík. Leitin stóð langt frameftir nóttu, en bar ekki árangur. Kafarar, bátar og þyrla Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni. 14.7.2024 09:53
Myndband af glannalegum framúrakstri á Seltjarnarnesi Litlu mátti muna að ökumaður jeppa hefði ekið á hjólreiðamann, þegar hann brunaði fram úr öðrum bíl á götu á Seltjarnarnesi þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. 13.7.2024 19:01
Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Nýtt hótel sem nefnist Hótel Jökulsárlón, eða Glacier Lagoon Hotel á ensku, er risið á Reynivöllum við Jökulsárlón í Suðursveit í Hornafirði. Skúli Gunnar Sigfússon, sem oft er kenndur við Subway, er eigandi. 13.7.2024 17:29
Segir fáránlegt að enginn axli ábyrgð á banaslysinu Hópur mótorhjólamanna hefur efnt til mótmæla næstkomandi mánudag til að mótmæla því að enginn ætli að bera ábyrgð á mistökum við vegagerð, sem leiddu til banaslyss tveggja mótorhjólamanna á Kjalarnesi fyrir fjórum árum. Hópurinn ætlar að hittast á Korputorgi klukkan 19, aka saman upp á Kjalarnes, og stöðva þar hjólin á báðum akreinum í stutta stund í mótmælaskyni. Skipuleggjandi segir fáránlegt að enginn taki ábyrgð. 13.7.2024 16:48