Sonur Kalla Bjarna fetaði í fótspor föður síns: „Þau sögðu að þetta væru örlög mín“ Þriðji þátturinn af Idol á Stöð fór í loftið í gærkvöldi og er áfram fylgst með áheyrnarprufum. Meðal þátttakenda í gær var hinn sautján ára Jón Emil en hann er sonur Kalla Bjarna, sem vann keppnina árið 2004. Birgitta Haukdal sagðist skotin í Jóni, líkt og Páll Óskar sagði um Kalla Bjarna á sínum tíma. 10.12.2022 21:00
Ekki verið rætt af alvöru að svipta Megas heiðurslaunum í ár Heiðurslaunum listamanna verður úthlutað í ár þrátt fyrir að kerfið hafi verið gagnrýnt harðlega undanfarið. Í fyrsta sinn hefur verið óskað eftir tilnefningum frá almenningi. Margir gagnrýndu að tónlistarmaðurinn Megas væri enn á listanum, þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fjarlægja neinn af listanum í ár að sögn formanns allsherjar- og menntamálanefndar. 10.12.2022 16:15
Gangandi vegfarandi lést eftir að ekið var á hann Banaslys varð á Höfðabakka í Reykjavík í nótt en þar var ekið á gangandi vegfaranda. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. 10.12.2022 15:14
Íslenskt jólasveinapöbbarölt að bandarískri fyrirmynd: „Þetta er ein af þessum helgum sem þú gleymir aldrei“ Fullorðnir jólaáhugamenn landsins safnast saman næsta laugardag þegar svokallað jólapöbbarölt fer fram í miðbæ Reykjavíkur. Á pöbbaröltinu, eða SantaCon eins og það er iðulega kallað í Bandaríkjunum, er fólk hvatt til að mæta klætt sem jólasveinn. Þar sem Íslendingar státa þrettán mismunandi jólasveinum þá á skipuleggjandi viðburðarins von á mikilli stemningu. 10.12.2022 14:00
Ók á vegfarenda, hjólreiðamann og hund og fær fjögurra mánaða dóm Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli karlmanns sem ók í veg fyrir annan bíl og í kjölfarið á gangandi vegfarenda, hjólreiðamann og hund hans. Landsréttur sýknaði manninn af ákæru um að hafa verið óhæfur til að stjórna bílnum vegna áhrifa slævandi lyfja og sagði almannahættu ekki hafa stafað af. 9.12.2022 19:35
Fordómar gagnvart fólki með geðræn vandamál áfram talsverðir og útbreiddir Talsverðir fordómar eru hér á landi í garð einstaklinga með geðrænar áskoranir samkvæmt nýrri rannsókn. Dregið hefur úr fordómum gagnvart fólki með einkenni þunglyndis en fordómar gagnvart fólki með geðklofaeinkenni breytast hægar og síður. Stór hluti almennings virðist tilbúin til að neyða fólk til að leita sér meðferðar. 8.12.2022 19:00
Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn þremur unglingsstúlkum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt átján ára mann í fangelsi fyrir ítrekuð og alvarleg kynferðisbrot gegn þremur barnungum stúlkum. Var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn vegna mikilla tafa á meðferð og ungs aldurs. Hann játaði brot sín skýlaust í dómssal. 8.12.2022 16:00
Þrettán hlutu varanlegt heilsutjón vegna flugeldaslysa á rúmum áratug Tuttugu og einn einstaklingur þarf að meðaltali að leita á bráðamóttöku á hverju ári vegna flugeldaslysa og er þar af að meðaltali eitt barn á leikskólaaldri. Rannsakendur segja vert að íhuga að setja frekari skorður við innflutningi, sölu og notkun flugelda auk þess sem efla þurfi forvarnarstarf en slys vegna flugeldanotkunar séu umtalsvert vandamál hér á landi. 8.12.2022 14:37
Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í hryðjuverkamálinu Héraðsaksóknari mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rennur út á morgun en þeir hafa verið í varðhaldi í ellefu vikur og rennur ákærufrestur út í næstu viku. 8.12.2022 14:22
Ekkert samráð fyrir lokun Vinjar: „Ómögulegt að það sé staðið að þessu með þessum hætti“ Geðhjálp lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að loka Vin. Formaður Geðhjálpar segir ekkert samráð hafa átt sér stað fyrir ákvörðunina, líkt og skilja mátti á tillögu meirihlutans. Honum virðist tillögurnar hafa verið unnar með hraði og án samráðs en nauðsynlegt sé að tryggja þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp. 8.12.2022 13:30