Segir ákæruna tilraun til að réttlæta frumhlaup lögreglunnar Lögmaður annars þeirra sem hefur verið ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka segir ákæruvaldið leggja líf tveggja ungra manna í rúst til að réttlæta frumhlaup lögreglunnar. Þetta er í fyrsta sinn í Íslandssögunni sem ákært er fyrir hryðjuverkabrot. 9.12.2022 20:23
Stjórnvöld skapa rammann og nauðsynlegt að sýna þeim þrýsting Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld bera ábyrgð á því að setja umgjörð utan um íbúðamarkaðinn. Hún vísar því á bug að stjórnvöld hafi gert það sem þau geti til þess að sporna við hækkunum. 8.12.2022 23:18
Harmar að loka eigi starfsemi sem sé lífsbjörg fyrir brothætt börn Áform um að loka ungmennasmiðju Reykjavíkurborgar í núverandi mynd hefur gríðarleg áhrif á viðkvæman hóp barna sem mega síst við hagræðingu á þeirra kostnað. Þetta segir forstöðumaður smiðjunnar. Hún vill að áformin verði endurskoðuð enda sé ungmennasmiðjan lífsbjörg fyrir börn í viðkvæmri stöðu. 8.12.2022 14:01
Hringavitleysan í leikskólum borgarinnar Leikskólapláss fyrir tólf mánaða gömul börn í Reykjavík. Falleg hugmynd sem gekk ekki upp á árinu sem er að líða. 6.12.2022 07:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það er ótrúlegt að menn ætli að reyna að nota þegar umsamin atriði til að láta nýjan kjarasamning Starfsgreinasambandsins líta betur út að sögn formanns Eflingar, sem segir samninginn alls ekki niðurstöðu sem Efling geti sætt sig við. Efling muni beita þeim vopnum sem félagið býr yfir til að knýja fram góða samninga fyrir sitt fólk. Við fjöllum um málið og ræðum við forseta ASÍ í beinni útsendingu. 4.12.2022 18:03
Hádegisfréttir Bylgjunnar Nýr kjarasamningur Starfsgreinasambandsins veldur Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar vonbrigðum. Hún segir launahækkanirnar þar ekki geta talist ásættanlegar fyrir Eflingarfólk að nokkru leyti og að þær verði ekki fordæmisgefandi fyrir kröfur Eflingar í komandi viðræðum við Samtök atvinnulífsins. 4.12.2022 11:38
Segir báða aðila hafa gert verulegar málamiðlanir Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ljóst að kjarasamningarnir sem undirritaðir voru í dag séu stefnumarkandi í eðli sínu. Hann segir báða aðila hafa gert verulegar málamiðlanir við samkomulagið og að viðræðurnar hafi verið flóknar og erfiðar. Hann telur þó báða aðila geta vel við unað. 3.12.2022 23:08
„Fagnaðarefni að Starfsgreinasambandið hafi brotið ísinn með þessum hætti“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld eiga í samræðum varðandi það hvað þau geti lagt af mörkum í kjaraviðræðum. Hún segist vonast til þess að fleiri félög fylgi í kjölfarið nú þegar ísinn hefur verið brotinn. 3.12.2022 19:41
Hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning Nú leggur vöffluangan um húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni, því þar var verið að skrifa undir kjarasamninga Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins. 3.12.2022 16:39
Um þrjátíu heilbrigðisstarfsmenn kallaðir á vakt vegna slyssins Um þrjátíu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða voru kallaðir til vegna slyssins sem varð á Hnífsdalsvegi í gærkvöldi. Tildrög slyssins eru til rannsóknar. Töluverð hálka var á veginum í gær og þrjú flutt með flugi til Reykjavíkur. Yfirlögregluþjónn segir þau alvarlega slösuð. 3.12.2022 10:43