Skjálfti í Bárðarbungu og áfram landris við Svartsengi Jarðskjálfti að stærð 3,5 mældist í Bárðarbunguöskjunni klukkan 21:43 í gærkvöldi. Veðurstofa Íslands greinir frá þessu og tiltekur náttúrúvársérfræðingur að skjálftar að þessari stærð eigi sér stað í Bárðarbungu öðru hverju. Bárðarbungukerfið er lengsta eldstöðvakerfi landsins og annað virkasta. 17.2.2024 07:19
Mygla í Blóðbankanum hafi ekki áhrif á starfsemi bankans Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt. 19.1.2024 18:37
Áramótum fagnað víða um land: Brenna á Eyrarbakka en engin í Kópavogi Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti ár en þó ekki í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem engar brennur verða. Íbúar segja margir hverjir þetta svekkjandi. Í kvöld verða áramótabrennur tendraðar á tíu stöðum í Reykjavík. Tvær í Garðabæ, ein á Seltjarnarnesi og ein í Mosfellsbæ. Í Kópavogi og Hafnarfirði verða hins vegar engar brennur. 31.12.2023 14:25
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. 31.12.2023 12:12
Fannar bæjarstjóri maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík er maður ársins 2023 mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu. 31.12.2023 11:31
Margir eiga í miklum erfiðleikum með að halda jól Tæpur þriðjungur landsmanna segir krefjandi fyrir sig fjárhagslega að halda jól og tæp tíu prósent eiga í miklum erfiðleikum með hátíðarhöldin. Sjötíu prósent segja jólahaldið þó engin áhrif hafa á skuldastöðu sína. 31.12.2023 10:11
Gul viðvörun og misjafnt árámótaveður eftir landshlutum Í dag verður norðaustanátt á landinu, víðast hvar fimm til þrettán metrar á sekúndu, en að átján metrar á sekúndu suðaustanlands. Skýjað með köflum en dálítil él norðaustan- og austantil. Frost eitt til ellefu stig. 31.12.2023 08:10
Með innkaupakerru á miðri akbraut og sagðist taka styðstu leið Tilkynnt var um mann með innkaupakerru á miðri akbraut en þegar lögregla ræddi við hann kvaðst hann vera að taka stystu leið á áfangastað og að göngustígar væru ófærir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn sagðist jafnframt ætla að koma sér af akbrautinni. 31.12.2023 07:54
Hæfðu flóttamannabúðir á Gasa þar sem mannfall nálgast 22 þúsund Herflugvélar á vegum Ísraelshers hæfðu tvær flóttamannabúðir á miðri Gasaströndinni í dag og er lítið útlit fyrir að nokkurt hlé verði gert á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs. Mannfall þar er nú sagt nálgast 22 þúsund manns. Hátt settur ráðamaður innan Hamas segir samtökin enn standa fast á því að fleiri gíslum verði ekki sleppt úr haldi þeirra fyrr en komið verði á ótímabundnu vopnahléi á svæðinu. 30.12.2023 15:24
Áfram heimilt að dvelja í bænum þó að lögreglustjóri mæli gegn því Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara í bæinn og dvelja heima hjá sér þrátt fyrir nýtt hættumatskort sem bendi til þess að auknar líkur séu á eldgosi norðan Grindavíkur. Þetta tilkynnir lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem fundaði í dag um stöðu mála með fulltrúum almannavarna. 30.12.2023 12:04