„Hluti af mér dó með honum“ „Ég er enn að syrgja pabba í dag og ég hætti því aldrei. Sorgin fylgir manni alla tíð,“ segir Dagmar Øder Einarsdóttir. Hún var á táningsaldri þegar faðir hennar, Einar Öder Magnússon lést af völdum krabbameins. Hann var einungis 52 ára gamall. 17.2.2024 09:01
Skrifaði bók fyrir börn sem getin eru með aðstoð tækninnar „Öll börn eiga rétt á því að vita hvernig þau urðu til og fá tækifæri til að fá upplýsingar um uppruna sinn,“ segir Andrea Björt en hún og eiginkona hennar eignuðust son sinn með aðstoð sæðisgjafa. Andrea rak sig á það á sínum tíma að það var lítið sem ekkert efni til á íslensku sem ætlað var börnum sem getin eru með aðstoð sæðis- eða eggjagjafa. 17.2.2024 08:01
Þyrluflugstjórinn kom óvænt og gladdi Vigdísi „Vigdís, ef ég segi þér núna að þyrluflugstjórinn sem bjargaði þér stendur við hliðina á þér?“ spyr Óttar Sveinsson Vigdísi Elísdóttur í nýjasta þætti Útkalls, þar sem henni var komið algjörlega á óvart með því að Bogi Agnarsson þyrluflugstjóri kom að hitta hana í lok viðtals. 14.2.2024 07:00
„Mamma, ég á eftir að deyja ungur“ „Fólk er hrætt við ræða um dauðann, skiljanlega. En samt er það nú þannig að það er bara tvennt sem við getum stólað á í þessu lífi; við fæðumst og við deyjum. Þess vegna finnst mér sjálfsagt að ræða þessa hluti. En ég skil samt svo vel að fólki finnist það erfitt,“ segir Steinunn Rósa Einarsdóttir móðir Skarphéðins Andra Kristjánssonar sem lét lífið í bílslysi á Holtavörðuheiði árið 2014, þá einungis átján ára gamall. 11.2.2024 10:00
Síðasta vonin um ljúfa ævidaga Kraftaverk má telja að Páll Kristrúnar Magnússon hafi lifað af heilablóðfall á ferðalagi með fjölskyldu sinni um landið haustið 2022 þvert á spár lækna. Hann glímir í dag við margvíslegar líkamlegar skerðingar. Fjölskyldunni hefur verið tjáð að litlar líkur séu á frekari bata og blasir nú við að Páll þurfi að fara inn á hjúkrunarheimili, einungis 62 ára gamall. Þau halda þó í eina von. 11.2.2024 07:01
Ævintýrasmíð bestu vinkvenna með sama barnsföður Agnes Helga María Ferro er 35 ára móðir sem glímir við langvinnt krabbamein og gengst nú undir stífa og erfiða lyfjameðferð. Agnes lætur þó ekki deigan síga og fer nýstárlega leið til safna í sérstakan ævintýrasjóð fyrir sig og þrettán ára soninn Alexander. 10.2.2024 08:00
Fékk samviskubit eftir mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu „Svo byrjum við að heyra högg. Púmm, púmm, púmm. Ég fer að hugsa: Það er eitthvað að, segir Oddný Björgólfsdóttir, fyrrum Loftleiðaflugfreyja. Oddný var ein af þeim 79 sem komust lífs af þegar Leifur Eiríksson, DC-8 þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó á Sri Lanka. Oddný var í þrjár vikur á sjúkrahúsi áður en hún flaug heim til Íslands þar sem við tók löng endurhæfing. 7.2.2024 07:00
„Ef ég ætti að giska held ég að tölvurnar hafi verið notaðar“ „Við vorum engir sérfræðingar á rafmynt á þessum tíma. Við lærðum mjög mikið á mjög skömmum tíma,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, sem á sínum tíma rannsakaði Bitcoin-málið svokallaða og sótti það fyrir dómstólum. 5.2.2024 07:00
Lætur draum látins eiginmanns síns rætast á Íslandi „Ég veit að hann á eftir að vera með okkur í anda,“ segir Sinéad Nolan Martin, 27 ára gömul kona frá Englandi í samtali við Vísi en í næsta mánuði mun hún leggja af stað í 40 kílómetra göngu frá Nesjavöllum til Þingvalla. Þannig hyggst hún heiðra minningu eiginmanns síns, Harry Martin, sem lést úr sjaldgæfu krabbameini árið 2021, einungis 25 ára gamall. Einn stærsti draumur Harry þegar hann var á lífi var að heimsækja Ísland. 4.2.2024 09:00
Fengu nóg af Íslandi, seldu allt og héldu í óvissuferð Fyrir tæpum fimmtán mánuðum ákváðu hjónin Gunnlaugur Hólm Sigurðsson og Anna Málfríður að segja skilið við hverdagsleikann á Íslandi. Þau seldu allar sínar eigur, fluttu um borð í nítján ára gamlan húsbíl ásamt Yorkshire terrier hundinum sínum og lögðu af stað í flakk um Evrópu. 3.2.2024 09:00