Strákar að störfum í nótt Björgunarsveitin Strákar var kölluð út í nótt þar sem skúr var við það að fjúka og margt annað lauslegt fauk um á Siglufirði. Innlent 20. mars 2014 10:06
Leiðindaveður víða um land Norðaustan hvassviðri er víða um land með snjókomu og skafrenningi sem veldur ófærð á vegum. Björgunarsveit var kölluð út á Siglufirði í nótt þar sem allt mögulegt var farið að fjúka, en ekki hafa borist fregnir af fólki í vandræðum í föstum bílum, enda var nánast engin umferð um Vestfirði, Norðurland og Austfirði í nótt. Innlent 20. mars 2014 08:36
Óveður um mestallt land fram á morgun Víða illfært og einhverjum vegum hefur verið lokað. Innlent 19. mars 2014 21:15
Ólafsfjarðarvegur opnar aftur eftir slys Ólafsfjarðarvegur opnar aftur innan klukkustundar, en honum var lokað í morgun vegna slyss. Slæm færð er víða á vegum landsins, til dæmis er Siglufjarðarvegur lokaður vegna snjóflóðahættu. Innlent 17. mars 2014 10:43
Trausti Jónsson hættir að blogga vegna áreitis "Áreitið er búið að vera að ágerast í vetur en er búið að vera mikið upp á síðkastið.“ Innlent 14. mars 2014 15:18
Fjöllin ekki mokuð á morgun Fjöllin, Mýrdals- og Möðrudalsöræfi, verða ekki mokuð á morgun laugardag vegna slæmrar veðurspár. Innlent 14. mars 2014 14:46
Ófært víða um land Samkvæmt ábendingu frá veðurfræðingi hjá Vegagerðinni er óveður á Suðvesturlandi en vegir að mestu leiti greiðfærir, eins er óveður á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi eru hálkublettir í uppsveitum. Ófært er um Krísuvíkurveg við Kleifarvatn. Innlent 10. mars 2014 16:40
Enginn leikur í Hólminum í kvöld Lokaumferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta fer ekki öll fram í kvöld eins og áætlað var því mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að fresta einum leik vegna slæms veðurs. Körfubolti 10. mars 2014 15:19
Huga þarf að ræsum og niðurföllum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins minnir á að vatnssvelgir gætu myndast á götum borgarinnar. Innlent 10. mars 2014 12:28
Foreldrar hvattir til að sækja börn í skólann Stormur mun skella á suðvesturhorni landsins í dag með sterkum vindum og úrkomu. Innlent 10. mars 2014 10:32
Búist við stormi á morgun Minnkandi suðvestanátt og él á höfuðborgarsvæðinu Innlent 7. mars 2014 22:18
Gífurlegur snjór í Bolungarvík Ekki fá allir íbúar landsins að njóta veðurblíðunnar sem leikið hefur við íbúa höfuðborgarsvæðisins á undanförnum dögum. Innlent 2. mars 2014 19:27
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðin í Bláfjöllum, Skálafelli, Hlíðarfjalli og Stafdal eru opin í dag. Innlent 1. mars 2014 10:05
Tveir skjálftar mældust við Eyjafjörð Voru þeir báðir 3,4 að stærð og mældust með fimm mínútna millibiili. Innlent 26. febrúar 2014 11:20
Bálhvasst í Eyjum og mikil ölduhæð í Landeyjum Bálhvasst er á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, eða 28 metrar á sekúndu og ölduhæðin við Landeyjahöfn var 3,7 metrar klukkan fimm í morgun, þannig að ólíklegt er að farþegaskipið Víkingur geti siglt þangað fyrri ferðina, að minnstakosti. Innlent 25. febrúar 2014 08:06
Hálka og hálkublettir víðast hvar Hálka og hálkublettir á flestum fjallvegum á Vesturlandi og víðast hvar á Norðurlandi. Innlent 24. febrúar 2014 09:55
Óveður á Kjalarnesi Hálka er á Hellisheiði en hálkublettir á Mosfellsheiði. Það er ófært og óveður á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og Oddsskarði og beðið með mokstur til morguns Innlent 21. febrúar 2014 17:21
Mokar út mannbroddum "Þessi vetur er búinn að slæmur ef horft er á veðrið...en góður fyrir kassann,“ segir Jónína Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Skóvinnustofu Sigurbjörns í Austurveri. Innlent 20. febrúar 2014 10:30
Vindhviður fóru í fimmtíu metra á sekúndu á Stórhöfða Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu þurftu að sinna að minnsta kosti fimm útköllum vegna foks í gærkvöldi en hvergi hlaust verulegt tjón af. Þeir voru víðar að störfum og þurftu meðal annars að hefta fok á Hvolsvelli og koma ökumanni flutningabíls til aðstoðar eftir að bíllinn rann þversum á Steingrímsfjarðarheiði. Innlent 20. febrúar 2014 07:23
Snarvitlaust veður á höfuðborgarsvæðinu og víðar Fólk hefur slasast, rúður brotnað og girðingar fokið. Innlent 19. febrúar 2014 18:08
Fok mun halda áfram í kvöld Bæta mun við vindinn á höfuðborgarsvæðinu fram yfir klukkan sjö í kvöld og ekki mun lægja fyrr en eftir hádegi. Innlent 19. febrúar 2014 17:11
Rok og drulla á Klaustri „Þetta er það versta sem gerst hefur síðan í gosinu,“ segir íbúi á Kirkjubæjarklausti en sandmistur var yfir bænum fyrr í dag. Innlent 19. febrúar 2014 15:59
Gífurlegt svifryk yfir borginni Mikið svifryk er núna yfir Reykjavík og mælast loftgæði við Grensás mjög slæm þar sem 488,1 míkrógrömm af ryki í hverjum rúmmetra mælist. Innlent 19. febrúar 2014 11:34
Varað við stormi Veðurstofa Íslands varar við stormi syðst á landinu á morgun. Innlent 18. febrúar 2014 20:26
Óveður hefur áhrif á íslenska korthafa Óveður á Bretlandseyjum gerði það að verkum að íslenskir kreditkorthafar gátu ekki notað kortin sín. Innlent 14. febrúar 2014 11:47
Enn snjóar á austurströnd Bandaríkjanna Um það bil hálf milljón heimila eru án rafmagns og ekki verður af nærri þúsund flugferðum í dag. Erlent 14. febrúar 2014 10:28
Gera ráð fyrir slæmu veðri á fjallvegum í dag Gert er ráð fyrir hríðaveðri, skafrenningi og blindu samfara mikilli veðurhæð um norðanvert landið í allan dag. Vont veður var á Norðanverðu landinu í nótt. Innlent 12. febrúar 2014 09:51
Búist við norðaustan stormi Samkvæmt ábendingu frá veðurfræðingi má bera ráð fyrir norðaustan stormi allt að 18-23 metrum á sekúndu í dag. Innlent 11. febrúar 2014 16:11
Enn nokkur snjóflóðahætta Nokkur snjóflóð féllu um helgina á Vestfjörðum og norðanverðum Tröllaskaga í norðaustan hraglanda. Innlent 11. febrúar 2014 08:42
Níutíu dimmustu dagarnir að baki Við sjáum fram á bjartari tíma: 90 dimmustu dagar ársins eru að baki. Innlent 5. febrúar 2014 13:24