Óvissustig vegna snjóflóðahættu Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á sunnanverðum Vestfjörðum. Innlent 4. mars 2015 14:57
„Mjög blint og alls ekkert ferðaveður“ Á þriðja tug björgunarsveitarmanna hafa verið kallaðir út til að aðstoða ökumenn á Hellisheiði og Sandskeiði, Innlent 4. mars 2015 13:54
Hellisheiði og Þrengslin lokuð: Björgunarsveitir að störfum Reiknað með hviðum 35-45 metrar undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi á frá því laust fyrir hádegi og þar til síðdegis. Innlent 4. mars 2015 12:34
Rúta fauk út af veginum undir Hafnarfjalli Vindhviður allt að fjörutíu metrar á sekúndu. Innlent 4. mars 2015 10:38
Fylgstu með storminum „í beinni“ Veðurstofan spáir stormi um land allt í dag. Innlent 4. mars 2015 09:12
Búist við stormi um allt land í dag Hvessa mun með morgninum sunnan- og vestanlands með snjókomu, einkum á fjallvegum, en síðar slyddu eða rigningu á láglendi. Innlent 4. mars 2015 07:16
Ætla að reyna að koma ferðamönnum niður af Vatnajökli Einn þriggja erlendra ferðamanna á jöklinum hefur óskað aðstoðar en veðurspá fyrir svæðið er mjög slæm. Innlent 3. mars 2015 17:56
Vara við stormi á morgun Veðurstofa Íslands býst við stormi eða yfir 20 metrum á sekúndu á landinu. Innlent 3. mars 2015 14:33
Hálka eða hálkublettir á stórum hluta landsins Siglufjarðarvegur er lokaður vegna snjófljóðahættu. Innlent 3. mars 2015 07:33
Hálka víða um land Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og Sandskeiði en hálkublettir í Þrengslum og hálka á Lyngdalsheiði. Innlent 2. mars 2015 07:38
Fyrstu 50 dagar ársins þeir vindasömustu frá 1995 50 fyrstu dagar ársins 2015 eru þeir vindasömustu frá árinu 1995 með meðalvindhraða upp á meira en 10 metra á sekúndu. Innlent 2. mars 2015 07:00
Fróðárheiði er ófær Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og eins á Mosfellsheiði en á Suðurlandi er víða nokkur hálka. Innlent 28. febrúar 2015 09:34
Flestar leiðir ófærar á Vestfjörðum Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð eru einnig enn lokaðar vegna snjóflóðahættu. Innlent 27. febrúar 2015 07:42
Tugum komið til bjargar á Hellisheiði og Lyngdalsheiði Björgunarsveitarmenn voru fram yfir miðnætti að aðstoða fólk í föstum bílum í Þrengslum, á Hellisheiði og Lyngdalsheiði, en þessu heiðum var lokað undir kvöld. Hundruð manna voru þá þegar lentir í vandræðum og komust hvergi. Innlent 27. febrúar 2015 07:31
Hellisheiði og Þrengslin lokuð Einnig er búið að loka Sandskeiði og Lyngdalsheiði. Þá eru Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð einnig lokaðar. Innlent 26. febrúar 2015 22:35
Fjöldi bíla fastur á Hellisheiði Búið er að loka heiðinni frá Hveragerði að Þrengslavegamótum. Innlent 26. febrúar 2015 18:03
Enn lokað um Súðavíkur-og Raknadalshlíð Enn er lokað um Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð við Patreksfjörð vegna snjóflóðahættu. Innlent 26. febrúar 2015 17:19
Vélsleðamaður kom af stað 100 tonna snjóflóði í Bláfjöllum Náði að keyra undan flóðinu. Fjallgöngumenn varaðir við veikum snjóalögum á suðvesturlandi. Innlent 26. febrúar 2015 16:38
Mega ekki enn fara í hús sín á Tálknafirði og Patreksfirði Snjór hefur skafið í gil fyrir ofan Tálknafjörð og enn snjóflóðahætta. Innlent 26. febrúar 2015 12:33
Vörubílsstjórinn kominn niður af Kleifaheiði Var sóttur af björgunarsveitarmönnum í nótt. Innlent 26. febrúar 2015 07:54
Ófært og stórhríð á Vestfjörðum Víða um landið er þungfært og erfitt yfirferðar. Innlent 26. febrúar 2015 07:49
Fundu þrjá ferðamenn á hálendinu innan af Eyjafirði Þrír ferðamenn sem leitað hefur verið að á hálendinu innan af Eyjafirði eru fundnir, heilir á húfi. Innlent 25. febrúar 2015 23:57
Fundu ferðamennina heila á húfi Björgunarsveitir fundu nú fyrir stundu tvo menn sem leitað var að norðan við Mýrdalsjökul. Voru þeir í ágætu ásigkomulagi en þó orðnir nokkuð hraktir eftir að hafa misst tjald og búnað í aftakaveðri. Innlent 25. febrúar 2015 22:43
Væsir ekki um vörubílstjórann á Kleifaheiði „Ég tek bara innhverfa íhugun hérna,“ segir Páll Ágúst Sigurðarson sem setið hefur fastur á Kleifaheiði í tólf tíma og verður þar í nótt. Innlent 25. febrúar 2015 22:14
Súðavíkurhlíð lokuð í nótt vegna snjóflóðahættu Veður fer versnandi til kvölds um landið norðan- og austanvert en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 25. febrúar 2015 22:13
„Svo kom þessi rosalegi þrýstingur og það titraði allt“ Búið er að rýma um þrjátíu hús á sunnaverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Snjóflóð féll á Patreksfirði í dag. Innlent 25. febrúar 2015 21:12
Hátt í 80 björgunarsveitarmenn á leiðinni til ferðamanna fyrir norðan Talið er að ferðamennirnir séu á eða við Urðarvötn. Innlent 25. febrúar 2015 20:26
Leitað er að tveimur erlendum ferðamönnum við Mýrdalsjökul Nú stendur yfir leit að tveimur erlendum ferðamönnum sem voru á ferð við Mýrdalsjökul en búið er að kalla út björgunarsveitir á frá Hellu, Hvolsvelli og Vík í Mýrdal. Innlent 25. febrúar 2015 20:10
Hafa ákveðið að rýma reit níu á Tálknafirði Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að framlengja hættustig á áður rýmdum svæðum á Patreksfirði. Innlent 25. febrúar 2015 18:03
Neyðarboð bárust frá ferðamönnum Björgunarsveitin Dalbjörg í Eyjafirði og Súlur, björgunarsveitin á Akureyri voru kallaðar út á fimmta tímanum í dag eftir að boð bárust frá SPOT sendi á eða við Urðarvötn. Innlent 25. febrúar 2015 17:17