Vegna ummæla borgarstjóra um kennara Það er virkilega dapurt að heyra ummæli borgarstjóra á nýliðinni fjármálaráðstefnu sveitarfélagana um kennara, þar sem hann uppskar lófatak fjölda oddvita og sveitarstjóra í salnum. Það er sorglegt í ljósi þess að nú rétt fyrir helgi íhugaði ég alvarlega um framtíð mína, ungs kennara nýútskrifuðum úr meistaranámi, í þessu starfi. Skoðun 14. október 2024 12:30
Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Nú þegar stefnir í kosningar fyrir jól, keppast flokkarnir við að smíða lista til að tefla fram. Uppstilling þykir líkleg víða, og aðeins einn flokkur hefur þegar tekið ákvörðun um að fara í prófkjör. Formaður eins flokksins segir þá ekki hafa langan tíma til að „komast í kjólinn fyrir jólin“. Innlent 14. október 2024 12:26
Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Bergþór Ólason, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verður tilkynning Bjarna Benediktssonar í gær. Innlent 14. október 2024 12:24
Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Deildarforseti Háskólans á Bifröst segir stjórnarslitin skapa óvissu í efnahagslífinu og erfitt sé að sjá að verðbólga haldi áfram að hjaðna í núverandi ástandi. Hún telur að atvinnulíf muni halda að sér höndum þar til það fer að róast. Nú vilji menn bæði vera í axlaböndum og með belti. Innlent 14. október 2024 11:56
Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Miðflokksins, hefur gengið til liðs við Lýðræðisflokk Arnars Þórs Jónssonar. Árið 2021 hætti hann í Miðflokknum og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 14. október 2024 11:56
Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ Þótt formaður Samfylkingarinnar hafi lýst því yfir í gær að fátt annað komi til greina en að velja á framboðslista flokksins með uppstillingu hefur formleg ákvörðun um slíkt ekki verið tekin. Það er í höndum kjördæmisráðs flokksins að taka ákvörðun um fyrirkomulag við val á lista en formenn kjördæmisráða munu funda síðdegis í dag. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins segist telja að fullur skilningur ríki fyrir því að farin verði þessa leið í ljósi þess hve stutt sé að öllum líkindum til kosninga, þótt „þetta sé ekki A-kostur.“ Innlent 14. október 2024 11:26
„Svívirðileg móðgun við kennara“ Kennarar í Reykjavík gera alvarlegar athugasemdir við þau ummæli sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri lét falla á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í liðinni viku. Innlent 14. október 2024 11:08
„Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að honum sé sama um það sem stjórnmálaskýrendur munu segja um ákvörðun hans að boða þingrof. Hann þurfi sterkara umboð og stærri þingflokk til þess að ná fram markmiðum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 14. október 2024 10:31
„Þetta verður alger Kleppur“ Arnar Þór Jónsson, stofnandi Lýðræðisflokksins, segir að framundan séu annasamar vikur í kjölfar ákvörðunar Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra að óska eftir þingrofi með það að markmiði að halda þingkosningar í nóvember. Innlent 14. október 2024 10:02
Gerir grein fyrir ákvörðun sinni síðar í vikunni Halla Tómasdóttir, forseti, segist ætla að ræða við formenn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi áður en hún tekur afstöðu til óskar forsætisráðherra um þingrof. Hún ætlar að greina frá ákvörðun sinni seinna í vikunni. Innlent 14. október 2024 09:55
Óvenjulegt ef forseti féllist ekki á ósk um þingrof Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, gerir ráð fyrir að Halla Tómasdóttir, forseti, verði við bón hans um þingrof og að það væri afar óvenjulegt ef hún gerði það ekki. Það hversu fljótt þing verði rofið hafi áhrif á kjördag. Innlent 14. október 2024 09:22
Vilja Guðlaugur Þór, Landsvirkjun og Hafnarfjarðarbær afnema kærurétt almennings? Töluvert ber um þessar mundir á því að stjórnvöld, fyrirtæki og hagsmunasamtök kenni öðrum um eigin hrakfarir. Skoðun 14. október 2024 09:15
Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ „Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en þann að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.“ Innlent 14. október 2024 09:07
Nýr flokkur – Nýr valkostur – Nýr veruleiki Það má með sanni segja að dregið hafi til tíðinda á hinum pólitíska vettvangi í þessari viku þegar nýstofnaður flokkur, Lýðræðisflokkurinn, kynnti tólf helstu áherslumál sín á blaðamannafundi. Skoðun 14. október 2024 08:46
Svona voru fundahöld forseta með formönnum flokka Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funda með forseta Íslands hver á fætur öðrum í kjölfar fundar forseta með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í morgun þar sem hann óskaði eftir þingrofi Innlent 14. október 2024 08:23
Erindinu er lokið Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Það liggur fyrir að það er ekki lengur til staðar nægur vilji og sameiginleg sýn til þess að halda samstarfinu áfram. Skoðun 14. október 2024 08:16
Kalt er það, Einar! Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, sem fram fór síðustu helgi, sagði borgarstjóri Reykjavíkur meðal annars að; „að kennararnir séu að biðja um að fá að vera minna með börnum, en eru samt veikari en nokkru sinni fyrr, kenna minna og einhvern veginn fleiri undirbúningstímar“. Skoðun 14. október 2024 07:02
Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við Þingflokksfundi Framsóknarflokksins lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar komu þingmenn Framsóknar saman og ræddu óvæntar vendingar dagsins og næstu skref í ljósi þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið. Innlent 13. október 2024 22:43
Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur og fjölmiðlamaður, segir ótrúlega tilviljun hafa átt sér stað þegar hann var að brenna gamlan og ónýtan íslenskan fána í dag. Þegar hann stóð yfir fánanum sem var þá í ljósum logum bárust þær fréttir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hafi boðað til blaðamannafundar og að ríkisstjórnin væri sprungin. Lífið 13. október 2024 21:20
„Ennþá í töluverðu óvissuástandi um framvinduna“ Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor lítur svo á að mál Yazans Tamimi og fjölskyldu hans hafi verið „þúfan sem velti hlassinu“ í aðdraganda stjórnarslita. Óvissuástand ríkir þó enn um framhaldið að mati sérfræðinga, en ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu kom ekki á óvart. Innlent 13. október 2024 21:17
Svandís safnar sjálfboðaliðum: „Ég bið ykkur um aðstoð” Svandís Svavarsdóttir formaður VG hefur sent ákall til flokksmanna um að nú sé kosningabaráttan hafin og hvetur öll sem hönd geti lagt á plóg til að skrá sig sem sjálfboðaliða. Þetta kemur fram í bréfi sem stílað er til félaga í flokknum nú rétt fyrir átta í kvöld. Innlent 13. október 2024 20:24
Má gera ráð fyrir að Halla ræði við formenn allra flokka Það má gera ráð fyrir því að Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, muni funda með formönnum allra flokka Alþingis og Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis, á morgun í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu væri slitið og að boðað yrði til kosninga í nóvember. Innlent 13. október 2024 19:59
Bjarni hafi ákveðið „að henda inn handklæðinu” Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðun forsætisráðherra um að óska eftir þingrofi og boða kosningar hafa komið nokkuð á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn hafi „kastað inn handklæðinu“ þótt hann telji sjálfur að stjórnarflokkarnir hefðu getað náð saman um mikilvæg mál til að halda áfram samstarfi. Þetta sagði Sigurður Ingi í kvöldfréttum Rúv. Innlent 13. október 2024 19:48
Vænlegast fyrir alla að þjóðin fái að kjósa Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hittir forseta Íslands klukkan níu í fyrramálið að óska eftir þingrofi sem hann vonast til að geti formlega átt sér stað á fimmtudag. Hann segir ágreiningsmálin í samstarfinu hafa verið orðin of mörg og alvarleg og því rétt að slíta stjórnarsamstarfinu. Innlent 13. október 2024 19:46
Framsókn hringi nú í allar auglýsingastofurnar „Þú getur rétt ímyndað þér hvort Framsóknarflokkurinn sé ekki að hringja í allar auglýsingastofurnar núna. Hvaða slagorð komið þið með fyrir okkur til að bjarga þessu. Það eru fundir hjá VG og Sjálfstæðisflokkurinn er bara að vona að þetta leysist fram til 30. nóvember. Þetta verða áhugaverðir dagar framundan“ Innlent 13. október 2024 19:33
Framsóknarflokkurinn fundar í kvöld Þingflokkur Framsóknarflokksins fundar klukkan átta í kvöld til að bregðast við ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra en hann tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið og boðað yrði til kosninga í nóvember. Þetta staðfesti Ingibjörg Ólöf Isaksen, þinflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Innlent 13. október 2024 19:00
Brotthvarf Katrínar hafi verið dauðadómur samstarfsins „Upphafið að þessu öllu saman var þegar að Katrín labbaði frá þeim. Það var eiginlega dauðadómur þessarar ríkisstjórnar. Það eru allt aðrar áherslur sem koma með þessum nýja formanni Vinstri grænna. Hún með sín þrjú prósent heldur virkilega að hún sé með dagskrávaldið og ætlar að ákveða kosningar og ég veit ekki hvað og hvað.“ Innlent 13. október 2024 17:44
Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“ Ýmis konar viðbrögð berast frá landsmönnum vegna stórtíðinda dagsins um að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri sprungin. Vísir tók saman það helsta af samfélagsmiðlum. Innlent 13. október 2024 17:41
„Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta” Utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist vera létt yfir því að búið sé að taka ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Þetta skrifar Þórdís í færslu á Facebook nú fyrir stundu. Innlent 13. október 2024 17:10
Blöskrar ákvörðun Bjarna og segja hana heigulshátt „Ungu Framsóknarfólki blöskrar ákvörðun formanns Sjálfstæðisflokksins um að slíta ríkisstjórnarsamstarfi á þessum tímapunkti og leitast við að ganga til kosninga í nóvember. Okkur þykir þetta heigulsháttur, þetta er gert með hagsmuni hans flokks í huga umfram hagsmuni þjóðarinnar.“ Innlent 13. október 2024 17:09