Þingmenn minntust Guðrúnar Helgadóttur Þingmenn minntust Guðrúnar Helgadóttur, rithöfundar og fyrrverandi forseta Alþingis, við upphaf þingfundar í dag. Guðrún andaðist aðfaranótt miðvikudagsins 23. mars en hún var 86 ára. Innlent 24. mars 2022 11:31
Segir brigslyrði um myrkraverk við sölu bankans ódýr af hálfu þingmanna Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fullyrðingar margra þingmanna í þingsal í gær um úboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka ódýrar. Innherji 24. mars 2022 10:24
Leggja til að greiðslumat leigjenda taki mið af greiddri húsaleigu Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fjármála- og efnahagsráðherra geri breytingar á reglugerð um lánshæfis- og greiðslumat til að auðvelda fólki á leigumarkaði að kaupa sér íbúðarhúsnæði til eigin nota. Neytendur 24. mars 2022 10:15
Góðir hlutir gerast líka í skjóli nætur Í fyrradag átti sér stað að því er virðist prýðilegt og vel heppnað útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, þriðja stærsta hlutabréfaútboð í sögu Íslands. Umræðan 24. mars 2022 10:01
Sigurður leiðir lista Bæjarlistans í Hafnarfirði Sigurður P. Sigmundsson hagfræðingur mun leiða lista Bæjarlistans í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. Innlent 24. mars 2022 08:32
Ráðinn ráðgjafi á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður, hefur tekið við starfi ráðgjafa framkvæmdastjóra á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samning stofnunarinnar um varnir gegn eyðimerkurmyndun. Stofnunin er með aðsetur í þýsku borginni Bonn. Innlent 24. mars 2022 07:49
Tilboð frá 430 fjárfestum og minni afsláttur en í samskonar útboðum Meginþorri verðbréfasjóða, fjársterkra einstaklinga og tryggingafélög, sem voru metnir langtímafjárfestar af hálfu Bankasýslunnar, fengu úthlutað bréfum í Íslandsbanka sem nam yfir 40 prósentum af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í lokuðu útboði til fagfjárfesta sem lauk í gærkvöldi þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut fyrir 53 milljarða. Innherji 23. mars 2022 20:15
Kallar eftir afsögn fjármálaráðherra vegna afsláttar á söluverði Formaður VR gagnrýnir harðlega að hlutur ríkisins í Íslandsbanka hafi ekki verið seldur á markaðsvirði og kallar eftir afsögn fjármálaráðherra. Viðskipti innlent 23. mars 2022 18:42
Myndaveisla frá flokksþingi nýrrar Framsóknar Um helgina var 36. flokksþing Framsóknar haldið undir yfirskriftinni Ný Framsókn fyrir landið allt. Á laugardagskvöldinu var svo blásið til veislu á Grand hótel en þar var gríðarleg stemning og margt um manninn. Lífið 23. mars 2022 17:32
Andrés Ingi segir rússnesk stjórnvöld „móðgunargjarna brjálæðinga í Kreml“ Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fékk óvæntan stuðning frá minnihlutanum á þingfundi í dag. Þingmenn úthúðuðu Pútín úr ræðustól þingsins og kölluðu hann ítrekað illvirkja. Þá voru rússnesk sendiráð um víða veröld kölluð falsfréttaveitur. Innlent 23. mars 2022 17:03
Okkar Astrid Lindgren kveður Eftir að andlátsfregn birtist, að Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður væri látin, hafa fjölmargir lýst yfir aðdáun sinni á þessum áhrifamikla rithöfundi, og kvatt hana með miklu þakklæti. Þjóðin syrgir nú einn sinn allra vinsælasta höfund. Innlent 23. mars 2022 15:45
Sonur Ingu Sælands hreppir sæti í stjórn Íslandspósts Það varð meiri háttar uppstokkun á stjórn Íslandspósts fyrir helgi þegar nánast öllum stjórnarmönnum ríkisfyrirtækisins var skipt út. Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjártæknifélagsins Two Birds, situr áfram í stjórn en Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Guðný Hrund Karlsdóttir og Baldvin Örn Ólason koma í stað þeirra sem skipt var út. Klinkið 23. mars 2022 15:01
Bein útsending: Kynnir úthlutun úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mun tilkynna um úthlutun ársins úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða á fundi sem streymt verður frá og hefst klukkan 14:30. Innlent 23. mars 2022 14:01
Valgerður Björk leiðir lista Beinnar leiðar í Reykjanesbæ Valgerður Björk Pálsdóttir, doktorsnemi í stjórnmálafræði, leiðir lista Beinnar leiðar í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. Innlent 23. mars 2022 12:03
Guðrún Helgadóttir er látin Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, fyrrverandi alþingismaður og forseti Alþingis, lést í nótt á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Guðrún var 86 ára að aldri. Innlent 23. mars 2022 12:03
Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum. Viðskipti innlent 23. mars 2022 12:02
Vandasamt verkefni í Garðabæ Tvær risavaxnar áskoranir bíða nýs oddvita Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ ef vel á að vera á næsta kjörtímabili. Klinkið 23. mars 2022 12:01
Sigurður Ingi sér ekki fyrir sér að biðja Rússa afsökunar Innviðaráðherra sér ekki fyrir sér að biðja rússneska sendiráðið á Íslandi afsökunar á ummælum sem hann lét falla um „illmennin í Kreml“ á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina. Hann muni kannski íhuga það ef Rússar láta af hernaði í Úkraínu. Innlent 23. mars 2022 11:28
Veruleg umfram eftirspurn í útboðinu á hlutum ríkissjóðs Bankasýsla ríkisins hefur tilkynnt um sölu á 22,5% af útistandandi hlutafé Íslandsbanka sem jafngildir 450 milljón hlutum í bankanum. Söluverð var 117 krónur á hlut og nam söluvirði hlutarins því 52,65 milljörðum króna. Viðskipti innlent 23. mars 2022 09:48
Afglöp við afglæpavæðingu Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem settur var saman árið 2017 sagði: „Snúa þarf af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna en styrkja aðgerðir gegn fíkniefnasölum, innflutningi og framleiðslu fíkniefna. Tryggja þarf fíklum viðunandi meðferðarúrræði með samvinnu dóms-, félags- og heilbrigðiskerfis.“ Skoðun 23. mars 2022 09:01
Mannúð og friður Ísland er um margt sérstæður staður, við eigum okkur enga eiginlega nágranna, engin landamæri að stærri þjóð sem ógnar öryggi okkar á þann hátt sem fólk á meginlandinu þarf að búa við. Skoðun 23. mars 2022 07:30
Krefja Sigurð Inga um afsökunarbeiðni vegna ummæla um „illmennin í Kreml“ Rússneska sendiráðið í Reykjavík fer fram á það að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina um „illmennin í Kreml.“ Sendiráðið segist líta á ummæli ráðherrans sem afskipti af innanríkismálum Rússlands og að það sé ekki við hæfi að hann tjái sig um þau mál. Innlent 22. mars 2022 23:58
Stefnir á að frumvarp um afglæpavæðingu verði á dagskrá í haust Heilbrigðisráðherra segir að frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta hafi verið sett á bið því að starfshópur sem fer fyrir málinu treystir sér ekki til að klára sín störf fyrir fyrsta apríl. Hann reiknar með að leggja fram betrumbætt frumvarp fyrir þingið í haust. Hann segist hlynntur refsileysi en að fíkniefni verði gerð upptæk finnist þau á fólki. Innlent 22. mars 2022 22:51
Gjaldþrota grunnskóli Um daginn var ég gjörsamlega úrvinda eftir tvær vikur í grunnskólakennslu. En ekki af baki dottin, enda er ég með yndislega nemendur, eins og reyndar býsna margir. Hef þó töluvert sinnt afskiptum af öðrum. Hef reynslu af tættari bekkjum, þ.e. sem hafa haft tíð kennara skipti s.s. vegna veikindi kennara, kulnunar eða skorts á faglærðum í stéttinni. Skoðun 22. mars 2022 20:31
Gagnrýnir áform um fækkun sýslumannsembætta Þingmaður Framsóknar gagnrýnir harðlega fyrirætlanir dómsmálaráðherra að fækka sýslumannsembættum í eitt. „Það er jafn mikilvægt að geta hitt starfsmann sýslumannsembættis á Höfn, Vopnafirði, Stykkishólmi og í Kópavogi, til dæmis vegna viðkvæmra fjölskyldu- og erfðamála,“ segir hann. Innlent 22. mars 2022 20:07
Efasemdir um fyrirætlanir dómsmálaráðherra Nýlega bárust fréttir af áformum dómsmálaráðherra, Jóns Gunnarssonar, um að fækka sýslumannsembættum á landinu úr níu í eitt. Hvergi má finna þessar róttæku breytingar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og hef ég miklar efasemdir um ágæti þeirra. Skoðun 22. mars 2022 20:00
Að halda sig hafa vit fyrir heilli þjóð Það var áhugavert að heyra svar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag. Aðspurð hvort hún styddi að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið yrði haldin á þessu ári sagði hún sjálfsagt að efna til slíkrar atkvæðagreiðslu - en bara ef fyrir lægi augljós meirihluti meðal þingmanna fyrir aðild að sambandinu. Skoðun 22. mars 2022 14:30
Sýnatökur vegna COVID-19 hafa kostað ríkið rúma ellefu milljarða Heildarkostnaður ríkisins vegna sýnatöku frá því að heimsfaraldur COVID-19 hófst eru rúmir ellefu milljarðar króna. Innherji 22. mars 2022 14:19
Ekki sama krafa á Ísland innan NATO og á önnur ríki um hækkun framlaga Forsætis- og utanríkisráðherra segja koma til greina að Íslendingar auki framlög sín til NATO þegar komi að verkefnum eins og vörnum gegn netárásum. Alltaf hafi ríkt skilningur á því innan NATO að framlög Íslendinga taki mið af því að þjóðin hafi engan her. Innlent 22. mars 2022 12:53
Þiggur ekki annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins Áslaug Hulda Jónsdóttir, sem hafnaði í öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, hyggst ekki þiggja sætið en hún sóttist eftir því að leiða listann áfram. Innlent 22. mars 2022 12:08