Ást á stórum byggingum Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið. "Mikið mætti spara með því að fækka þeim og nýta heita vatnið í aðra og uppbyggilegri hluti,“ gætu menn sagt. Nú er til dæmis flott sundaðstaða í Reykjanesbæ. Þegar búið er að flytja flugvöllinn til Keflavíkur blasir við að hægt verði að fækka sundlaugum um landið töluvert. Menn munu þá geta hoppað í flugvél eftir vinnu, farið í sund í "Lands- háskólasundlauginni“ í Reykjanesbæ og komið heim fyrir tíufréttir. Fastir pennar 10. febrúar 2012 06:00
Heggur sá er hlífa skyldi Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyrir því að þurfa að skera töluvert niður. Þurfa er kannski ofsagt – það var pólitísk ákvörðun meirihlutans að skera svona mikið niður í menntamálum en hlífa í staðinn öðrum sviðum. Meirihluti Besta flokks og Samfylkingarinnar var auðvitað fljótur að finna upp á frábærri leið til þess að spara hundruð milljóna króna ef ekki milljarða. Þau ætluðu bara að sameina fullt af skólum og leikskólum og alls konar menntastofnunum. Nýr og skapandi meirihluti. Skoðun 9. febrúar 2012 06:00
Ætlað samþykki Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum nema að þeir hafi beðið um annað. Ekki ætla ég að ætla að þeim gangi annað en gott til en eitthvað er óþægilegt við það að vefir okkar renni sjálfkrafa til samfélagsins að okkur látnum. Frekar en að taka "rétta“ ákvörðun fyrir alla, ætti að gera öllum auðvelt að taka rétta ákvörðun. Fastir pennar 3. febrúar 2012 06:00
Ekki eins og að stela bíl Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn ákveður að hann ætli að hafa sumar búðir dýrari en aðrar. Fyrir því gæti hann haft ýmsar ástæður. Það gæti verið að flutningskostnaður væri mishár, að leigan væri sums staðar hærri eða fasteignagjöld breytileg eftir bæjum. Svo gæti hreinlega verið að hann mæti það svo að kúnnar sumra verslana væru almennt ríkari en kúnnar annarra og því mætti reyna að rukka þá um meira. Fastir pennar 27. janúar 2012 06:00
Að treysta neytendum Hvað sem líður umsókn Íslands að Evrópusambandinu er ljóst að við Íslendingar þurfum að taka tolla- og vörugjaldalöggjöf okkar til gagngerrar endurskoðunar. Skoðun 26. janúar 2012 06:00
Frelsi til að vera til Það berast ekki allt of margar fréttir af þinginu þessa dagana þar sem aukið er á svigrúm fólks til leita hamingjunnar og ráða sér sjálft. En það er sjálfsagt að hrósa þingmönnum þegar það gerist. Nýsamþykkt þingsályktunartillaga um að heimila staðgöngumeðgöngu í velgjörðarskyni er skref í rétta átt. Fastir pennar 20. janúar 2012 06:00
Rangfærslum svarað Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Baugs, skrifar grein í Fréttablaðið í gær um umfjöllun Kastljóss um stefnu slitastjórnar Glitnis gegn helstu stjórnendum bankans og eigendum. Í grein sinni fullyrðir Kristín að stefnan sé "lesin upp orðrétt í Kastljósi Ríkisútvarpsins, þann 12. janúar síðastliðinn án nokkurra athugasemda, eins og um hreinan sannleika sé að ræða“. Skoðun 18. janúar 2012 06:00
Farsæll dauði hverfaforgangs Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að nýjar reglur um hverfaforgang í framhaldsskólum gangi ekki upp. Lagaheimild hafi skort, reglurnar hafi ekki verið settar með reglugerð heldur með bréfaskriftum og birtingu þeirra hafi verið ábótavant. Hæpið sé að stjórnarskráin heimili slíka takmörkun á aðgengi til náms. Ráðuneytið fær, með öðrum orðum, falleinkunn. Fastir pennar 13. janúar 2012 06:00
Byggðaþróun og samgöngustefna Guðjón Baldursson læknir skrifaði tvær greinar milli jóla og nýárs í Fréttblaðið þar sem hann kallaði fyrirhugaða byggingu nýs spítala á Landspítalalóðinni við Hringbraut "stórslys 21. aldarinnar“. Það er ekki mitt að skipta mér af stílbrögðum annarra. En ég sé ekki betur en að Guðjón gefi sér forsendur, hvað varðar byggðaþróun og samgöngustefnu, sem ekki eiga sér stoð í veruleikanum og dragi af þeim stóryrtar ályktanir. Skoðun 11. janúar 2012 06:00
Betri Reykjavík fyrir alla Lýðræðisbyltingar þurfa ekki að vera blóðugar eða háværar. Þvert á móti geta þær verið þægilegar og hljóðlátar. Skoðun 10. janúar 2012 06:00
Gegn lögum og vísindum Sumir segja að Jón Bjarnason hafi verið rekinn úr embætti vegna andstöðu sinnar við ESB. Það má vel vera, en barátta hans fyrir óvandaðri stjórnsýslu og andstaðan við vísindaleg vinnubrögð í landbúnaði og sjávarútvegi hefðu vel mátt duga til brottreksturs, án þess að fleira kæmi til. Fastir pennar 6. janúar 2012 06:00
Við áramót Í lok árs er við hæfi að líta til baka yfir hið liðna, hvort sem er á hinum pólitíska vettvangi eða á öðrum sviðum þjóðlífsins. Til gleðiefna telst árangur fremsta íþróttafólks okkar á alþjóðavettvangi, ekki síst kvennalandsliðanna í handknattleik og knattspyrnu. Skoðun 31. desember 2011 13:13
Árið 2012 verður að nýta vel Við lestur áramótagreina undanfarinna ára blasir við hversu ótrúlega mikil stöðnun hefur ríkt á Íslandi frá því að ríkisstjórn Alþýðubandalagsins tók við völdum. Skoðun 31. desember 2011 08:15
Náttfatagjald Um áramótin tekur gildi nýr skattur, gistináttaskattur, sem lagður er á fólk sem lúllar gegn gjaldi utan heimilis. (Þó ekki ef það lúllar í orlofshúsi sveitarfélags.) Sameiginleg nefnd ríkis og hagsmunaaðila mun sjá um að deila út þorra þess fjár sem þannig kemur í kassann. Það verður gert í gegnum sérstakan sjóð sem á að veita fjármagn til uppbyggingar á ferðamannastöðum. Sjóðnum verður stjórnað af fjögurra manna nefnd þar sem ferðaþjónustan skipar tvo. Hljómar vel? Fastir pennar 23. desember 2011 06:00
Áfram með smjörið Fyrir um þrjátíu árum voru sett herlög í Alþýðulýðveldinu Póllandi. Stjórnarandstæðingar voru sóttir heim í skjóli nætur og settir í fangelsi. „Samstaðan“ var orðin of sterk, stjórnvöld þurftu að skakka leikinn. Helstu forkólfar hins frjálsa verkalýðsfélags voru reyndar vistaðir við ágætisaðstæður í heilsulindum fyrir liðsforingja. Þeir fengu nógan mat og náðu meira að segja að hamstra smjör, sem þeir smygluðu til eiginkvenna þegar þær komu í heimsókn. Það segir sitthvað um vöruúrvalið í landinu þegar fólk er farið að smygla nauðsynjavörum úr fangelsum. Fastir pennar 16. desember 2011 06:00
Sköpum samstöðu Forysta stjórnarflokkanna nærist á átökum. Það er gömul saga og ný. Það er því eftir öðru að helsta markmið formanns VG virðist nú vera að losna við efnahags- og viðskiptaráðherrann úr ríkisstjórn. Hann hefur ógnað foringjaræðinu sem forsætisráðherra og fjármálaráðherra virðast hafa tileinkað sér. Enginn treystir Steingrími Joð fyrir alvaldi í efnahagsmálum, en hann virðist ekki hlusta nú frekar en fyrri daginn. Skoðun 16. desember 2011 06:00
Framsóknarflokkurinn 95 ára – Bjarta framtíð Framsóknarflokkurinn fagnar 95 ára afmæli í dag sem elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins. Hann var stofnaður á Alþingi hinn 16. desember 1916 og hefur síðan orðið að fjöldahreyfingu yfir tólf þúsund félagsmanna á öllu landinu. Skoðun 16. desember 2011 06:00
Miskunn, vorkunn og verslun Nú líður að þeim tíma ársins þegar margir sjá ástæðu til að fara til útlanda að kaupa föt og annað drasl og aðrir sjá ástæðu til að býsnast yfir því. Sumir telja að við verðum okkur til skammar með kaupgleði í H&M. Aðrir óttast að íslenskir kaupmenn séu að „verða af“ tekjum upp á hitt og þetta. Skoðun 9. desember 2011 06:00
Alveg klikk Það er ekki annað hægt en að vera hugsi yfir þeirri niðurstöðu tveggja norskra sálfræðinga um að Anders Breivik sé ekki fær um að svara til saka fyrir gjörðir sínar. Kannski ætti að varast að þykjast vitrari en þeir sem vit eiga að hafa. Kannski ætti líka að sýna því virðingu þegar menn virðast vinna vinnu sína í takt við lög og fræði en ekki almenningsálit. En það breytir því ekki að niðurstaðan og afleiðingar hennar hljóta að vekja okkur til umhugsunar. Fastir pennar 2. desember 2011 06:00
Íslenskt, nei takk Á Alþingi liggur nú fyrir frumvarp innanríkisráðherra um breytingar á áfengislögum sem kveður á um að bannað sé að auglýsa óáfenga drykki ef hægt er að ruglast á umbúðum þeirra og umbúðum áfengra drykkja. Í greinargerð frumvarpsins segir að stemma eigi stigu við leyndum áfengisauglýsingum og því sé verið að fylgja eftir upphaflegum tilgangi laga um bann við áfengisauglýsingum. Raunveruleikinn í fjölmiðlaumhverfi landsins sýnir þó að sá tilgangur hefur ekki náðst þar sem áfengisauglýsingar eru víða. Fyrirliggjandi frumvarp innanríkisráðherra mun hafa þar lítið að segja en mun hins vegar hafa auknar samkeppnishamlandi afleiðingar í för með sér. Skoðun 1. desember 2011 06:00
Af leikskólamálum Stundum er eins og fólk haldi að undir Ráðhúsi Reykjavíkur séu gullnámur sem hægt sé að ganga í þegar vantar peninga til að fjármagna eitthvað. Ég hef skoðað hvern krók og kima í Ráðhúsinu en þar er engar slíkar námur að finna. Reykjavíkurborg notar allar tekjur sínar til þess að greiða laun og halda úti þjónustu sem henni er ætlað að sinna. Skoðun 29. nóvember 2011 06:00
Þrýstikannað Fólki finnst oft forvitnilegt að vita hvað öðrum finnst. Margir taka meira að segja afstöðu í málum út frá því hvað þeir halda að öðrum finnist. Það vill enginn kjósa flokk sem enginn kýs, og fáir vilja panta mat sem fáir panta. Menn leita í hjörðina. Fastir pennar 25. nóvember 2011 06:00
Trúverðugir valkostir? Víða um heim blása sterkir vindar. Það er almennt ekki að sjá að hægriflokkum hafi reynst sá stormur erfiðari en öðrum, svo að tækifærin eru til staðar. Í þessu ástandi þarf að stýra ríkisfjármálum af skynsemi og nísku. Um leið þarf að byggja upp atvinnulífið með öflugu einkaframtaki en þó vonandi ríkari af reynslu seinustu ára. Fastir pennar 18. nóvember 2011 13:30
Skemmtilegri leikskólar? Í hádegisfréttum RÚV 8. nóvember tjáði borgarfulltrúi meirihlutans í Reykjavík sig um þá stöðu sem blasir við í málefnum leikskóla borgarinnar. Fyrr um daginn birtist fréttatilkynning frá Reykjavíkurborg um að verið væri að kanna hvort fjárhagur borgarinnar leyfði inntöku barna sem fædd voru 2010 í áföngum. Í kvöldfréttum sjónvarps 9. nóvember heyrðist loks í borgarstjóra og varaformanni skóla- og frístundaráðs. Allt var þetta vel æft, samhæfð viðbrögð og endurómun fréttatilkynningarinnar sem birtist á vef Reykjavíkurborgar. Sem sagt, eitthvað af tölum og útreikningum og fyrirslátturinn að verið sé að taka við stærsta árgangi Íslandsögunnar og ekki sé til nægilegt fjármagn til að setja í leikskólana. Ekkert þeirra (og fréttatilkynningin ekki heldur) gat hins vegar svarað spurningunni sem brennur á fólki með sannfærandi hætti. Af hverju má ekki bjóða börnum þau leikskólapláss sem þó eru laus? Skoðun 12. nóvember 2011 10:30
Engin þöggun á leikskólum í Reykjavík Engin óvissa ríkir um leikskólana í Reykjavík. Þeir eru vel reknir og þar starfar frábært fagfólk sem hefur náð miklum árangri í starfi og veitir mjög góða þjónustu. Þessi misserin er stórátak í gangi í leikskólastarfi í Reykjavík. Skoðun 12. nóvember 2011 06:00
Skuldastaða Reykjanesbæjar Að undanförnu hafa verið að birtast greinar um slæma skuldastöðu Reykjanesbæjar. Skoðun 12. nóvember 2011 06:00
Hlegið að nöfnum fólks Úrskurðir mannanafnanefndar vekja jafnan athygli og kátínu almennings. Algengustu viðbrögð manna eru annaðhvort „Hvað er fólkið í þessari nefnd eiginlega að spá?“ eða „Hver gerir barni sínu þetta?“ Fyrri spurningin byggir á vanþekkingu, sú síðari er réttlæting eineltis. Fastir pennar 11. nóvember 2011 06:00
Betri bæi Óbyggðir landsins eru okkur dýrmætar og mikilvægt að huga vel að því hvernig um þær er gengið. Þetta hefur mönnum orðið æ ljósara og hefur megináhersla umhverfisverndar á Íslandi snúist um víðernið. Það er þó ekki síst við skipulagningu þéttbýlis sem ná má árangri í umhverfisvernd. Skynsamleg þróun bæja getur skipt sköpum. Skoðun 7. nóvember 2011 06:00
Hagsmunaráðuneyti Ríkisendurskoðun gerði fyrr á þessu ári úttekt á útvistun opinberra verkefna til Bændasamtakanna. Niðurstöðurnar voru þær að samtökunum væri falið opinbert vald meðan fjárhagslegt og faglegt eftirlit á eftirfylgni samninga við þau skorti. Einnig var mælst til að stjórnvöld söfnuðu sínum eigin tölfræðiupplýsingum um landbúnað í stað þess að reiða sig á gögn hagsmunasamtaka. Fastir pennar 4. nóvember 2011 06:00
Vanræksla stjórnvalda í forvarnamálum! Nú berast fréttir af því að við Íslendingar séum orðin næst feitasta þjóð heims! Þetta eru sorglegar fréttir, sérstaklega þar sem þessi þróun hefur verið fyrirséð í langan tíma. Í ljósi þess setti ég sem ráðherra heilbrigðismála forvarnir í forgang. Ég fékk til liðs við mig fólk með yfirburðaþekkingu á sviðinu; Dr. Ingu Dóru Sigfúsdóttur, sem nú starfar sem prófessor við Columbia háskóla í New York, og Héðin Unnsteinsson, sem starfað hafði að stefnumótun hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um árabil. Byggt á nýjustu rannsóknum og í samráði við fjölmarga fagaðila á sviði forvarnamála, settu þau saman heildstæða stefnu sem tekur til hreyfingar, vímuvarna og geðverndar. Skoðun 2. nóvember 2011 06:00
Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun
Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun