Fella nokkur rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi hluta af rekstrarleyfi sem MAST gaf út í febrúar til Arctic Sea Farm fyrir sjókvíaeldi á þremur svæðum í Ísafjarðardjúpi, Arnarnesi, Kirkjusundi og Sandeyri. Leyfið í Arnarnesi og Kirkjusundi var afturkallað en stendur við Kirkjusund. Rekstrarleyfi til fiskeldis á öðrum þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi, Óshlíð, Eyjahlíð og Drangsvík, sem gefið var út til Arnarlax í maí síðastliðnum, var einnig afturkallað. Innlent 29. október 2024 18:47
„Aldrei gott að toppa of snemma“ Halla Hrund Logadóttir fyrrverandi forsetaframbjóðandi og oddviti Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi segir að af eigin reynslu sé ekki gott að toppa of snemma í kosningabaráttu. Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingar í sama kjördæmi segist ekki sjá merki um gremju í flokknum vegna ummæla formannsins um Dag B. Eggertsson. Þetta er meðal þess sem kom fram í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 28. október 2024 19:02
Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu Tveir menn sem voru um borð í smábát sem strandaði í utanverðum Súgandafirði í morgun voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttir til Suðureyrar í morgun. Báturinn situr enn fastur á strandstaðnum. Innlent 28. október 2024 09:25
Að leita langt yfir skammt Það var merkilegt að fylgjast með fréttum um þing ASÍ þar sem norskur hagfræðingur, Karen Ulltveit Moe, flutti erindi um skattheimtu á fiskeldi í Noregi. Í sjálfu sér var ekkert við erindið hennar að athuga, enda margt áhugavert sem þar kom fram. Skoðun 26. október 2024 08:02
Unbroken sótti hálfan milljarð og stefnir að skráningu innan fárra ára Íslenska sjávarlíftæknifélagið Unbroken, sem er meðal annars að stórum hluta í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur, hefur klárað hlutafjáraukningu upp á samtals hálfan milljarð króna í því skyni að efla alþjóðlega markaðssetningu á hinu „byltingarkennda“ fæðubótarefni. Virði félagsins í viðskiptunum er um 7,5 milljarðar en Unbroken fæðubótarefnið er núna selt til tuga landa. Innherji 25. október 2024 09:39
Útkall vegna slyss í fiskiskipi Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í loftið vegna slys á fiskiskipi í utanverðum Húnaflóa. Innlent 24. október 2024 19:38
Skipverjar urðu varir við eldinn þegar þeir voru í kaffi Eldur sem kom upp í vinnsluþilfari skipsins Jökuls ÞH 299 þann 17. júlí í fyrra, þegar skipið var statt um sextíu sjómílum norðaustur af Horni, var vegna viðgerðar þar sem verið var að rafsjóða. Glóð fór í svokallaðan burstakamb, og náði að krauma í hálftíma áður en eldurinn braust út. Á meðan voru skipverjar í kaffi. Innlent 23. október 2024 16:48
Aðaleigandi Geo Salmo fer fyrir ellefu milljarða fjárfestingafélagi Fjárfestingafélagið Bull Hill Capital, sem hagnaðist verulega fyrir fáeinum árum þegar erlendir fjárfestar keyptu Advania og síðar gagnavershluta fyrirtækisins, ræður yfir samtals um ellefu milljarða króna eignasafni hér á landi og er nánast skuldlaust. Miðað við bókfært virði á litlum eftirstandandi hlut þess í Advania var upplýsingatæknifyrirtækið, sem hefur stækkað hratt undanfarin ár, verðmetið á nærri 300 milljarða um síðustu áramót. Innherji 22. október 2024 18:04
Efnið tralopyril veldur eitrun í kræklingi Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, segir umsókn Arctic Fish um að fá að nota efnið tralopyril á möskva sína í sjókvíum lýsa algjöru skeytingarleysi gagnvart umhverfinu, þar komist eitt og aðeins eitt að sem er hámörkun gróða. Innlent 22. október 2024 11:09
Vá! Við hjá VÁ, félagi um vernd fjarðar á Seyðisfirði höfum síðastliðin fjögur ár barist gegn áformum Kaldvíkur (áður Ice Fish Farm og þar áður Fiskeldi Austfjarða) um 10.000 tonna sjókvíaeldi í firðinum, sem er ekkert annað en stóriðja. Skoðun 18. október 2024 17:01
Helgi hættur á Heimildinni Helgi Seljan er einhver þekktasti blaðamaður landsins, margverðlaunaður en hann hefur staðið í ströngu nú í tuttugu ár við að fjalla um stærstu mál samtímans. Nú er það búið. Í bili að minnsta kosti. Helgi hefur ákveðið að henda blaðamannahatti sínum inn í skáp og horfir jafnvel til hafs. Innlent 18. október 2024 15:41
„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar. Innlent 17. október 2024 07:02
Jens Garðar vill oddvitasætið Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Hann er aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtæksisins Kaldvíkur. Njáll Trausti Friðbertsson leiddi lista Sjálfstæðismanna í kjördæminu í síðustu kosningum. Innlent 16. október 2024 11:23
Að draga línu í sjóinn – segjum nei við sjókvíaeldi Í fjögur ár hefur verið ljóst að meirihluti íbúa Seyðisfjarðar er andvígur sjókvíaeldi í firðinum. Árið 2023 mældist sú andstaða 75 prósent í skoðanakönnun Múlaþings. Þessi andstaða hefur verið virt að vettugi, að mati Seyðfirðinga. Skoðun 12. október 2024 06:31
Orkuskipti við hafnir á Norðurlandi eystra Stjórnvöld stefna að fullum orkuskiptum og jarðefnalausu Íslandi fyrir árið 2040. Það er ærið verkefni. Orkuskipti í fólksbílaflota landmanna eru þegar á þokkalegu skriði, en orkuskipti í haftengdri starfsemi eru talsvert skemur á veg komin, þó nokkur gróska sé í þeim efnum víða. Þótt stjórnvöld hafi lagt fram heildarmyndina um samdrátt í losun og þar með olíunotkun, vantar talsvert uppá svæðisbundna umræðu um þessi málefni. Skoðun 10. október 2024 14:30
Seldi nærri þriðjungshlut af makrílkvóta sínum með um 2,5 milljarða hagnaði Huginn í Vestmannaeyjum, dótturfélag Vinnslustöðvarinnar, seldi frá sér tæplega þriðjung af öllum aflaheimildum sínum í makríl fyrir samtals um 2,5 milljarða sem skýrði nánast allan hagnað útgerðarfyrirtækisins á liðnu ári. Á meðal þeirra sem keyptu aflaheimildirnar var sjávarútvegsfélagið Brim en verulega hefur dregið úr útbreiðslu makríls í íslenskri landhelgi að undanförnu samkvæmt mælingum. Innherji 9. október 2024 17:37
Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum. Innherji 8. október 2024 19:50
Smábátar eru þjóðhagslega hagkvæmari en togarar Í gær birti Hagstofa Íslands frétt þar sem fram kemur að strandveiðiflotinn sló enn eitt metið í aflaverðmætum og skilaði rúmlega 5 milljörðum inn í hagkerfið. Skoðun 4. október 2024 14:01
„Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Framkvæmdastjóri laxavinnslu hjá Arctic Fish í Bolungarvík segir öndunarfærasjúkdóma líkt og „laxaastma“ vera raunverulegt vandamál í sjávarútvegi sem forsvarsmenn fyrirtækisins taki alvarlega. Hann segir að í sláturhúsi fyrirtækisins sé heilsa og vellíðan starfsmanna í fyrirrúmi. Innlent 4. október 2024 10:31
Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Dæmi eru um að alvarlegir öndunarfærasjúkdómar hafi gert vart við sig hjá starfsfólki sem vinnur við slátrun og pökkun á eldislaxi í Noregi. Fyrirbrigðið hefur hlotið viðurnefnið „laxaastmi“ og hlýst af því þegar andað er að sér vatnsúða sem inniheldur örsmáar agnir af laxaholdi, bakteríum og aðra vessa úr laxinum. Framkvæmdastjóri eldisins segir astma tengdan vinnu þekkt vandamál í fleiri geirum. Erlent 3. október 2024 07:00
Laxalús og varnir gegn henni Um langan tíma hef ég eytt stundum mínum í hugleiðingar um hvernig má ná betri árangri með breyttum aðferðum á þekktum vandamálum. Það allt var gert í væntingum um betra líf og hamingju sem hvorugt hefur ræst. Skoðun 27. september 2024 16:02
Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Fiskistofa braut persónuverndarlög með því að taka upp myndbönd af tveimur veiðiferðum fiskiskips með dróna. Reglur um opinber skjalasöfn koma þó í veg fyrir að Fiskistofa megi eyða myndböndunum. Innlent 27. september 2024 11:18
Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Fisksjúkdómanefnd hefur mælt með að fiskeldisfyrirtækin fyrir vestan fái að nota eitur til að eiga við laxalús. Þorvaldur H. Þórðarson yfirdýralæknir segir menn ekki vilja sjá stöðu sem uppi var í fyrra og lúsinni fjölgi. Innlent 27. september 2024 11:11
Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Í byrjun mánaðar varð strok laxfiska úr landeldisstöð Háafells á Nauteyri við Ísafjarðardjúp. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Innlent 27. september 2024 09:58
Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Arnþór Gústavsson í nýtt starf innan fyrirtækisins en hann fer úr starfi gæðastjóra yfir í að stýra ferskvatnseldi félagsins. Viðskipti innlent 27. september 2024 08:42
Aftur til fortíðar Íslenskur sjávarútvegur hefur náð markverðum árangri í að draga úr kolefnisfótspori sínu á undanförnum áratugum. Margir samverkandi þættir skýra þann árangur en einn sá stærsti er raforkuvæðing fiskimjölsverksmiðja. Skoðun 26. september 2024 08:31
Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu. Innlent 24. september 2024 08:53
Trúverðugleiki til sölu! Veiðigjald veikir sjávarútveg!!Marga rak í rogastans nú í vikubyrjun er ofangreind fyrirsögn um veiðigjöld blasti við okkur í Morgunblaðinu í kjölfar birtingar nýrrar skýrslu virtra hagfræðinga. Skoðun 14. september 2024 13:01
Fiskeldi í Fjallabyggð eins og þruma úr heiðskíru lofti Kleifar fiskeldi áformar að hefja fiskeldi í Fjallabyggð. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins þann 4.september síðastliðinn á að koma upp eldi á ófrjóum laxi í Fjallabyggð og er áformað að framleiðslugeta eldisins verði 20 þúsund tonn árlega. Skoðun 13. september 2024 09:33
Bjarkey undir árvökulu auga þungavigtar Sjálfstæðisflokks Athyglisverðar mannabreytingar eru í nefndum Alþingis. Vart verður hjá því komist telja Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sérstaklega útsetta fyrir því að fá þungavigtaraðhald frá sínu eigin fólki í stjórnarliðinu. Innlent 12. september 2024 14:12