Innlent

Kynntu breytingar á lögum um veiði­gjald

Atli Ísleifsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra munu kynna breytingarnar á blaðamannafundi sem hefst klukkan 13.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra munu kynna breytingarnar á blaðamannafundi sem hefst klukkan 13. Vísir

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra munu kynna breytingar á lögum um veiðigjald á fréttamannafundi sem hefst 13.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu í spilara að neðan. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða kynntar breytingar sem fela í sér umtalsverða hækkun á veiðigjöldum, en ráðherrar gáfu ekki kost á viðtali um málið nú fyrir hádegi.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem dreift var þegar ríkisstjórnin hafði verið mynduð rétt fyrir jól, var boðað að ráðist yrði í mótun auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld, sem renni að hluta til nærsamfélags, og að ríkisstjórnin muni hafa forgöngu um að samþykkt verði ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir í þjóðareign.

Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sem gefin var út í febrúar var boðað að í mars kæmi fram frumvarp frá atvinnuvegaráðherra til laga um breytingu á lögum um veiðgjald. Þar segir þó aðeins að með frumvarpinu séu lagðar til breytingar á veiðigjaldi.

Í yfirlýsingu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi sem barst rétt fyrir fréttir segir að ríkisstjórnin muni kynna tvöföldun á veiðigjöldum. Framkvæmdastjórinn segir samtökin hafa fegið kynningu á hugmyndum stjórnvalda á dögunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×