Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Það kemur á óvart að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar sé ekki meira afgerandi um aðgerðir í velferðarmálum miðað við þær áherslur sem flokkarnir héldu á lofti fyrir kosningar. Tvö risavaxin mál er hins vegar að finna í sáttmálanum, annars vegar um auðlindir og hins vegar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 22.12.2024 21:47
Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglum um strandveiðar fela í sér margt annað en að auka kvóta. Hún átti í snörpum orðaskiptum við þáttarstjórnanda á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun varðandi áform ríkisstjórnarinnar í strandveiðum. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé ekki að fullu útfært í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og gefur ekki upp hversu mikil boðuð hækkun auðlindagjalda eigi að vera. Innlent 22.12.2024 19:08
Engin breyting á hvalveiðileyfi því það sé glænýtt Starfandi matvælaráðherra segir nauðsynlegt að Hvalur hf. hafi fyrirsjáanleika í rekstri og því hafi hann gefið út fimm ára hvalveiðileyfi sem endurnýjast sjálfkrafa á hverju ári. Hann hafi ekki haft tíma til að taka ákvörðun fyrir kosningar. Óþarfi sé að bíða eftir niðurstöðu starfshóps sem rýnir lagaumgjörð hvalveiða áður en slík ákvörðun er tekin. Innlent 20.12.2024 19:02
Nýr ráðherra muni leita allra leiða til að ógilda leyfið „Þetta slær mig alveg hrikalega illa ef þetta er satt. Þetta er alveg með ólíkindum ef satt er. Vörn Bjarna byggðist öll á því þegar hann var gagnrýndur í fjölmiðlum að þetta væri allt hefðbundið, þetta væri bara það sama, þetta væri augljóst og hefði alltaf gerst hvort sem var.“ Innlent 17. desember 2024 20:28
Hvalveiðileyfið endurnýjast út í eitt Fimm ára veiðileyfi Hvals hf. endurnýjast sjálfkrafa árlega og getur því að óbreyttu verið í gildi í áraraðir. Sambærilegt ákvæði um endurnýjun hefur ekki verið í fyrri leyfisveitingum Hvals samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu. Innlent 17. desember 2024 18:26
Full ástæða til að ætla að það gæti orðið loðnuvertíð Fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun segir fulla ástæðu til að ætla að loðnuvertíð gæti orðið í vetur. Fyrsta leitarleiðangri vetrarins lauk í morgun. Viðskipti innlent 16. desember 2024 22:24
Fer úr Efstaleiti yfir til SFS Benedikt Sigurðsson sagði skilið við fréttastofu RÚV og hefur nú verið ráðinn aftur til starfa hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar starfaði hann áður sem upplýsingafulltrúi. Innlent 15. desember 2024 13:49
Mistókst að sanna lán og fær 20 milljónir ekki endurgreiddar Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi Sæmarks, fær 20 milljónir ekki greiddar frá Elísabetu Erlu Dungal, fyrrverandi viðskiptafélaga hans. Sigurður Gísli hélt því fram að um peningalán til hennar hafi verið að ræða, sem henni hafi borið að endurgreiða, en var ekki talinn hafa fært nægilegar sönnur fyrir því. Viðskipti innlent 13. desember 2024 22:45
Áfall fyrir andstæðinga sjókvíaeldis í Seyðisfirði Formaður VÁ, Félags um verndun fjarðar, segir tillögu MAST að rekstrarleyfi Kaldvíkur til fiskeldis í Seyðisfirði vera áfall fyrir alla sem hafa barist gegn áformunum. Hún segir þennan tímapunkt einstaklega vondan fyrir tillöguna, nú sé starfsstjórn og korter í jól. Hún kveðst handviss um að landsmenn standi með Seyðfirðingum. Innlent 13. desember 2024 13:07
Telja Seyðisfjörð þola tíu þúsund tonn af eldislaxi Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis Kaldvíkur hf. með allt að 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi. Hámark lífmassa af frjóum laxi má vera allt að 6.500 tonn. Tillagan byggir á matsskýrslu frá árinu 2020 um 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði. Innlent 13. desember 2024 09:42
Upplýsingaóreiða í boði ASÍ Í aðdraganda nýafstaðinna alþingiskosninga beindi ASÍ sjónum sérstaklega að auðlindagjaldtöku. Almennt má taka því fagnandi þegar hagaðilar láta sig svo mikilvæg mál varða og taka þátt í umræðu um þau. Sjónarmið öflugra samtaka launafólks hafa sannanlega mikla vigt í þessari umræðu. Það vakti hins vegar furðu að í áherslum ASÍ var farið vísvitandi með ósannindi. Rétt er að fara stuttlega yfir þau alvarlegustu. Skoðun 13. desember 2024 09:01
Smábátar bjóða betur! Það er kominn skjálfti í sægreifana. Þeir eru dauðhræddir um að skjaldborgin og varnarstaðan sem fráfarandi ríkisstjórn hefur veitt þeim hverfi og að ný ríkisstjórn kaupi ekki áróðurinn sem þeir dæla ógrynni af peningum í. Skoðun 12. desember 2024 15:32
Telur Kaldvík verulega vanmetið á markaði og útlit sé fyrir hraðan vöxt Ef rétt er haldið á spilunum eftir þá miklu uppbyggingu sem hefur verið í fiskeldi undanfarin áratug þá ætti Ísland, meðal annars vegna hægstæðs orkuverðs og aðgangs að nægu ferskvatni, að hafa samkeppnisforskot á helstu keppinauta í atvinnugreininni, að mati hlutabréfagreinenda, en hann verðmetur Kaldvík langt yfir núverandi markaðsgengi. Eftir miklar fjárfestingar hjá Kaldvík að undanförnu er útlit fyrir að framleitt magn á eldislaxi muni halda áfram að stóraukast á næsta ári sem eigi að skila sér í nærri tvöfalt meiri tekjum og verulega bættri rekstrarafkomu. Innherji 10. desember 2024 14:30
Kapp kaupir bandarískt félag Kapp ehf. hefur keypt meirihlutann í bandaríska félaginu Kami Tech Inc. í Seattle. Kami Tech framleiðir vélar og búnað úr ryðfrýju stáli og áli fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og matvælafyrirtæki á svæðinu og þjónustar fyrirtæki á borð við American Seafoods, Trident Seafoods og Golden Alaska Seafoods sem eru allt sameiginlegir viðskiptavinir með Kapp. Viðskipti innlent 10. desember 2024 13:33
Ráðamenn uggandi vegna væntanlegrar niðurstöðu starfshóps „Stefna ríkisstjórnarinnar er að skoða þessi mál heildstætt. Þess vegna var settur á fót starfshópur til að skoða sérstaklega löggjöfina í kringum hvalveiðar og þessi starfshópur hefur ekki skilað niðurstöðum sínum. Svo þetta ber svolítið keim af því að kannski eru menn stressaðir hverjar niðurstöðurnar verða, fyrst það liggur svona mikið á þessu. Síðan er þessi ákvörðun tekin í skugga þessarar uppljóstrunar. Það varpar ansi stórum skugga á þessa ákvörðun.“ Innlent 6. desember 2024 20:49
Hafró og Fiskistofa skiluðu umsögnum um hvalveiðar fyrir kosningar Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa skiluðu umsögnum sínum um hvalveiðar til matvælaráðuneytisins fyrir síðustu alþingiskosningar. Í leynilegum upptökum sem fréttastofa hefur undir höndum kemur fram að ef ekki næðist að gefa út hvalveiðileyfi fyrir kosningar væri vel hægt að gera það á meðan aðrir flokkar reyndu að mynda ríkisstjórn. Innlent 6. desember 2024 19:00
Spánverjar sólgnir í íslenskar gellur Samherji sendir nú ferskar gellur með flugi til Spánar, enda eykst eftirspurn eftir gellum þar í landi gríðarlega á aðventunni. Viðskipti innlent 6. desember 2024 15:14
Hætta rannsókn á kæru þriggja starfsmanna MAST um meinta mútuþægni Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur hætt rannsókn á kæru þriggja starfsmanna MAST vegna aðdróttana um mútuþægni í aðsendri grein á Vísi í sumar. Lögregla segir ólíklegt að málið hefði endað með refsiákvörðun vegna þess að enginn var nafngreindur í greininni. Opinberir starfsmenn þurfi að fara aðrar leiðir en dómsmeðferð við slíkar aðstæður. Innlent 6. desember 2024 14:10
Engin ástæða til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á sama grundvelli Bjarni Benediktsson forsætis- og matvælaráðherra segir ákvörðun um útgáfu hvalveiðileyfa ekkert annað en afgreiðslu í matvælaráðuneytinu. Verið sé að fylgja lögum. Engin ástæða sé til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á grundvelli sömu laga. Innlent 5. desember 2024 17:25
Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. Innlent 5. desember 2024 15:29
Stjórnmálamenn segjast styðja PPP-verkefni en meina „flestir ekkert með því“ Löggjöf frá 2020 sem átti að opna á meira en hundrað milljarða fjárfestingu í vegasamgöngum með samningum við einkaaðila hefur ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með, að sögn utanríkisráðherra, en þótt stjórnmálamenn segist iðulega vera jákvæðir á slík samvinnuverkefni stjórnvalda og fjárfesta þá meini „flestir ekkert með því.“ Framkvæmdastjóri hjá danska ráðgjafafyrirtækisins COWI, sem keypti nýlega Mannvit, tekur í sama streng og segir skorta á pólitískan vilja að styðja við slík fjárfestingaverkefni til að bæta úr bágbornu ástandi vegakerfisins hér á landi. Innherji 3. desember 2024 14:34
Umsóknir enn til meðferðar „á faglegum grunni“ Fjórar fyrirliggjandi umsóknir til veiða á langreyðum og hrefnu eru til meðferðar í matvælaráðuneytinu á „faglegum grunni“. Innlent 3. desember 2024 11:00
Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Landeldisfyrirtækið First Water hefur náð samkomulagi við Landsbankann og Arion banka um 80 milljón evra fjármögnun, sem samsvarar um 12 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 29. nóvember 2024 13:16
Er einhver að hlusta? Á morgun göngum við til kosninga og nýtum lýðræðislegan rétt okkar til að kjósa þá flokka sem spegla hvað best gildi okkar og það samfélag sem við viljum byggja upp. Forsenda þess að lýðræði virki er að almenningur taki þátt í kosningum og velji fulltrúa sína. Skoðun 29. nóvember 2024 12:32