HK og FH mætast í Símabikarnum Bikarkeppni HSÍ fékk nýtt nafn í hádeginu en nú verður keppt í Símabikarnum þar sem að Eimskip, sem hefur verið styrktarðili bikarkeppninnar síðustu ár hélt samstarfi við HSÍ ekki áfram. Dregið var um leið í 16 liða úrslitin hjá bæði körlum og konum. Handbolti 22. nóvember 2012 13:23
Níu sigrar í röð hjá Framkonum Framkonur héldu áfram sigurgöngu sinni í N1 deild kvenna í kvöld með 19 marka heimasigri á nýliðum Selfoss, 33-14, í Framhúsinu í Safamýri. Handbolti 16. nóvember 2012 21:55
HK upp að hlið FH HK-konur komust upp að hlið FH í 4. til 5. sæti N1 deildar kvenna í handbolta eftir fjögurra marka sigur á Gróttu, 23-19, á Seltjarnarnesi í kvöld. HK-konur náðu þarna að rífa sig upp eftir stórt tap á móti Íslandsmeisturum Vals á þriðjudaginn. Handbolti 16. nóvember 2012 20:38
Hrafnhildur reddaði skóm á allt landsliðið Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði Vals og íslenska kvennalandsliðsins, fer fyrir sínu liði jafnt innan sem utan vallar. Hrafnhildur og félagar hennar í landsliðinu eru að fara að keppa á sínu þriðja stórmóti í röð í næsta mánuði en það þurfti einkaframtak frá henni sjálfri til að útvega nýja skó á allar landsliðsstelpurnar. Handbolti 14. nóvember 2012 08:00
Áttundi stórsigur Valskvenna í röð - myndir Valskonur eru aftur komnar á topp N1 deildar kvenna í handbolta eftir 23 marka sigur á HK, 44-21, í Digranesi í kvöld en leikurinn var færður til vegna þátttöku Valsliðsins í Evrópukeppninni um síðustu helgi. Handbolti 13. nóvember 2012 21:13
Eins og draugar á fyrstu æfingunni Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og félagar hennar í kvennaliði Vals voru grátlega nálægt því að komast áfram í Evrópukeppninni um síðustu helgi þegar þær féllu út á móti rúmenska liðinu H.C. Zalau á færri mörkum skoruðum á útivelli. Handbolti 13. nóvember 2012 18:00
Guðrún Ósk ófrísk og ekki meira með í vetur Framkonur verða án aðalmarkvarðar síns það sem eftir er tímabilsins í kvennahandboltanum því Guðrún Ósk Maríasdóttir hefur þurft að draga sig í hlé eftir að í ljós kom að hún á von á barni með kærasta sínum Árna Birni Kristjánssyni. Guðrún Ósk er einn allra besti markvörður N1-deildarinnar og hefur verið í kringum A-landsliðið síðustu árin. Sport 13. nóvember 2012 07:00
Úrslit dagsins í N1-deild kvenna ÍBV komst upp í annað sæti í N1-deild kvenna eftir öruggan sigur á Fylki. Þrír leikir fóru fram í deildinni í dag. Handbolti 10. nóvember 2012 15:55
Florentina ætlar að sækja um ríkisborgararétt Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, ætlar að sækja um íslenska ríkisborgararétt. Það kom fram í kvöldfréttum Rúv í gær. Handbolti 9. nóvember 2012 09:23
Þær eru ógeðslega stórar Íslandsmeistarar Vals í kvennahandboltanum fá stórt próf í kvöld og á morgun þegar rúmenska liðið H.C. Zalau mætir á Hlíðarenda og spilar tvo leiki í 2. umferð EHF-bikarsins. Handbolti 9. nóvember 2012 06:00
Sigur hjá ÍBV í Eyjum ÍBV festi stöðu sína í þriðja sæti N1-deildar kvenna í kvöld er liðið vann fjögurra marka sigur, 28-24, gegn Haukum í Vestmannaeyjum. Handbolti 7. nóvember 2012 20:11
Úrslit kvöldsins í N1-deild kvenna Fjórir leikir fóru fram í N1-deild kvenna í kvöld. Sem fyrr unnu Valur og Fram örugga sigra á andstæðingum sínum. Handbolti 6. nóvember 2012 21:56
Eyjakonur fyrstar til að vinna í Digranesinu í vetur Eyjakonur unnu sinn fjórða sigur í röð í N1 deild kvenna í dag þegar þær sóttu tvö stig í Digranes. ÍBV vann 35-30 sigur á heimastúlkum í HK sem höfðu fyrir leikinn unnið alla heimaleiki vetrarins. Handbolti 3. nóvember 2012 17:31
Fram og Valur safna áfram stórsigrum Fram og Valur eru áfram með fullt hús á toppi N1 deildar kvenna í handbolta eftir stórsigra í dag. Fram hefur unnið alla sjö leiki sína en Valskonur hafa unnið alla sex leiki sína. Það er ekki búist við að liðin tapi stigum fyrr en þau mætast innbyrðis í fyrsta sinn en það verður ekki fyrr en eftir áramót. Handbolti 3. nóvember 2012 15:50
ÍBV í þriðja sætið - Öll úrslit kvöldsins Heil umferð fór fram í N1-deild kvenna í kvöld. ÍBV er komið upp á þriðja sæti deildarinnar eftir sigur á FH en Fram er eitt á toppi deildarinnar. Handbolti 30. október 2012 21:22
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 23-26 Fram er enn taplaust á toppi N1 deildar kvenna eftir þriggja marka sigur á Stjörnunni á útivelli 26-23. Jafnt var í hálfleik 13-13 en Fram náði mest fimm marka forystu eftir hlé og vann nokkuð öruggan sigur. Handbolti 30. október 2012 19:00
Úrslit dagsins í N1-deild kvenna Topplið Vals og Fram unnu bæði örugga sigra í N1-deildinni í dag. Þau eru sem fyrr efst og jöfn með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Handbolti 27. október 2012 17:05
Mömmurnar elda ofan í stelpurnar fyrir leik Fram-stelpur eru brattar fyrir leikina gegn Tertnes í Evrópukeppni félagsliða um helgina en þeir fara fram í dag og á morgun klukkan 16.00. Báðir leikir fara fram í Safamýrinni. Handbolti 20. október 2012 07:30
Valur vann í Valencia Valsstúlkur gerðu sér lítið fyrir í kvöld og skelltu spænska liðinu Valencia, 27-22, í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-keppninnar í handknattleik. Handbolti 19. október 2012 20:10
Valskonur spila á Spáni í kvöld og á morgun Íslands- og bikarmeistarar Vals mæta um helgina spænska liðinu Valencia Aicequip í tveimur leikjum í 2. umferð EHF-bikars kvenna í handbolta. Handbolti 19. október 2012 16:00
Búin að brosa mikið þrátt fyrir stórt tap Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði um helgina sinn fyrsta leik síðan hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. Rakel Dögg skoraði 3 mörk í tapleik á móti Íslands- og bikarmeisturum Vals í N1-deild kvenna í Mýrinni. Rakel var ekki búin að vera með í þremur fyrstu leikjum Stjörnunnar á tímabilinu þar sem sjúkraþjálfarinn vildi að hún æfði á fullu í fimm til sex vikur fyrir fyrsta leik. Handbolti 15. október 2012 08:30
ÍBV keyrði yfir Aftureldingu í seinni hálfleik ÍBV vann öruggan sigur á Aftureldingu 28-17 í fjórðu umferð N1 deildar kvenna í dag. ÍBV var einu marki yfir í hálfleik 11-10 en sýndi mátt sinn í seinni hálfleik og vann öruggan sigur að lokum. Handbolti 14. október 2012 16:52
Rakel Dögg spilaði sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði í dag sinn fyrsta leik síðan að hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. Handbolti 13. október 2012 19:21
Valskonur tóku aftur toppsætið af Fram Íslands- og bikarmeistarar Vals eru komnar aftur á toppinn í N1 deild kvenna eftir 11 marka sigur á Stjörnunni í Mýrinni í dag, 32-21. Fram vann Fylki á fimmtudaginn og komst á toppinn en Valsliðið tók aftur toppsætið með þessum sigri. Handbolti 13. október 2012 16:10
Tveir sigrar í röð hjá bæði Haukum og FH Kvennalið Hauka í handboltanum fagnaði sigri á móti Gróttu í 4. umferð N1 deild kvenna í handbolta í dag. Haukaliðið tapaði illa á móti Val í fyrsta leik en hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína. FH-liðið sótti tvö stig á Selfoss og er einnig búið að vinna tvo leiki í röð. Handbolti 13. október 2012 16:00
Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld. Handbolti 13. október 2012 13:47
Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. Handbolti 13. október 2012 12:24
HSÍ færir bikarúrslitaleikina eftir að mótið er byrjað Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að færa bikarúrslitaleiki HSÍ frá 23. febrúar til 9.mars 2013 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. Bikarúrslitaleikurinn hefur farið fram í febrúar undanfarin ár en nú verður breyting á því. Handbolti 12. október 2012 18:15
Stórsigur Fram á Fylki Einn leikur fór fram í N1-deild kvenna í kvöld. Fram vann þá öruggan sigur á Fylkiskonum í Safamýrinni. Handbolti 11. október 2012 19:43
Stella fór á kostum í sigri á Noregi Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann nauman sigur, 23-22, á B-liði Noregs í vináttulandsleikí Osló í dag. Ísland leiddi í hálfleik, 14-10. Handbolti 6. október 2012 17:26
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti