Bjarki Már undir smásjánni hjá Medvedi Bjarki Már Elísson, leikmaður HK og landsliðsmaður í handbolta, er undir smásjánni hjá Rússneska stórliðinu Chekhovskiye Medvedi sem mætir einmitt Íslendingaliðinu Kiel í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Þetta kom fram hjá Herði Magnússyni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Handbolti 1. mars 2013 18:45
Miðstöð Boltavaktarinnar | N1-deild karla Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. Handbolti 28. febrúar 2013 19:15
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - HK 30-20 Haukar eru komnir aftur á sigurbraut í N1 deild karla í handbolta og fögnuðu í kvöld sínum þriðja sigri í röð þegar liðið vann tíu marka heimasigur á HK, 30-20. Haukar eru því áfram með sex stiga forskot á toppnum. Handbolti 28. febrúar 2013 19:00
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 29-30 | Áttundi sigur Fram í röð Valur tapaði enn einum leiknum í N1-deild karla í kvöld. Í þetta sinn fyrir sjóðheitum Frömurum sem hafa unnið átta deildarleiki í röð. Handbolti 28. febrúar 2013 11:11
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Afturelding 20-19 FH vann mikilvægan sigur á Aftureldingu 20-19 í Kaplakrika í kvöld en liðin náðu sér hvorugt almennilega á strik í leiknum. Afturelding fékk dauðafæri á lokasekúndum leiksins til að jafna metin en Daníel Freyr Andrésson varði hraðaupphlaup frá Benedikt Reyni Kristinssyni. Handbolti 28. febrúar 2013 11:07
Reynir Þór látinn fara - Konráð tekur við Aftureldingu Reynir Þór Reynisson er hættur sem þjálfari Aftureldingar í n1 deild karla í handbolta en Mosfellingar eru í næstneðsta sæti deildarinnar. Konráð Olavsson hefur verið ráðinn þjálfari Aftureldingar út leiktíðina en Hjörtur Arnarson mun halda àfram sem aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aftureldingu. Handbolti 27. febrúar 2013 20:08
Miðstöð Boltavaktarinnar | N1-deild karla Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. Handbolti 25. febrúar 2013 19:15
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Valur 25-23 ÍR-ingar unnu tveggja marka sigur á Val í Austurbergi í kvöld, 25-23, í 17. umferð N1 deildar karla í handbolta og stigu með því mikilvægt skref í átta að sæti í úrslitakeppninni. Valsmenn eru áfram í botnsæti deildarinnar. Handbolti 25. febrúar 2013 19:00
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Haukar 13-16 Það var engin hágæða sóknarleikur sem var boðið upp á í þriggja marka sigri Hauka á Aftureldingu, 16-13, á Varmá í kvöld í leik liðanna í 17. umferð N1 deildar karla í handbolta. Haukar náðu á ný sex stiga forskot á FH með þessum sigri þar sem að FH-ingar töpuðu fyrr í kvöld fyrir norðan. Handbolti 25. febrúar 2013 19:00
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri – FH 29-24 | Sigurganga FH á enda Akureyringar enduðu átta leikja sigurgöngu FH-inga í deildinni með því að vinna fimm marka sigur á FH, 29-24, í 17. umferð N1 deildar karla í handbolta í Höllinni á Akureyri í kvöld. Þetta var fyrsti deildarsigur Norðanmanna síðan í nóvember. Handbolti 25. febrúar 2013 18:15
Valur aftur einn á toppnum | Úrslit dagsins Valskonur endurheimtu tveggja stiga forystu á toppi N1-deildar kvenna með sigri á FH, 32-23, í dag. Alls fóru fjórir leikir fram í deildinni. Handbolti 23. febrúar 2013 15:48
Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 25-27 | Sjöundi sigur Fram í röð Fram sigraði HK 27-25 í N1 deild karla í handbolta í dag. Fram lagði grunninn að sigrinum með frábærri byrjun á seinni hálfleik og stóðst liðið áhlaup HK í lokin. Handbolti 23. febrúar 2013 00:01
Miðstöð Boltavaktarinnar | N1-deild karla Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. Handbolti 21. febrúar 2013 19:00
Frítt á leiki laugardagsins í Digranesi Boðið verður upp á svokallaðan tvíhöfða hjá handboltaliðum HK í íþróttahúsinu í Digranesi nú á laugardaginn. Handbolti 21. febrúar 2013 14:43
Umfjöllun og viðtöl: Valur - HK 26-26 Botnlið Vals í N1-deild karla nældi í mikilvægt stig er liðið spilaði við Íslandsmeistara HK. Handbolti 21. febrúar 2013 14:27
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Afturelding 31-12 Framarar niðurlægðu Mosfellinga er þeir komu í heimsókn í Safamýrina í kvöld. Ótrúlegir yfirburðir hjá Frömurum sem unnu stórsigur. Handbolti 21. febrúar 2013 14:25
Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍR 29-24 Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var með beina lýsingu frá viðureign FH og ÍR í N1-deild karla í handbolta. FH vann leikinn 29-24 eftir að staðan var jöfn 12-12 í hálfleik. Handbolti 21. febrúar 2013 14:23
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 24-20 | Taphrina Hauka á enda Haukar enduðu þriggja leikja taphrinu sína með sannfærandi fjögurra marka sigri á Akureyri, 24-20, í leik liðanna í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld í 16. umferð N1 deildar karla í handbolta. Sigur Hauka var öruggur þótt að liðið hafi aðeins misst niður gott forskot sitt í lokin. Handbolti 21. febrúar 2013 14:22
Arnar og Svavar dæma Íslendingaslag Dómaraparið Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson eru á leiðinni til Frakklands um næstu helgi þar sem þeir munu dæma Íslendingaslag í Evrópukeppninni. Handbolti 21. febrúar 2013 06:00
Patrekur framlengir við Austurríkismenn Austurríska handknattleikssambandið greinir frá því á heimasíðu sinni í dag að það sé búið að framlengja samning sinn við Patrek Jóhannesson til ársins 2015. Patrekur þjálfar karlalandslið Austurríkis. Handbolti 19. febrúar 2013 16:36
Sváfum á verðinum Eftir tíu sigurleiki í N1-deild karla í röð hafa Haukar skyndilega tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins, óttast ekki að liðið sé hrunið og segir að margt jákvætt hafi verið í gangi í síðasta leik þess. Handbolti 19. febrúar 2013 07:00
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - HK 30-28 Mosfellingar drógu Íslandsmeistarana fyrir alvöru niður í fallbaráttuna í N1 deild karla í handbolta með því að vinna tveggja marka sigur á HK, 30-28, í sveiflukenndum leik á Varmá í N1 deild karla í kvöld. Afturelding tryggði sér sigurinn með því að vinna síðustu sextán mínúturnar 13-7. Handbolti 17. febrúar 2013 16:30
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Valur 21-20 FH vann flottan sigur, 21-20, á Val í æsispennandi leik í N1-deild karla í handknattleik en leikurinn fór fram í Kaplakrika. Logi Geirsson var atkvæðamestur í liði FH með sex mörk. Handbolti 17. febrúar 2013 00:01
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - Akureyri 30-23 Framarar unnu í dag öruggan 7 marka sigur á Akureyringum í N1-deild karla. Eftir að hafa leitt allan leikinn kláraði góður sprettur heimamanna undir lokin leikinn. Handbolti 17. febrúar 2013 00:01
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Haukar 22-21 | Sturla með sigurmarkið úr víti eftir leiktímann Sturla Ásgeirsson var hetja ÍR þegar hann tryggði liði sínu 22-21 sigur á toppliði Hauka í N1 deild karla í handbolta í kvöld með marki úr vítakasti eftir að leiktíminn var liðinn. ÍR var einu marki yfir í hálfleik 11-10. Handbolti 17. febrúar 2013 00:01
Undanúrslitin klár í Símabikarnum Nú í hádeginu var dregið í undanúrslitum Símabikars karla og kvenna í handbolta en undanúrslitin verða nú spiluð í Laugardalshöllinni og um sömu helgi og bikarúrslitaleikirnir. Handbolti 15. febrúar 2013 12:14
Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Haukar 24-20 ÍR vann í kvöld Hauka, 24-20, í 8-liða úrslitum Símabikarsins í handknattleik en leikurinn fór fram í Austurberginu í Breiðholtinu. ÍR-ingar léku frábærlega í kvöld og náðu mest 10 marka forystu um miðjan síðari hálfleik. Liðið er því komið áfram í Bikarhelgina þann 8. , 9. og 10. mars þegar báðir undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn fara fram. Kristófer Fannar Guðmundsson varði 18 bolta fyrir heimamenn í leiknum. Handbolti 13. febrúar 2013 13:37
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - FH 30-26 Akureyri er komið í undanúrslit Símabikarsins eftir sannfærandi sigur á FH-ingum fyrir norðan. Handbolti 13. febrúar 2013 13:35
Fimmti bikarslagur Akureyrar og FH á fimm árum Akureyri tekur á móti sjóðheitum FH-ingum í átta liða úrslitum Símabikarsins í Höllinni á Akureyri í kvöld en í boði er sæti í fyrstu undanúrslitunum sem spiluð verða í Laugardalshöllinni. Handbolti 13. febrúar 2013 12:15
Ásbjörn og Einar Andri bestir - FH fékk fimm verðlaun FH-ingarnir Ásbjörn Friðriksson og Einar Andri Einarsson voru valdir bestir í umferðum átta til fjórtán í N1 deild karla í handbolta en verðlaunin voru afhent í dag. Ásbjörn var valinn besti leikmaðurinn en Einar Andri besti þjálfarinn. Handbolti 12. febrúar 2013 13:23