Keypti gallaðan kveikjara og fær 50 þúsund krónur Sölumaður sem seldi konu kveikjara á fimmtíu þúsund krónur ber að endurgreiða henni upphæð kveikjarans á þeim grundvelli að kveikjarinn reyndist gallaður eftir að hann hafði verið seldur. Neytendur 5. júní 2024 16:41
Landsvirkjun vann og neytendur borga brúsann Hæstiréttur hefur dæmt innheimtu Landsnets á svokölluðu aflgjaldi af framleiðendum raforku ólögmæta. Sama niðurstaða á neðri dómstigum gerði það að verkum að Landsnet færði aflgjaldið yfir á notendur raforku, neytendur. Neytendur 5. júní 2024 14:26
Reykjavík Marketing sektað vegna fullyrðinga um vörur frá Lifewave Neytendastofa hefur sektað fyrirtækið Reykjavík Marketing fyrir ósannaðar fullyrðingar um vörur seldar undir merkinu Lifewave, að því er fram kemur á vefsíðu stofnunarinnar. Neytendur 5. júní 2024 13:26
Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Kínverski netverslunarrisinn Temu sem hefur vaxið hratt í Evrópu mun sæta strangara eftirliti Evrópusambandsins á næstunni. Íslensk eftirlitsstofnun bættist í hóp bandarískra og evrópskra stofnana sem vara neytendur við vörum sem Temur selur. Viðskipti innlent 5. júní 2024 07:00
Lét bóna bílinn, lenti illa í því og fær 1,6 milljónir í bætur Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað fyrirtæki sem annast þrif á bílum til þess að greiða einstaklingi rétttæpar 1,6 milljónir króna í skaðabætur vegna bíls sem fór illa úr þrifum hjá fyrirtækinu. Neytendur 4. júní 2024 07:02
Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vill hvetja neytendur til að gæta varúðar við kaup á vörum frá netverslunum utan Evrópu sem auglýsa vörur á samfélagsmiðlum sem eru töluvert undir markaðsverði. Neytendur 3. júní 2024 11:38
Bæjarráð Fjarðabyggðar einnig á móti gjaldtöku á Egilsstaðavelli Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir fyrirhugaðri gjaldtöku Isavia á bílastæðum við Egilsstaðaflugvöll og segir um að ræða „landsbyggðarskatt“ og óhóflega hækkun á ferðakostnaði íbúa landsbyggðarinnar. Innlent 30. maí 2024 11:43
Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 30. maí 2024 10:09
Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Kínverskur netverslunarrisi hefur komið með slíku offorsi inn á markaðinn undanfarnar vikur að ekki þekkjast sambærilega dæmi í bransanum. Viðskipti með vörur frá Kína tvöfölduðust í apríl frá því sem var í fyrra hér á landi. Sérfræðingur í verslun varar við ódýrum vörum netrisans enda sé ekki allt sem sýnist. Viðskipti innlent 30. maí 2024 07:01
Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Alþýðusamband Íslands, ASÍ, segir verðmerkingar í Hagkaup óáreiðanlegar. Í einhverjum tilfellum séu tvær ólíkar verðmerkingar á sömu vöru í sömu verslun en slík dæmi finnist aðeins örsjaldan í öðrum verslunum. Í einu tilfelli hafi munurinn numið 260 krónum. Sektir hafi ekki dugað. ASÍ hvetur neytendur til að taka verðmerkingum í hillu í Hagkaup með fyrirvara. Viðskipti innlent 29. maí 2024 13:33
Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. Innlent 26. maí 2024 09:45
Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Framkvæmdastjóri Hagkaups segir áhyggjur af áformum um netsölu áfengis í verslun keðjunnar skiljanlegar að einhverju leyti. Þess vegna verði gerðar ítrustu kröfur til þeirra sem vilja versla þar áfengi, sem hann segir meiri en aðrir á áfengismarkaði geri. Viðskipti innlent 25. maí 2024 19:36
Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Fyrirhuguð sala Hagkaups á áfengi er stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar. Þetta segir forvarnarsérfræðingur sem telur verslunina þverbrjóta áfengislög. Innlent 24. maí 2024 20:30
Alþingi slátrar jafnræðisreglunni Þessa dagana stendur yfir útboð á tollkvóta til að flytja inn búvörur frá Evrópusambandinu. Tollkvótar eru takmarkað magn búvara, sem flytja má inn án tolla samkvæmt samningi Íslands og ESB frá 2015. Til að fá að flytja inn tollfrjálsa vöru þurfa innflytjendur að bjóða í kvótana og greiða fyrir þá svokallað útboðsgjald. Skoðun 24. maí 2024 13:16
Hægir á verðhækkunum matvöru Verðbólga í matvöruverslunum fer minnkandi það sem af er ári. Til marks um það hækkaði verðlag matvöru um 1,2 prósent milli mánaða, samanborið við 12,3 prósent árshækkun matvöruverð í maí á síðasta ári. Neytendur 23. maí 2024 22:40
„Gátum ekki setið og beðið endalaust“ Hagkaup áformar að hefja netverslun með áfengi í næsta mánuði. Forstjórinn viðurkennir að um grátt svæði sé að ræða lagalega séð, en segir fyrirtækið ekki hafa getað beðið „endalaust“ eftir því að verslun með áfengi verði leyfð alfarið. Neytendur 23. maí 2024 21:13
Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda EFTA dómstóllinn segir að orðalag í skilmálum lána þurfi að vera nægilega gagnsætt jafnvel þó það þyki málfræðilega skýrt og skiljanlegt. Skilmálarnir þurfi að vera skiljanlegir þannig að almennur neytandi sem teljist sæmilega vel upplýstur og athugull geti skilið aðferðina sem beitt er við ákvörðun um útlánsvexti. Viðskipti innlent 23. maí 2024 15:25
Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 29 prósent frá fyrra ári og hlutfall íbúða sem seldist á yfirverði hækkaði í öllum landshlutum í mars. Viðskipti innlent 23. maí 2024 06:50
Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Eigandi netsölu á áfengi gagnrýnir að forstjóri ÁTVR kenni netsölu um samdrátt í hagnaði verslunarinnar. Löngu tímabært sé að leggja ÁTVR niður, sem hafi einfaldlega lent undir á samkeppnismarkaði. Viðskipti innlent 18. maí 2024 21:00
Fleiri sniðgengu en ekki Fleiri slepptu því að horfa á keppniskvöld Íslands í Eurovision þriðjudagskvöldið 7. maí heldur en horfðu. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar Prósents en þar kemur fram að tæplega þriðjungur þjóðarinnar hafi horft á umrætt Eurovision kvöld. Lífið 14. maí 2024 11:26
Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Fjölmiðlanefnd hefur sektað Árvakur, fjölmiðlaveitu mbl.is, um 1,5 milljónir króna vegna ítrekaðra brota á lögum sem banna duldar auglýsingar. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa fengið fréttir skrifaðar um vörur sínar á mbl.is, án þess að tekið væri fram að um auglýsingu væri að ræða, eru Nói siríus, Hagkaup, MS og Te og kaffi. Neytendur 11. maí 2024 23:57
Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Apple hefur beðist afsökunar vegna auglýsingar sem hefur vakið mikla reiði. Um er að ræða auglýsingu fyrir nýjan iPad en hún sýnir pressu kremja ýmsa hluti á borð við bækur, hljóðfæri og aðrar táknmyndir listarinnar. Viðskipti erlent 10. maí 2024 08:17
Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Umfangsmikið netverslunarsvindl hefur verið rakið til Kína en um 800.000 Evrópubúar eru taldi hafa fallið fyrir því og deilt persónulegum upplýsingum í gegnum falskar vefsíður. Erlent 8. maí 2024 06:50
Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Aðgerðasinnar í Skotlandi mótmæla nú harðlega ákvörðun yfirvalda um að heimila fyrirtækjum í laxeldi að hætta að merkja vörur sínar sem „eldislax“. Erlent 7. maí 2024 07:14
Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 300 þúsund króna kortareikning, sem var til kominn vegna úttekta í brasilísku ríal. Þá þarf hann að greiða bankanum 400 þúsund krónur í málskostnað. Neytendur 3. maí 2024 11:44
Tölum um neytendamál! Neytendasamtökin efna til samtals um neytendamál við neytendur og sveitarstjórnir vítt og breitt um landið á næstu vikum. Samstarf 1. maí 2024 11:00
Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vonast til þess að hlutir úr dánarbúi foreldra sinna komi öðrum að góðum notum. Neikvæð þróun sé í grænni orku hér á landi og fyrirtæki þurfi að notast við olíu á ný vegna skorts á raforku. Neytendur 27. apríl 2024 15:00
Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum um hálft prósentustig. Á föstudaginn lækka innlánsvextir veltureikninga um allt að 0,85 prósentustig. Viðskipti innlent 24. apríl 2024 10:17
Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Tæplega helmingi Íslendinga finnst stundum í lagi að kaupa falsaðar vörur og eftirlíkingar. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu fyrir Hugverkastofu. Níu prósent landsmanna hafa keypt falsanir eða eftirlíkingar síðastliðna 12 mánuði, mest á erlendum vefsíðum. Karlar kaupa mest falsaða merkjavöru og íþróttaföt en konur gleraugu og skartgripi. Neytendur 22. apríl 2024 10:05
Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Á morgun verður hinn alþjóðlegi dagur jarðar haldinn og að því tilefni hefur Krónan ákveðið að bjóða öllum sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðiu ókeypis far. Neytendur 21. apríl 2024 12:30