NBA: Detroit kláraði Philadelphia Aðeins einn leikur fór fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en Detroit vann öruggan sigur á Philadelphia og tryggði sér þar með sæti í annarri umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 2. maí 2008 09:00
Cleveland 3-2 yfir gegn Washington Tveir leikir voru í úrslitakeppni NBA í nótt. Boston vann Atlanta á heimavelli sínum og komst í 3-2 í rimmunni. Boston þarf nú einn sigur í viðbót til að komast áfram. Washington vann Cleveland naumlega á útivelli og minnkaði muninn en Cleveland leiðir einvígið 3-2. Körfubolti 1. maí 2008 11:15
Avery Johnson rekinn frá Dallas Avery Johnson var í kvöld rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Dallas Mavericks í NBA deildinni, strax daginn eftir að liðið féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar - annað árið í röð. Körfubolti 30. apríl 2008 18:44
Atlanta-Boston beint á Sport á föstudagskvöldið Sjötti leikur Atlanta Hawks og Boston Celtics í úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á miðnætti á föstudagskvöldið. Fimmti leikur liðanna er á dagskrá í kvöld klukkan 0:30 og er sýndur beint á NBA TV rásinni. Körfubolti 30. apríl 2008 17:18
Pétur tekur við Grindavík Pétur Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta og tekur hann við starfinu af Igor Beljanski. Körfubolti 30. apríl 2008 10:15
NBA í nótt: Phoenix og Dallas úr leik Tímabilið er búið hjá þeim Shaquille O'Neal og Jason Kidd þar sem lið þeirra, Phoenix og Dallas, duttu úr leik í úrslitakeppninni í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 30. apríl 2008 09:42
Byron Scott kjörinn þjálfari ársins í NBA Byron Scott hjá New Orleans Hornets hefur verið kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Undir stjórn Scott náði Hornets besta árangri í sögu félagsins í vetur og vann einnig riðil sinn í fyrsta skipti í sögunni. Körfubolti 29. apríl 2008 17:09
Riley hættur og Brown til Charlotte Það er mikið að gerast í þjálfaramálunum NBA-deildarinnar þessa dagana. Pat Riley er hættur hjá Miami og Larry Brown hefur tekið við Charlotte. Körfubolti 29. apríl 2008 12:55
NBA: Lakers og Orlando áfram - Boston í vanda LA Lakers og Orlando Magic kláruðu sínar rimmur í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en Boston tapaði óvænt öðrum leiknum í röð fyrir Atlanta. Körfubolti 29. apríl 2008 09:07
NBA: Enn líf í Phoenix New Orleans og Cleveland eru á góðri leið með að komast í undanúrslit sinna deilda en Detroit og Phoenix héldu lífi í sínum rimmum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í gær og nótt. Körfubolti 28. apríl 2008 09:30
Fer Phoenix í sumarfrí í kvöld? Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld og í nótt í úrslitakeppni NBA deildarinnar og verður stórleikur Phoenix og San Antonio sýndur beint á NBA TV sjónvarpsrásinni klukkan 19:30. Körfubolti 27. apríl 2008 15:30
Atlanta lagði Boston Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi og í nótt. Boston Celtics tapaði óvænt fyrir Atlanta, en LA Lakers, Orlando og Utah eru komin í sterka stöðu gegn mótherjum sínum. Körfubolti 27. apríl 2008 13:33
Denver - LA Lakers beint á Stöð 2 Sport í kvöld Þriðji leikur Denver Nuggets og LA Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 21:25 í kvöld. Lakers vann fyrstu tvær viðureignir liðanna á heimavelli sínum en í kvöld eigast liðin við í Colorado. Körfubolti 26. apríl 2008 16:45
Vincent rekinn frá Bobcats Þjálfarinn Sam Vincent hefur verið látinn taka pokann sinn hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni eftir aðeins eitt ár í starfi. Gamla brýnið Lary Brown hefur þegar verið orðaður við starfið hjá Michael Jordan og félögum, en hann hætti forsetastöðu sinni hjá Philadelphia fyrir nokkru. Körfubolti 26. apríl 2008 15:00
Philadelphia burstaði Detroit - Phoenix í vondum málum Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt og þar mátti heldur betur sjá óvænt tíðindi. Philadelphia burstaði Detroit á heimavelli sínum, Dallas lagaði stöðu sína gegn New Orleans og Phoenix er komið í mjög vond mál gegn meisturum San Antonio. Körfubolti 26. apríl 2008 08:30
Mikið fjör í körfunni í nótt Það verður nóg um að vera í NBA deildinni í körfubolta í kvöld og þar af geta sjónvarpsáhorfendur fengið tvo leiki beint í æð í kvöld. Leikur Toronto og Orlando frá því í gærkvöld verður sýndur á Stöð 2 Sport skömmu fyrir miðnætti og þá verður bein útsending á NBA TV rásinni frá leik Philadelphia og Detroit klukkan 23:00. Körfubolti 25. apríl 2008 21:57
Pierce klár í slaginn með Boston Framherjinn Paul Pierce hjá Boston verður klár í slaginn annað kvöld þegar Boston sækir Atlanta heim í þriðja leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA. Körfubolti 25. apríl 2008 18:27
Houston, Orlando og Washington tóku við sér Þrír leikir voru í úrslitakeppni NBA í nótt. Í öllum þeim leikjum tókst liðinu sem var undir 2-0 í rimmunum að vinna og minnka því muninn í 2-1. Körfubolti 25. apríl 2008 09:18
Kobe Bryant fór á kostum í sigri Lakers Kobe Bryant átti sannkallaðan stjörnuleik fyrir Los Angeles Lakers sem vann Denver 122-107 í úrslitakeppni NBA í nótt. Hann skoraði 49 stig og átti 10 stoðsendingar. Körfubolti 24. apríl 2008 10:22
Þrjú lið komust í 2-0 í nótt New Orleans, San Antonio og Orlando unnu leiki sína í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og hafa öll komist í 2-0 í sínum einvígjum. Allir þrír leikirnir í nótt unnustu á heimavöllum. Körfubolti 23. apríl 2008 09:06
Kevin Garnett er varnarmaður ársins í NBA Framherjinn Kevin Garnett hjá Boston Celtics var í dag kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni. Varnarmaður ársins í fyrra, Marcus Camby hjá Denver, varð annar í kjörfinu og Shane Battier frá Houston þriðji. Körfubolti 22. apríl 2008 19:22
Skiles tekur við Bucks Scott Skiles, fyrrum þjálfari Chicago Bulls, hefur gert fjögurra ára samning við Milwaukee Bucks í NBA deildinni. Mikil uppstokkun hefur verið í herbúðum liðsins undanfarið og nýr framkvæmdastjóri lét það vera sitt fyrsta verk að reka þjálfarann og ráða nýjan í staðinn. Körfubolti 22. apríl 2008 17:38
Utah og Cleveland leiða 2-0 Tveir leikir voru í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir þá leiki eru það Cleveland Cavaliers og Utah Jazz sem eru komin í 2-0 í sínum einvígjum. Körfubolti 22. apríl 2008 09:00
NBA: Philadelphia skellti Detroit Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni í nótt. Óvæntustu úrslitin urðu í Detroit þar sem Philadelphia skellti heimamönnum 90-86 í fyrsta leik liðanna. Körfubolti 21. apríl 2008 09:42
NBA í nótt: San Antonio vann Phoenix í tvíframlengdum leik Úrslitakeppnin í NBA-deildinni fór af stað í gær og óhætt að segja að hún hafi byrjað með miklum stæl. Körfubolti 20. apríl 2008 12:29
Isiah Thomas rekinn úr þjálfarastól Knicks Isiah Thomas var í kvöld sagt upp störfum sem þjálfari New York Knicks í NBA deildinni. Loksins segja sumir. Thomas er þó ekki hættur störfum hjá félaginu. Körfubolti 18. apríl 2008 22:49
Sérfræðingar Stöðvar 2 spá í spilin í NBA Úrslitakeppnin í NBA hefst með látum annað kvöld. Vísir fékk sérfræðinga Stöðvar 2 Sport til að rýna í fyrstu umferðina, gefa sitt álit og spá fyrir um úrslit leikja. Körfubolti 18. apríl 2008 20:25
Eigendur samþykkja flutning Sonics Eigendur félaganna 30 í NBA deildinni gáfu í kvöld grænt ljós á að lið Seattle Supersonics yrði flutt til Oklahoma City. 28 af 30 eigendum lögðu blessun sína yfir flutninginn og því hefur þetta rótgróna félag færst ein skrefinu nær óhjákvæmilegum flutningi. Körfubolti 18. apríl 2008 20:10
Úrslitakeppnin hefst á morgun Úrslitakeppni NBA-deildarinnar hefst á morgun þegar fjórar af átta fyrstu rimmunum í fyrstu umferð keppninnar fara af stað. Körfubolti 18. apríl 2008 09:09
Chicago og Milwaukee reka þjálfarana Deildarkeppninni í NBA lauk í gærkvöldi og biðu tvö félaganna sem áttu lélega leiktíð ekki boðanna og ráku þjálfara sína. Körfubolti 17. apríl 2008 19:37