Meistararnir byrja með tilþrifum Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með tilþrifum í kvöld þegar liðið valtaði yfir Levski Sofia 5-0 á Nou Camp. Börsungar létu úrhellisregn ekki hafa áhrif á sig á heimavelli sínum og var sigur liðsins aldrei í hættu eftir að það náði forystu strax í upphafi. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann með Barcelona en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Fótbolti 12. september 2006 20:36
Eiður kominn inn í lið Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í lið Barcelona sem varamaður eftir um klukkustundar leik á Nou Camp, en Börsungar eru að valta yfir Levski Sofia 4-0. Úrhellisrigning hefur sett svip sinn á leikinn, en þeir Puyol og Eto´o skoruðu þriðja og fjórða mark liðsins í síðari hálfleik eftir að staðan var 2-0 í leikhléi. Fótbolti 12. september 2006 20:08
Barcelona yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Barcelona er að eiga náðugt kvöld í rigningunni á Nou Camp og hefur yfir 2-0 gegn Levski Sofia, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Werder Bremen og markalaust er hjá PSV og Liverpool í Hollandi. Fótbolti 12. september 2006 19:33
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti búlgörsku meisturunum Levski Sofia á Nou Camp í meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra, PSV - Liverpool er sýndur beint á Sýn og viðureign Chelsea og Werder Bremen er sýndur beint á Sýn Extra 2. Fótbolti 12. september 2006 18:34
Veislan hefst í kvöld Hin árlega veisla knattspyrnuáhugamanna hefst í kvöld þegar riðlakeppni meistaradeildarinnar hefst með látum. Sjónvarpsstöðin Sýn lætur sitt ekki eftir liggja á þeim bænum frekar en venjulega og verður með þrjár beinar útsendingar frá keppninni í kvöld. Þá verða þeir Guðni Bergs og Heimir Karls að sjálfssögðu á sínum stað og fara yfir stöðu mála í leikjum kvöldsins. Fótbolti 12. september 2006 14:45
Henry verður ekki með gegn Hamburg Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, verður ekki með liði sínu annað kvöld þegar það mætir Hamburg í mestaradeild Evrópu eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu. Unglingurinn Theo Walcott er aftur kominn í hóp Arsenal eftir að hafa verið hvíldur og þá er reiknað með að Julio Baptista verði í hópnum. Jens Lehmann snýr einnig aftur í lið Arsenal eftir að hafa tekið út leikbann. Fótbolti 12. september 2006 13:49
United vinnur Celtic Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og Glasgow Celtic, segist hafa grunað að liðin ættu eftir að mætast í meistaradeildinni í ár þegar hann hætti að leika með enska liðinu á sínum tíma. Keane telur að United muni fara með sigur af hólmi í "Baráttunni um Bretland" annað kvöld. Fótbolti 12. september 2006 13:45
Benitez mætir Koeman á ný Rafa Benitez, stjóri Liverpool, mun í kvöld reyna að forðast að tapa fyrir liði undir stjórn Ronald Koeman annað árið í röð í meistaradeildinni þegar Liverpool mætir PSV Eindhoven. Koeman stýrði liði Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið sló Liverpool úr keppni, en viðureign PSV og Liverpool í kvöld verður sýnd beint á Sýn. Fótbolti 12. september 2006 13:30
Inter Milan er með besta hóp í heimi Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag. Fótbolti 12. september 2006 12:45
Galatasaray spilar heimaleikina á Ólympíuleikvangnum Stuðningsmenn Liverpool munu eflaust fagna tíðindum sem bárust frá Tyrklandi í dag, þegar forráðamenn Galatasaray tilkynntu að liðið muni leika heimaleiki sína í meistaradeildinni á Ólympíuleikvangnum í Istanbul. Það var einmitt á þeim velli þar sem Liverpool tryggði sér sigurinn ótrúlega á AC Milan í úrslitum keppninnar í fyrra, en Liverpool er í riðli með Galatasaray, Bordeaux og PSV Eindhoven og mætir Galatasaray á útivelli í byrjun desember. Fótbolti 4. september 2006 22:00
Chelsea gæti átt eftir að sjá eftir sölunni á Eiði Smára Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona, segir að Chelsea eigi eftir að sjá eftir því að hafa selt Eið Smára Guðjohnsen og spáir því að ef til vill gæti Íslendingurinn knái átt eftir að reynast fyrrum félögum sínum erfiður þegar liðin mætast í meistaradeildinni enn einu sinni í næsta mánuði. Fótbolti 4. september 2006 17:46
Fínt að mæta Chelsea snemma Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segist fagna því að mæta Chelsea strax í fyrstu umferð meistaradeildar Evrópu, þar sem spænska liðið á titil að verja frá í fyrra. Þetta er þriðja árið í röð sem liðin etja kappi í keppninni og segir Ronaldinho að betra sé að mæta þeim í riðlakeppninni en í úrsláttarkeppninni í vor. Fótbolti 25. ágúst 2006 14:15
Við bregðumst stuðningsmönnum okkar ekki aftur Sir Alex Ferguson var ekkert að skafa af því í kvöld þegar hann var spurður um yfirlýst markmið Manchester United í riðlakeppni meistaradeildarinnar, en liðið hafnaði í riðli með Glasgow Celtic, Benfica og FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 24. ágúst 2006 23:34
Riðillinn verður erfiður en skemmtilegur Arsene Wenger á von á að Arsenal bíði erfitt en skemmtilegt verkefni í G-riðli meistaradeildar Evrópu í vetur þar sem liðið leikur ásamt Porto, CSKA Moskvu og Hamburg. Fótbolti 24. ágúst 2006 23:17
Vissi að við fengjum Barcelona Peter Kenyon segir að það hafi nánast legið í loftinu að Chelsea og Barcelona ættu eftir að mætast enn eina ferðina í dag, þegar dregið var í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. Hann skorar þó á menn að gleyma ekki hinum liðunum tveimur í A-riðlinum. Fótbolti 24. ágúst 2006 22:58
Ronaldinho valinn bestur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho var í dag kjörinn besti leikmaðurinn í meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, en tilkynnt var um valið um leið og dregið var í riðla fyrir keppnina í ár. Leikmenn Barcelona hirtu öll verðlaunin sem veitt voru í dag, nema verðlaunin fyrir besta markmanninn í meistaradeildinni sem féllu í hlut þýska markvarðarins Jens Lehmann hjá Arsenal. Fótbolti 24. ágúst 2006 16:57
Enn mætast Barcelona og Chelsea Nú rétt áðan var dregið í riðla í meistaradeild Evrópu. Englandsmeistarar Chelsea drógust í riðil með Evrópumeisturum Barcelona og því er ljóst að liðin mætast þriðja árið í röð í keppninni. Eiður Smári Guðjohnsen fær því ef til vill tækifæri til að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea á knattspyrnuvellinum fyrr en margan hefði grunað. Fótbolti 24. ágúst 2006 16:27
Arsenal í riðlakeppnina Arsenal tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu með því að leggja króatíska liðið Dynamo Zagreb 2-1 á heimavelli sínum. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því komið áfram samanlagt 5-1. Gestirnir komust í 1-0 í kvöld og hleyptu smá lífi í einvígið, en mörk frá Freddy Ljungberg og Mathieu Flamini tryggðu Arsenal öruggan sigur. Fótbolti 23. ágúst 2006 21:25
Arsenal undir í hálfleik Arsenal er undir 1-0 gegn Dynamo Zagreb þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því enn í ágætum málum með að komast áfram í riðlakeppnina. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 23. ágúst 2006 20:05
Arsenal - Dynamo Zagreb í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Arsenal og Dynamo Zagreb í forkeppni meistaradeildar Evrópu verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:55. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því í afar vænlegri stöðu fyrir heimaleikinn á Emirates-vellinum í kvöld, þar sem sæti í riðlakeppni meistaradeildarinnar er í húfi. Fótbolti 23. ágúst 2006 17:15
Mourinho afar óhress með styrkleikaflokkana Jose Mourinho, stjóri Englandsmeistara Chelsea, segist ekki skilja í því hvernig standi á því að Chelsea lendi í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verði í riðla í meistaradeild Evrópu á morgun, á meðan lið sem Chelsea hefur skotið aftur fyrir sig í deildinni heimafyrir síðustu tvö ár, eru í fyrsta styrkleikaflokki. Fótbolti 23. ágúst 2006 16:05
Maccabi er hörkulið Peter Crouch, hinn leggjalangi markaskorari Liverpool, sagði að leikmenn Maccabi Haifa hefðu ekki verið nein lömb að leika sér við eftir að liðin skildu jöfn í síðari leik sínum í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 22. ágúst 2006 21:30
Naumt hjá Liverpool Liverpool er komið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við ísraelska liðið Maccabi Haifa á hlutlausum velli í Kænugarði í kvöld. Liverpool vann því samanlagt 3-2. Peter Crouch kom enska liðinu yfir á 54 mínútu með góðum skalla en ísraelska liðið svaraði aðeins örfáum mínútum síðar. Lengra komust Maccabi-menn þó ekki og Liverpool slapp með skrekkinn. Fótbolti 22. ágúst 2006 20:32
Crouch kemur Liverpool yfir Peter Crouch hefur komið Liverpool yfir 1-0 gegn Maccabi Haifa í leik liðanna í Kænugarði, en hann skoraði með skalla á 54. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Jermain Pennant. Liverpool er því komið í 3-1 samanlagt í einvígi liðanna og ætti að vera komið með annan fótinn áfram. Hægt er að fylgjast vel með stöðu mála í leikjum kvöldsins á úrslitaþjónustunni hér á Vísi. Fótbolti 22. ágúst 2006 19:47
Jafnt í hálfleik í Kænugarði Staðan í leik Maccabi Haifa og Liverpool er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar í Kænugarði. Þá hefur spænska liðið Osasuna yfir 1-0 gegn þýska liðinu Hamburger SV í sömu keppni og AC Milan náði forystunni snemma á útivelli gegn Rauðu Stjörnunni frá Belgrad. Fótbolti 22. ágúst 2006 19:36
Gerrard á bekknum hjá Liverpool Leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu hefst nú klukkan 18:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Steven Gerrard er á varamannabekknum hjá Liverpool í Kænugarði. Fótbolti 22. ágúst 2006 18:23
Benitez fékk að heyra það Liðsmenn Liverpool hafa ekki átt þægilegt ferðalag til Kænugarðs í Úkraínu í dag þar sem liðið mætir ísraelska liðinu Maccabi Haifa öðru sinni í forkeppni meistaradeildarinnar annað kvöld. Miklar tafir urðu á ferðalagi leikmanna Liverpool til Kænugarðs og þegar þangað kom, þurfti Rafael Benitez að sitja undir árásum ísraelskra blaðamanna sem kenndu honum um að leikurinn hefði verið færður á hlutlausan völl. Fótbolti 21. ágúst 2006 19:30
Liverpool og Haifa leika í Kænugarði Síðari leikur Liverpool og Maccabi Haifa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður leikinn í Kænugarði í Úkraínu vegna þeirrar ólgu sem ríkir í Ísrael um þessar mundir. Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í síðustu viku að leikurinn yrði spilaður á hlutlausum velli og hafa forráðamenn Dynamo Kiev nú boðist til að hýsa leikinn. Fótbolti 14. ágúst 2006 14:46
Liverpool hefur leik Liverpool er rétt í þessu að hefja leik í Meistaradeild Evrópu gegn Macabi Haifa á Anfield Road í Liverpool. Tveir af þeim nýju leikmönnum sem Liverpool fékk til liðs við sig fyrir keppnistímabilið eru í byrjunarliðinu, þeir Jermaine Pennant og Craig Bellamy. Leikurinn er í beinni á Sýn og VefTV. Fótbolti 9. ágúst 2006 19:14
Glórulaust að fara til Ísrael Rafa Benitez segir það glórulaust að ætlast til þess að lið Liverpool fari til Ísrael til að spila í forkeppni meistaradeildarinnar á þeim ófriðartímum sem geysa í landinu. Benitez hefur biðlað til stjórnar evrópska knattspyrnusambandsins að láta í sér heyra sem fyrst, því hann segist ekki eiga von á því að leikmenn sínir né stuðningsmenn vilji fara til lands að spila þar sem ástandið sé svo eldfimt. Fótbolti 28. júlí 2006 16:38