Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu. Innlent 27. desember 2021 21:31
Raforkuskortur gæti valdið 3,4% meiri losun Aðilar sem starfa í raforkugeiranum á Íslandi virðast ósammála um hvort raforkuskortur sé til staðar á Íslandi eða ekki. Skoðun 21. desember 2021 20:30
Áhöfn olíuskips á útopnu að þjóna loðnubræðslum Viðbótar olíuflutningar til loðnuverksmiðja til að mæta óvæntri raforkuskerðingu jafngilda farmi 550 olíubíla af stærstu gerð. Umferð olíutrukka á þjóðvegunum mun þó ekki aukast því eina olíuskip Íslendinga fer í verkefnið. Viðskipti innlent 18. desember 2021 22:44
Losunarmarkmið ríkisstjórnarinnar nær ekki til Evrópu Hlutdeild Íslands í sameiginlegu markmiði Evrópusambandsins og Noregs um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda verður talsvert lægra en 55% þrátt fyrir að kveðið sé á um 55% losunarmarkmið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Innlent 17. desember 2021 07:01
Kallaður Greta Thunberg fótboltans Norski knattspyrnumaðurinn Morten Thorsby valdi sér treyju númer 2 hjá Sampdoria til að minna á markmið um að hlýnun jarðar fari ekki yfir tvær gráður. Fótbolti 16. desember 2021 11:31
Grænlenska þingið samþykkir tvær nýjar vatnsaflsvirkjanir Grænlenska þingið hefur samþykkt gerð tveggja nýrra vatnsaflsvirkjana fyrir yfir sextíu milljarða íslenskra króna. Virkjanirnar eiga að verða tilbúnar eftir sjö ár. Með þeim eykst hlutfall endurnýjanlegrar orku í raforkuframleiðslu og húshitun Grænlendinga úr 70 prósentum upp í 90 prósent. Hlutfall olíu minnkar að sama skapi, sem og kolefnisspor Grænlands. Viðskipti erlent 15. desember 2021 22:22
Sögulega leiðinlegt þing í ár Salan á Íslandsbanka var stærsta pólitíska hitamál ársins 2021 að mati flestra sem fréttastofa ræddi við þegar farið var í upprifjun á afrekum þingsins fyrir annál. Það segir líklega sína sögu um hve tíðindalitlu og leiðinlegu ári er að ljúka fyrir áhugamenn um pólitík. Innlent 13. desember 2021 07:01
Orkustjórar í ritdeilu um raforkuskort Stjórnendur tveggja stærstu orkufyrirtækja landsins, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, eru komnir í opinbera ritdeilu á Vísi um raforkuskort í landinu. Þetta eru þeir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun. Bæði fyrirtækin eru alfarið í opinberri eigu; Landsvirkjun í eigu ríkisins en Orkuveitan að mestu í eigu Reykjavíkurborgar. Viðskipti innlent 11. desember 2021 14:28
Íslenska olíuleitarfélagið Eykon Energy lagt niður Eykon Energy ehf., það íslenska félag sem lengst stóð að olíuleit á Drekasvæðinu, er hætt starfsemi. Eigendur þess ákváðu í mars á þessu ári að slíta félaginu. Viðskipti innlent 9. desember 2021 13:26
Segir sorglegt að loðnubræðslur þurfi að skipta úr raforku í olíu Fulltrúi fiskimjölsiðnaðarins segir það áfall og sorglegt að loðnubræðslur þurfi núna að skipta yfir í olíu í stað rafmagns. Málið var rætt í ríkisstjórn í morgun. Innlent 7. desember 2021 21:41
Segir raforkuskerðingu mikið áfall í upphafi loðnuvertíðar Ákvörðun Landsvirkjunar um að skerðing raforku til loðnuverksmiðja taki strax gildi er mikið áfall, að sögn formanns Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda, sem segir þetta þýða óhemju notkun á olíu. Tilkynningin kom sama dag og loðnuvertíðin hófst fyrir alvöru. Viðskipti innlent 7. desember 2021 12:16
Nagladekkjafrumvarpið ógurlega – um hvað snýst það eiginlega? Ég og fleiri þingmenn höfum lagt fram lagafrumvarp þar sem stigin eru varfærnisleg skref til að sporna gegn óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli. Hér eru nokkur atriði sem rétt er að hafa í huga þegar fjallað er um málið. Skoðun 7. desember 2021 08:02
Gjöld á borgarbúa gætu verið stóra lausnin Um 40% ökutækja í Reykjavík eru á negldum dekkjum en þegar minnst lét voru þau rúm 20%. Nú vill Samfylkingin snúa þróuninni við með gjaldtöku. Innlent 6. desember 2021 22:00
Hetjur norðurslóða verðlaunuð í Frakklandi Ragnar Axelsson ljósmyndari var verðlaunaður fyrir bók sína Hetjur norðurslóða af franska tímaritinu Le Monde de la Photo. Bókin var valin besta ljósmyndabókin, það besta sem í boði er þetta árið. Menning 3. desember 2021 15:33
Kolefnistækifæri (og -áhætta) fyrir Ísland Þann 14. október birtist grein eftir höfunda sem varpaði fram spurningunni: „Hvort kolefnismarkaðir gætu bjargað loftlagsmarkmiðum Íslands?“ Niðurstaða greinarinnar var að slíkt væri vissulega möguleiki og var sú skoðun byggð á fyrirheitum um árangur á loftslagsráðstefnu SÞ í Glasgow (COP26) sem lauk 12. nóvember sl. Skoðun 2. desember 2021 12:30
Reikna með óvenjuhlýjum vetri á norðurskautinu vegna áhrifa La niña Reiknilíkön benda til þess að óvenjuhlýr vetur verði nyrst og norðaustast á norðurskautinu og í Asíu vegna La niña-veðurfyrirbrigðisins í Kyrrahafi. Þó að La niña tengist yfirleitt tímabundinni lækkun meðalhita jarðar er reiknað með að hiti verði víða yfir meðaltali vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Erlent 30. nóvember 2021 23:20
Batnandi jörð er best að lifa Gullna reglan? Hana þekkjum við öll sama hverrar trúar við erum, vorum eða verðum: Komdu fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig. Í rauninni bara vertu næs. Öll reynum við nú eftir fremsta megni að vera það, leyfi ég mér að fullyrða. Skoðun 30. nóvember 2021 14:00
Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út. Innlent 29. nóvember 2021 22:20
Furðar sig á að VG afhendi „íhaldinu“ umhverfis- og loftlagsmálin Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, furðar sig á að Vinstri græn skuli afhenda „íhaldinu“ umhverfis- og loftslagsmálin í nýrri ríkisstjórn. Þá gagnrýnir hún að flokkarnir fjölgi ráðuneytum, þvert á tillögu í rannsóknarskýrslu Alþingis um hrunið. Innlent 29. nóvember 2021 20:04
Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. Innlent 29. nóvember 2021 19:02
Hægri græn orka? Það hljóta allir að sjá að það er algjörlega út úr kú að sami ráðherra fari með umhverfis-/loftslagsmál og orkumál. Hagsmunir orkugeirans á Íslandi eru gríðarlegir og náttúran alltaf sett i annað sæti. Einfaldlega vegna þess að í orku- og stóriðjugeiranum liggja peningarnir - og lobbýismi staðalbúnaður. Skoðun 29. nóvember 2021 17:00
Uggandi yfir nýju fyrirkomulagi og kalla eftir skýrum aðgerðum Stjórn Landverndar fagnar markmiðum nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum en kallar eftir skýrari aðgerðum til að ná þeim. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila varðandi rammaáætlun þrjú sé stríðsyfirlýsing. Þá óttast Landvernd að sama ráðuneytið haldi utan um orkumál og náttúruvernd. Innlent 29. nóvember 2021 12:11
„Ég hef alltaf látið umhverfismál mig varða“ Guðlaugur Þór Þórðarson, fráfarandi utanríkisráðherra og nýr ráðherra umhverfis- og loftslagsmála, segist spenntur fyrir því að takast á við umhverfismál í sínu nýja ráðuneyti. Hann hafi reynslu af málaflokknum eftir utanríkisráðherratíð sína. Innlent 28. nóvember 2021 22:47
Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Loftslagsmál, heilbrigðismál og tæknibreytingar eru einna fyrirferðamestu málaflokkarnir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur var í dag. Miklum úrbótum er lofað í heilbrigðismálum þar sem skipa á faglega stjórn yfir Landspítalann að norrænni fyrirmynd. Innlent 28. nóvember 2021 14:07
Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. Erlent 25. nóvember 2021 14:21
Kelfing og bráðnun vegna sjávar aldrei meiri á Grænlandi Grænlandsjökull tapaði um 166 milljörðum tonna af ís frá september í fyrra til ágúst á þessu ári, tuttugasta og fimmta árið í röð sem jökullinn tapaði meiri ís en hann bætti við sig. Aldrei hefur verið meira massatap vegna kelfingar og bráðnun af völdum hlýsjávar en í ár. Erlent 25. nóvember 2021 09:14
Nokkrar ábyrgðarlausar hugleiðingar um síðasta fílinn á jörðinni Á Íslandi hefur veðrið verið vinsælt umræðuefni í gegnum aldirnar. Enda hafa verið hér stormar og slydduél og stundum hefur fólki fundist regnið rigna upp á við inn í nefið og skyldi engan furða. Skoðun 24. nóvember 2021 20:02
Kóralrifið í blóma eftir mikla fölnun Vísindamenn sem fylgjast með Kólalrifinu mikla undan ströndum Ástralíu fagna nú að það stendur í blóma eftir ítrekuð fölnunartímabil sem ógnuðu lífi stórs hluta þess. Hrygningartímabil hófst í gærkvöldi sem gæti staðið í tvo til þrjá daga. Erlent 24. nóvember 2021 15:00
Hringrás & HP Gámar kolefnisbinda starfsemina Samningurinn mun koma til með að kolefnisbinda alla starfsemi bifreiða- og vélarflota Hringrásar og HP Gáma. Samstarf 23. nóvember 2021 11:01
Sjálfbærni og hámörkun hagnaðar Almennt er litið svo á að hagsmunir hluthafa eigi að vera í forgangi við rekstur félaga og samkvæmt íslenskum lögum ber stjórn félags að tryggja þessa hagsmuni sem best. Önnur sjónarmið kunna að koma við sögu, svo sem jafnréttis- og umhverfissjónarmið, en hafa oft á tíðum þurft að lúta í lægra haldi fyrir markmiðinu um hámörkun hagnaðar hluthafa. Umræðan 22. nóvember 2021 14:00