Halla Tómasdóttir fyrir okkur unga fólkið 1.júní mun ég kjósa í fyrsta skipti forseta Íslands. Áhugi minn var lítill í upphafi þar sem ég hafði ekki sett mig inn í hvað hlutverk forseta er í raun en foreldrar mínir skoruðu á mig að kynna mér frambjóðendurna og mæltu sérstaklega með Höllu Tómasdóttur. Skoðun 27. maí 2024 16:00
Ætlar auðvaldinu loks að takast að ráða í forsetaembættið? Nú eru blikur á lofti. Samkvæmt skoðanakönnunum undanfarið þá verður það þó æ ljósara hvernig veður eru að skipast í lofti. Fjórir framjóðendur skera sig úr og hafa öll að einni undanskilinni á einhverjum tímapunkti skorað hæst í skoðanakönnunum frá því að baráttan hófst. Skoðun 27. maí 2024 15:45
Ég kýs Katrínu! Forsetakosningar eru ekkert þýðingarlaust léttmeti eins og sumir gefa í skyn. Mér finnst það stórmál hver velst í hlutverk forseta Íslands. Þó forsetinn sé valdalítill, þá er hann áhrifamikill. Hann er tákn og fulltrúi þjóðarinnar bæði inn á við og ekki síður út á við og hefur mikil áhrif á ímynd landsins meðal þjóða heims. Því er mikilvægt að í hlutverkið veljist einstaklingur sem við Íslendingar getum verið stolt af, hvar sem er og hvenær sem er. Skoðun 27. maí 2024 15:31
Hefur allt til brunns að bera Ég ákvað fyrir þessar forsetakosningar að kynna mér allar hliðar á öllum frambjóðendum, hlusta, lesa og skoða með opnum hug. Ég var ekki að rýna sérstaklega í þeirra persónulegu skoðanir heldur einfaldlega hæfni þeirra til þess að gegna forsetaembættinu. Skoðun 27. maí 2024 15:02
Brjótum heimsblað! Kosningabaráttan hefur verið býsna skemmtileg og bara nokkuð kærkomin þetta vorið, þar sem þjóðin varð af sínu árlega Júró-fári. Óneitanlega hefur þó eitt framboðið yfirskyggt umræðuna, enda í fyrsta sinn sem ráðherra sitjandi ríkisstjórnar fer í forsetaframboð. Skoðun 27. maí 2024 14:30
Kjósum forseta sem við treystum Nú styttist í að við fáum að kjósa okkur forseta. Það eru ekki sjálfgefin réttindi, þar sem lýðræði á víða um heim undir högg að sækja. Við þurfum að vanda valið og kjósa til forseta þann frambjóðanda sem við treystum best til að vera styrk stoð þegar á bjátar, sterkur málsvari þeirra gilda sem við sem þjóð teljum mikilvæg og talmaður þeirra á Íslandi og erlendis. Skoðun 27. maí 2024 14:16
Það skiptir máli hver er forseti landsins Forseti Íslands er fyrst og fremst sameiningartákn þjóðarinnar, manneskja sem við treystum til að tala máli þjóðarinnar allrar, ekki síst þeirra sem ekki hafa sterkustu röddina. Skoðun 27. maí 2024 14:01
Sjálfstæði eða fall? Þann 1. júní næstkomandi kjósum við okkur forseta. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn nauðsynlegt að velja í stólinn sterkan einstakling sem talar skýrt og óhikað um nauðsyn þess að koma í veg fyrir afsal íslenskra auðlinda. Skoðun 27. maí 2024 13:45
Afturbatapíka í skilgreiningu HKL Það þekkja eflaust margir til skilgreiningar Halldórs Kiljans á nafnorðinu afturbatapíka, en til upprifjunar fyrir þá sem ekki þekkja til er skilgreining hans á þá leið að stúlka, sem hefur látið fallerast, öðlist aftur meydóminn eftir sjö ára karlabindindi. Skoðun 27. maí 2024 12:30
Ástþór eyðir langmestu Ástþór Magnússon hefur eytt langmestu allra forsetaframbjóðenda í auglýsingar á samfélagsmiðlum síðustur níutíu daga, 7,8 milljónum króna. Næst á eftir honum er Halla Hrund Logadóttir með aðeins 520 þúsund krónur. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, er með flesta fylgjendur á Instagram, ríflega 36 þúsund, en Katrín Jakobsdóttir fylgir henni fast á hæla með ríflega 34 þúsund. Jón Gnarr er með flesta fylgjendur á Facebook. Innlent 27. maí 2024 12:14
Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana Mikill munur er á nýjustu könnun Prósents sem birt var í dag annars vegar og Maskínu og Gallups hins vegar sem birtar voru fyrir helgi. Framkvæmdastjóri Maskínu segir úrslit kosninga yfirleitt mjög nálægt niðurstöðum kannana. Innlent 27. maí 2024 12:02
Ó, vakna þú mín Þyrnirós! Ég er í raun mjög hissa á þeim fjölmörgu fylgjendum og yfirlýstum stöðföstu kjósendum fyrrverandi Forsætisráðherra, sem keppast um að mæra hana og tala um að hún hafi staðið sig svo vel í því hlutverki. En gerði hún það í raun og veru? Á hún skilið það traust sem hún leitast eftir til þess að verð næsti Forseti landsins? Skoðun 27. maí 2024 11:00
Kryddum tilveruna í skrautbúning Mér er minnisstæð mynd af Guðrúnu Katrínu þar sem hún situr í þjóðbúningnum eftir að Ólafur Ragnar var kosinn forseti, hún var einstök kona og við deilum því saman að vera ljón fæddar þann 12. og 14. ágúst. Þjóðbúningurinn hafði sterk áhrif á mig unga og nú í tilefni framboðsins langaði mig að prófa að klæðast honum. Skoðun 27. maí 2024 10:31
Hví Halla Hrund? – Skyldulesning! Þó að forseti Íslands hafi takmörkuð bein völd, er hann fulltrúi og ásýnd Íslands og Íslendinga gagnvart umheiminum. Hann á líka að vera sameiningarafl, og svo sameiningartákn, Íslendinga og fulltrúi þjóðarinnar gagnvart Alþingi, framkvæmdarvaldinu og erlendum þjóðum. Skoðun 27. maí 2024 08:29
Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkniefni og er alls ekki með nein húðflúr Jón Gnarr forsetaframbjóðandi segist elska sterkan mat. Hann hefur líklega manna mest að gera þessa dagana þar sem hann sinnir hundrað prósent vinnu og býður sig fram til forseta. Hann segir að sig hafi lengi dreymt um að eiga tvífara. Lífið 27. maí 2024 07:02
Höllurnar taka forystuna en aðeins hársbreidd á milli þeirra og Katrínar Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýrri könnun Prósents á fylgi forsetaframbjóðenda en afar litlu munar á henni og næstu tveimur. Innlent 27. maí 2024 06:33
Kosningalag: Örþrifaráð eða snilldarútspil? Frambjóðendur reyna hvað þeir geta til að vekja athygli á sér í aðdraganda kosninga, þegar baráttan fer að harðna. Ein leiðin er að gefa út lag. Tvö slík komu út í síðastliðinni viku en fleiri hafa komið út í gegnum tíðina, með mis góðum árangri. Sum eru ódauðleg en önnur hefðu kannski betur átt að haldast ósamin. Lífið 26. maí 2024 19:09
Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 26. maí 2024 19:00
Af hverju er Baldur mitt val Ég er alin upp við mjög opin skoðanaskipti og almennt heilbrigðar umræður um líðandi stund. Sjaldnast var það þannig að allir væru sammála en það er líka svo mikilvægt þegar maður vinnur að því að móta sínar eigin skoðanir en um leið bera virðingu fyrir öðrum skoðunum. Skoðun 26. maí 2024 17:01
Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Álitsgjafar segja spennandi kosningabaráttu fram undan nú þegar ein vika er eftir. Frambjóðendur muni þurfa hafa fyrir því að vinna Katrínu. Höllurnar séu að skipta um hlutverk. Þórhallur Gunnarsson, Viktor Orri Valgarðsson og Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir fóru yfir forsetakosningarnar og spáðu í spilin á Sprengisandi í dag. Innlent 26. maí 2024 12:42
Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. Innlent 26. maí 2024 09:45
Jákvæðni á Bessastöðum Ég bý í góðu og friðsömu landi þar sem lífskjör eru með því besta sem þekkist. Þannig vil ég hafa það áfram og ég hef enga trú á öðru en við Íslendingar stöndum vörð um þá stöðu. En hvers vegna berum við ekki alltaf höfuðið hátt, stolt og glöð yfir árangrinum og einbeitt að halda áfram á sömu braut? Skoðun 26. maí 2024 09:01
Ég styð Baldur sem næsta forseta! Ég var mjög ánægður með að Baldur Þórhallsson bauð sig fram til embættis forseta Íslands í komandi forsetakosningu. Í þeim kosningum eru margir hæfir frambjóðendur. Að mínu mati er Baldur sá frambjóðandi sem er hæfastur til að vera forseti og sameina þjóðina. Skoðun 26. maí 2024 08:01
Af vængjum fram: Ekki viss um að hann myndi þekkja lyktina af hassi Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segist ekki vera viss um að hann þekki hasslykt enn þann dag í dag. Hann segist aldrei taka verkjatöflur en er hrifinn af D-vítamíni. Þá er Arnar mikill sjósundskappi og hræðist ekki að taka umræðuna. Lífið 26. maí 2024 07:01
Forsetaáskorunin: Lærbraut sig út í móa og beið lengi eftir aðstoð Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 25. maí 2024 19:01
Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, Geir H. Haarde og Jóhanna Sigurðardóttir, hafa lýst yfir stuðningi við Höllu Hrund Logadóttur til embættis forseta Íslands. Innlent 25. maí 2024 18:59
Pólítísk aflúsun Þar sem ég er á laugardagsmorgni að renna yfir morgunfréttirnar á vefmiðlum landsins sé ég auglýsingu frá einum forsetaframbjóðandanum þar sem hann selur sig út á að hafa aldrei tengst pólitískum öflum. Mér finnst þetta athyglisverð leið til að ná athygli kjósenda og um leið örlítið sorglegt að hún skuli virka. En traustið til stjórnmálanna er laskað og því ekki óvænt að frambjóðandi í fylgisleit reyni að nýta sér það. Skoðun 25. maí 2024 18:30
Að vaxa inn í framtíðina Engin(n) er forsniðin(n) í forsetaembættið. Það er hægt að láta líta svo út, með fáguð svör á reiðum höndum, úr mælskukeppni stjórnmálabaráttunnar sem hefur þynningaráhrif á hugsunina, ellegar úr söluræðum viðskiptalífins sem setur mannlífi þröngar skorður. Það þarf að hyggja að því sem í fólki býr, því þar eru möguleikarnir og vísir að framtíðinni. Skoðun 25. maí 2024 18:01
Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Framkvæmdastjóri rannsóknafyrirtækisins Prósents segir að þrátt fyrir að boðið sé upp á að fólk skrái sig sjálft í könnunarhóp sem skoðanakannanir eru lagðar fyrir komist enginn þangað inn sjálfkrafa. Möguleikinn sé til staðar til að ná til hópa sem erfitt sé annars fá í hópinn. Innlent 25. maí 2024 15:30
Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Mývetningar eru margir hverjir afar ósáttir með tilætlaða framkvæmd forsetakosninga í Þingeyjarsveit. Aðeins einn kjörstaður verður í sveitinni og verður hann í Félagsheimilinu Breiðumýri nálægt Laugum. Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir, íbúi á svæðinu segir segir fólk ekki ánægt. Innlent 25. maí 2024 13:52