Sex á spítala vegna kórónuveirunnar og einn í öndunarvél Sex sjúklingar liggja nú inni á Landspítalanum vegna kórónuveirunnar en innlögnum fjölgaði um einn í dag. Innlent 29. september 2020 16:45
140 börn og kennarar þeirra í Kórahverfi í sóttkví Leikskólanum Baugi í Kórahverfi í Kópavogi hefur verið lokað út vikuna vegna smits sem kom upp á skólanum. Innlent 29. september 2020 16:42
Unglæknar krefjast endurbóta Unglæknar í Barcelona fjölmenntu á götum borgarinnar í dag. Þar mótmæltu hundruð lækna vinnuaðstöðu þeirra, álagi og kjörum á meðan þau berjast við aðra bylgju nýju kórónuveirunnar sem herjar nú á Spánverja. Erlent 29. september 2020 16:12
Opið bréf til menntamálaráðherra Covid-19 lætur engann ósnortinn og áhrifin á einstaklinga eru næstum jafn mismunandi og þeir eru margir. Skoðun 29. september 2020 16:00
Húsráð: Svona losnar þú við móðuna Grímunotkun er sannarlega að færast í aukana hér á landi og hefur verið mikil um heim allan síðustu mánuði. Lífið 29. september 2020 15:31
66 manns sagt upp hjá Hertz Öllu starfsfólki bílaleigunnar Hertz á Íslandi var sagt upp fyrir helgi. Var alls um 66 manns að ræða. Viðskipti innlent 29. september 2020 14:14
Faraldurinn í hægri rénun samkvæmt nýju spálíkani Daglegur fjöldi nýgreindra kórónuveirusmita verður líklega á bilinu 20 til 40 á dag næstu daga, samkvæmt nýju spálíkani um faraldurinn. Innlent 29. september 2020 14:12
Tíu leikskólabörn í sóttkví eftir smit í Flóanum Tíu nemendur á elstu deild leikskólans Krakkaborgar í Flóahreppi eru nú í sóttkví vegna samskipta við smitaðan einstakling í síðustu viku. Innlent 29. september 2020 13:15
Loka leikskólanum Baugi í Kópavogi vegna smits Leikskólanum Baugi í Kópavogi hefur verið lokað tímabundið og allir starfsmenn og börn send í sóttkví eftir að eitt kórónuveirusmit greindist þar. Foreldrar fengu upplýsingar um smitið og lokunina seint í gærkvöldi. Innlent 29. september 2020 12:04
Sótthreinsuðu verslun Hagkaups hátt og lágt eftir að smit kom upp Verslunarkeðjan Hagkaup greinir frá því að starfsmaður verslunarinnar í Spöng í Grafarvogi hafi greinst jákvæður með Covid-19 í gær. Viðskipti innlent 29. september 2020 11:19
32 greindust innanlands og tveir nú á gjörgæslu 32 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Innlent 29. september 2020 11:04
Lítill hluti þjóða beitir sér í þágu kvenna á tímum farsóttarinnar Aðeins eitt af hverjum átta ríkjum í heiminum hefur beitt sér sérstaklega fyrir því að vernda konur fyrir hættum sem aukist hafa á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Heimsmarkmiðin 29. september 2020 11:01
Dómsdagsspár vegna Afríku og Covid-19 rættust ekki Vísindamenn velta nú vöngum yfir því af hverju Afríka virðist hafa sloppið svo vel frá heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. Erlent 29. september 2020 09:59
Skráð dauðsföll vegna Covid-19 komin yfir eina milljón Tala látinna í kórónuveirufaraldrinum sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu mánuði er nú komin yfir eina milljón. Erlent 29. september 2020 06:37
„Við gerum okkar besta, en veiran stendur sig betur“ Hollendingar búa sig nú undir hertari aðgerðir vegna útbreiðslu veirunnar þar í landi. Íbúar í þremur stærstu borgum landsins þurfa frá og með deginum í dag að bera grímur í verslunum svo dæmi séu tekin. Erlent 28. september 2020 23:36
Aldrei fleiri smit greinst í ensku úrvalsdeildinni Samkvæmt nýjustu tölum ensku úrvalsdeildarinnar þá greindust tíu – leikmenn eða starfslið – með kórónuveiruna. Þríeykið hjá West Ham United er hluti af þessum tíu smitum. Enski boltinn 28. september 2020 21:30
Vann stórsigur í kosningum tveimur vikum eftir andlát sitt Ion Aliman hlaut 64% atkvæða í bæjarstjórnarkosningum í Deveselu í Rúmeníu, tveimur vikum eftir að hann lést. Erlent 28. september 2020 21:11
Aldrei fleiri á farsóttarhótelinu en nú Aldrei hafa fleiri dvalið á farshóttarhótelinu á Rauðarárstíg í Reykjavík. Innlent 28. september 2020 18:58
Skjótvirkari og ódýrari veirupróf fara senn í dreifingu Nýtt og háþróað kórónuveirupróf sem gefur niðurstöðu á innan við þrjátíu mínútum mun senn komast í dreifingu um heiminn. Erlent 28. september 2020 17:21
Eir lokað eftir að tveir íbúar greindust til viðbótar Tveir íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir greindust í gærkvöldi með kórónuveiruna. Innlent 28. september 2020 16:11
Íbúi í Vestmannaeyjum smitaður og níu í sóttkví Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna í Vestmannaeyjum. Innlent 28. september 2020 16:04
Landsmenn muni þurfa að viðhafa varúðarráðstafanir næstu mánuði Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til að grípa til hertra aðgerða vegna kórónuveirunnar að svo stöddu. Innlent 28. september 2020 15:35
Ósammála Birni um að hættan á loftsmiti hafi ekki fengið nægilegt vægi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kveðst ekki sammála Birni Birni, prófessor í stærðfræði við Kaliforníuháskóla, að hættan á loftsmiti fái ekki nægilegt vægi í umræðu um smitvarnir hér á landi. Innlent 28. september 2020 14:54
Fimm á sjúkrahúsi með Covid-19 Fimm liggja inni á Landspítalanum með Covid-19 og hefur þannig einn bæst í þann hóp síðan í gær. Innlent 28. september 2020 14:13
Utanríkisráðuneytið styrkir Barnaheill vegna COVID í Sýrlandi Utanríkisráðuneytið og Barnaheill – Save the Children á Íslandi veita fjármagni í viðbragðssjóð Save the Children International í Sýrlandi með áherslu á aðgerðir vegna COVID-19 heimsfaraldursins Heimsmarkmiðin 28. september 2020 14:11
Ekki aðeins ferðaþjónustukreppa Við undirritun Lífskjarasamnings í apríl 2019 var hagvaxtar að vænta á komandi árum og allt benti til þess að atvinnulífið gæti staðið undir þeim launahækkunum sem um var samið. Nú blasir við breyttur veruleiki. Skoðun 28. september 2020 13:55
Svona var 118. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglublundsins upplýsingafundar á mánudegi klukkan 14. Innlent 28. september 2020 13:22
Skipstjóranum létt þegar almannavarnir tóku yfir Útgerðarstjóri Þorbjarnar hf, sem gerir út línuskipið Valdimar GK, segir að skipstjóra Valdimars hafi létt mjög við skýra leiðsögn frá almannavörnum eftir að allir skipverjar um borð greindust með kórónuveiruna. Innlent 28. september 2020 12:54
„Allt of, allt of, allt of mörg dæmi um einstaklinga sem hafa verið veikir á ferðinni“ Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavörnum, virtist mikið niðri fyrir þegar hann brýndi fyrir fólki, í hádegisfréttum Bylgjunnar, að halda sig heima fái það einkenni Covid -19. Í raun ætti það að líta á það sem svo að það sé í einangrun. Innlent 28. september 2020 12:49
Tveir í sóttkví á Djúpavogi eftir að skipverjar fóru í land Tveir eru nú í sóttkví á Djúpavogi eftir að nokkrir skipverjar af línuskipinu Valdimar GK fóru í land í bænum þriðjudaginn 22. september. Innlent 28. september 2020 11:59