Vonandi ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið Sóttvarnalæknir vonar að fjöldi nýsmitaðra í gær sé ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið. Tillögur sóttvarnalæknis um veirutakmarkanir sem taka gildi í næstu viku eru í vinnslu. Innlent 7. janúar 2021 11:30
Ellefu greindust innanlands Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á sama degi síðan 22. desember, þegar tólf greindust. Innlent 7. janúar 2021 10:49
Líklegast að kórónuveiran þróist í vægari gerð sem smitast betur Erfðafræðingur telur líklegast að SARS-CoV-2, veiran sem veldur Covid-19, muni þróast í átt að vægari gerð sem smitist greiðar en núverandi afbrigði. Slíkar gerðir nái að sýkja fleiri einstaklinga og mögulega smjúga í gegnum sóttvarnir sem virkuðu á upprunaleg afbrigði. Samhæft bólusetningarátak sé lykilatriði til að útrýma veirunni. Innlent 7. janúar 2021 10:46
Svona var 151. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 7. janúar 2021 10:30
Sænska liðið í sóttkví þegar vika er í fyrsta leik á HM Allir leikmenn sænska karlalandsliðsins í handbolta eru komnir í sóttkví og liðið má ekki æfa saman fyrr en á mánudaginn. Fyrsti leikur Svía á HM í Egyptalandi er eftir viku. Handbolti 7. janúar 2021 09:30
Nýtt Covid-greiningartæki verði loks klárt í febrúar Nýtt greiningartæki Landspítala, sem á meðal annars að nýtast við greiningar á Covid-19, hefur enn ekki verið tekið í notkun. Tækið var keypt síðasta sumar og stóðu þá vonir til að það yrði tekið í gagnið í nóvember, en nú standa hins vegar vonir til að það verði í febrúar. Innlent 7. janúar 2021 07:36
Óttast að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að velja hverjir fái læknisaðstoð Rúmlega þrjátíu þúsund liggja nú á sjúkrahúsi í Bretlandi með Covid-19 en fjöldinn hefur aldrei verið meiri. Þegar mest var í fyrstu bylgju faraldursins lágu tæplega 22 þúsund inni. Erlent 6. janúar 2021 18:45
Kalla eftir skýrari svörum: Óvissa ofan á alla aðra óvissu Yfir þrjátíu þúsund manns sem eru sjötíu ára og eldri verða bólusettir næst þar sem sóttvarnalæknir hefur breytt forgangsröðun í bólusetningu. Ungur maður með taugahrörnunarsjúkdóm segir vanta betri skilgreiningu á áhættuhópum enda mikilvægt að eyða óvissu hjá fólki sem hefur verið lengi í einangrun. Innlent 6. janúar 2021 18:31
Farþegafjöldi tvöfaldaðist milli mánaða en 95 prósent samdráttur milli ára Fjöldi farþega sem ferðuðust með Icelandair tvöfaldaðist milli mánaða í desember. Fjölgunin endurspeglast í flutningatölum Icelandair Group fyrir desembermánuð sem birtar voru í Kauphöll í dag að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þrátt fyrir þetta nam heildarfjöldi farþega í millilandaflugi um 14.500 í desember sem jafngildir 95 prósenta samdrætti milli ára. Viðskipti innlent 6. janúar 2021 17:54
Átta Tékkar smitaðir til Færeyja viku fyrir HM Leik Færeyja og Tékklands í undankeppni EM í handbolta karla var frestað í dag eftir að átta manns úr leikmannahópi og starfsliði Tékklands reyndust smitaðir af kórónuveirunni við komuna til Færeyja. Handbolti 6. janúar 2021 17:46
Bóluefni Moderna veitt íslenskt markaðsleyfi Lyfjastofnun veitti bóluefni Moderna skilyrt íslenskt markaðsleyfi síðdegis í dag. Innlent 6. janúar 2021 17:01
Öll nema eitt á heimleið frá Póllandi Öll sem greindust með veiruna á landamærum í dag eru búsett á Íslandi og voru öll nema eitt á heimleið frá Póllandi. Yfirmaður smitrakningateymis almannavarna segir þessar sveiflur á landamærum viðbúnar þegar fólk snýr heim til Íslands eftir hátíðarnar. Innlent 6. janúar 2021 16:48
Mæla ekki með bólusetningu barna í áhættuhópum að svo stöddu Barnalæknar mæla ekki með því að börn í áhættuhópum verði bólusett gegn kórónuveirunni að svo stöddu. Þó gæti komið til greina að bólusetja börn í áhættuhópum í undantekningartilfellum, sérstaklega þegar reynsla er komin á bóluefnið. Innlent 6. janúar 2021 16:04
Kom á óvart að vera boðaður í bólusetningu Á þriðja hundrað einstaklinga hafa verið bólusettir við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyra ekki hópi heilbrigðisstarfsmanna eða íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Innlent 6. janúar 2021 15:52
Fyrstu smitin á Norðurlandi eystra í tæpan mánuð Tveir eru nú með virka kórónuveirusýkingu á Norðurlandi eystra en fjórðungurinn hefur verið veirulaus síðan 12. desember. Þeir smituðu greindust við landamæraskimun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 6. janúar 2021 15:24
Yfirmaður almannavarna í Svíþjóð hættir eftir ferðina til Kanarí Dan Eliasson, yfirmaður Almannavarnastofnunar Svíþjóðar, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Eliasson hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ferð sem hann fór í um jólin til Las Palmas. Erlent 6. janúar 2021 14:56
Grammy-verðlaunahátíðinni frestað fram í mars Grammy-verðlaunahátíðinni hefur verið frestað fram í mars vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Hátíðin átti upphaflega að fara fram síðasta dag janúarmánaðar. Lífið 6. janúar 2021 14:19
Guðbjörg fékk veiruna og finnur enn enga lykt Guðbjörg Gunnarsdóttir þarf ekki að fara í sóttkví við komuna til síns nýja knattspyrnufélags Arna-Björnar í Noregi, frá Svíþjóð, vegna þess að hún smitaðist af kórónuveirunni um miðjan nóvember. Fótbolti 6. janúar 2021 14:00
Veðmál á vitlausan hest tafði bólusetningar í Hollandi Hollenska ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd vegna tafa sem orðið hafa á bólusetningu vegna Covid-19 þar í landi. Bólusetning hófst þar fyrst í dag, tíu dögum eftir að bólusetning hófst í grannríkjunum. Erlent 6. janúar 2021 13:51
Breytt forgangsröðun: Sjötíu ára og eldri bólusettir næst Fólk sem er sjötíu ára og eldra er í næsta forgangshópi og fær næstu bólusetningar. Í hópnum eru um 34 þúsund manns. Samkvæmt dreifingaráætlunum lyfjafyrirtækja er von á bóluefni fyrir um þrjátíu þúsund einstaklinga á fyrsta ársfjórðungi og geta aðrir því sennilega ekki búist við bólusetningu fyrr en eftir mars. Innlent 6. janúar 2021 13:44
Lyfjastofnun Evrópu samþykkir dreifingu bóluefnis Moderna Lyfjastofnun Evrópu ákvað á fundi sínum í dag að mæla með skilyrtu markaðsleyfi fyrir bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna í Evrópu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins afgreiði leyfið í dag og dreifing á bóluefninu hefjist fljótlega. Erlent 6. janúar 2021 12:34
Fyrsta dauðsfallið af völdum Covid-19 í Færeyjum Tilkynnt var um fyrsta dauðsfallið af völdum Covid-19 í Færeyjum í dag. Var um að ræða 68 ára karlmann sem hafði legið á sjúkrahúsi í Þórshöfn vegna veikindanna frá því skömmu fyrir jól. Erlent 6. janúar 2021 11:41
Fimm greindust innanlands og átján á landamærum Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. Innlent 6. janúar 2021 10:51
Leikmaður Svía smitaður og leik frestað viku fyrir HM Fresta þurfti leik Svíþjóðar og Svartfjallalands í undankeppni EM í handbolta karla sem átti að fara fram í kvöld vegna kórónuveirusmits í herbúðum Svía. Handbolti 6. janúar 2021 09:00
Vísindamönnum WHO neitað um inngöngu í Kína Vísindamönnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur verið neitað um inngöngu í Kína en fólkið var á leið þangað til að rannsaka upptök kórónuveirufaraldursins í kínversku borginni Wuhan. Erlent 6. janúar 2021 07:18
Sextíu þúsund greindust á einum degi í Bretlandi Fjöldi nýrra smita fór yfir sextíu þúsund í fyrsta sinn í Bretlandi í dag. Daglegur fjöldi greindra smita hefur verið yfir fimmtíu þúsund frá 29. desember síðastliðnum, en samhliða þessari fjölgun hefur álag á sjúkrahús landsins aukist til muna. Erlent 5. janúar 2021 23:25
Tæki allt að tvo mánuði að meta hálfa skammtastærð Yfirvöld í Bandaríkjunum vilja kanna hvort mögulegt sé að helminga skammtastærðir af bóluefni Moderna til þess að ná að bólusetja fleiri, eftir að ljóst varð að ekki myndi nást að bólusetja jafn marga og vonir stóðu til á fyrstu stigum. Erlent 5. janúar 2021 22:58
Fólk ekki flutt á sjúkrahús ef lífslíkur eru taldar afar litlar Sjúkraflutningamenn í Los Angeles-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa fengið fyrirskipun um að flytja ekki sjúklinga á sjúkrahús þegar lífslíkur þeirra eru taldar afar litlar. Erlent 5. janúar 2021 22:02
Rannsaka „óábyrga“ auglýsingaherferð Ryanair Auglýsingamálastofnun Bretlands hafa borist kvartanir vegna auglýsinga flugfélagsins Ryanair, þar sem fólk er hvatt til ferðalaga í ljósi bólusetninga þar í landi. Flestir þeir sem kvarta telja auglýsingarnar villandi og „óábyrgar“ og að þær geri lítið úr áhrifum faraldursins. Stofnunin hefur ákveðið að hefja formlega rannsókn. Viðskipti erlent 5. janúar 2021 21:59
„Þetta bóluefni er mjög öruggt“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði, segir ekkert benda til þess að meiri áhætta fylgi bóluefni Pfizer við kórónuveirunni en öðrum bóluefnum. Það sé gríðarlega mikilvægt að fólk láti bólusetja sig, enda muni það bjarga mannslífum. Innlent 5. janúar 2021 20:05