Segir nálgun Eflingar undarlega og til skammar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segist gáttaður á málflutningi Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar um hærri framfærslukostnað á höfuðborgarsvæðinu. Beiðnin um hærri laun vegna þessa sé ómálefnaleg og á röngum forsendum. Innlent 7. janúar 2023 22:08
Samninganefnd Eflingar reynir að skila móttillögu á morgun Stéttarfélagið Efling hafnar því með öllu að semja um sömu launatöflu og aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa samið um við Samtök atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir tilboð samtakanna óviðundandi og stefnir á að leggja fram móttilboð strax á morgun. Innlent 7. janúar 2023 18:34
Bregst ekki við yfirlýsingu Eflingar Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekkert nýtt koma fram í yfirlýsingu sem Efling birti í dag. Í yfirlýsingu hafnar Efling því með öllu að semja um sömu launatöflu og aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa samið um við SA. Innlent 7. janúar 2023 14:57
Segja fullyrðingar SA skáldskap Efling hafnar því með öllu að semja um sömu launatöflu og aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa samið um við Samtök atvinnulífsins. Félagið krefst þess að sérstaða Eflingarfólks vegna annarrar samsetningar starfa og annars starfsaldursmynsturs, sem og vegna hærri framfærslukostnaðar á höfuðborgarsvæðinu, verði að fullu virt. Innlent 7. janúar 2023 14:00
Blaðamenn gera skammtímasamning Blaðamannafélag Íslands og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir skammtímakjarasamning í dag. Samningurinn er samhljóða þeim sem undirritaðir hafa verið á almennum markaði undanfarnar vikur. Innlent 6. janúar 2023 17:56
Verkfræðingar, byggingafræðingar og tölvunarfræðingar samþykktu samning Kjarasamningur Verkfræðingafélags Íslands við Félag ráðgjafarverkfræðinga hefur verið samþykktur. Nýi samningurinn nær einnig til félagsmanna í Stéttarfélagi byggingafræðinga og Stéttarfélagi tölvunarfræðinga. Innlent 6. janúar 2023 15:00
SA býður Eflingu afturvirka samninga semjist fyrir 11. janúar Samtök atvinnulífsins bjóða Eflingu að nýr kjarasamningur sem liggur á borðinu gildi afturvirkt frá 1. nóvember 2022. Forsenda þess er þó að nýr kjarasamningur verði undirritaður í síðasta lagi 11. janúar. Formaður Eflingar segir að sest verði niður til fundar gagntilboð samið á sunnudaginn. Innlent 5. janúar 2023 13:47
„Gífurlega væn gulrót“ að flýta launahækkunum Samtök á opinberum vinnumarkaði funda í dag með samninganefnd ríkisins um nýja kjarasamninga. Formaður BHM segir félagsmenn óþreyjufulla og vill undirrita samning sem fyrst. Þannig megi kannski flýta launahækkunum til að vega á móti miklum kjarabruna. Innlent 5. janúar 2023 11:45
Ekki bara fylgihlutir Kannski hefur þú séð okkur í fréttunum, svartir nælon jakkar, þrjátíu eða fleiri. Kannski hefurðu séð okkur ganga um Borgartúnið, bera borðana okkar og hlæja. Skoðun 5. janúar 2023 08:30
Sólveig Anna reiknar með að Efling geri gagntilboð Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að samninganefnd stéttarfélagsins muni nú leggjast yfir samningstilboð Samtaka atvinnulífsins um gerð nýs kjarasamnings sem lagt var fram í dag. Hún reiknar með því að SA verði gert gagntilboð. Innlent 4. janúar 2023 15:16
Lögðu fram samningstilboð til Eflingar Samtök atvinnulífsins hafa gert samninganefnd Eflingar tilboð um gerð kjarasamningsins, sem sé efnislega samhljóða kjarasamningnum sem gerður var nýverið við Starfsgreinasambandið. Samtökin segjast tilbúin til þess að ræða aðlögun samningsins að stöðu félagsmanna Eflingar, þó innan kostnaðarramma og meginlína samningsins sem gerður var við Starfsgreinasambandið. Innlent 4. janúar 2023 14:09
Efling og Samtök atvinnulífsins funda klukkan 13 í dag Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins koma saman til fundar í húsakynnum Ríksisáttasemjara klukkan 13 í dag. Innlent 4. janúar 2023 10:16
Stjórnvöld þurfi að opna augun Sjötíu prósent Íslendinga ná endum saman hver mánaðamót þrátt fyrir talsverða verðbólgu og erfiðar markaðsaðstæður. Tæp 30 prósent eiga í erfiðleikum með að ná endum saman og hluta þeirra tekst það alls ekki og er farinn að safna skuldum. Forseti Alþýðusambandsins segir stjórnvöld þurfa að opna augun fyrir stöðu fólks. Innlent 31. desember 2022 12:09
Brú yfir óvissutíma Það blasir við hverjum sem sjá vill að Samtök atvinnulífsins geta ekki samið um aðrar og meiri launahækkanir en felast í þegar gerðum samningum. Í því myndi felast trúnaðarbrot gagnvart verkalýðsfélögunum sem þegar hafa samið og starfa um allt land en ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Vonast er til að verkalýðsfélög sem enn hafa ekki samið muni viðurkenna þessa óumflýjanlegu staðreynd. Umræðan 29. desember 2022 08:33
Tækifærin bíða Um leið og opinberum starfsmönnum fjölgar nánast stjórnlaust fá þeir kjarabætur sem eru mun ríflegri en á almenna markaðnum. Fyrirtæki verða æ oftar fyrir því að geta ekki keppt við hið opinbera varðandi laun eða starfsaðstæður, sérstaklega þegar um sérfræðinga og millistjórnendur er að ræða. Þetta er öfugþróun, sem verður að sporna gegn á nýju ári þegar hið opinbera sezt á ný að samningaborði með stéttarfélögum opinberra starfsmanna. Ekkert hagkerfi getur staðið undir því að hið opinbera sé leiðandi í launa- og kjaraþróun. Umræðan 28. desember 2022 10:01
„Skynsamlegri nýting á tíma“ Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir að það hafi verið ákveðið að fresta fyrirhuguðum fundi samninganefnda Eflingar og Samtaka atvinnulífsins að höfðu samráði við samninganefndir. Fundi samninganefnda hefur verið frestað til 4. janúar næstkomandi. Innlent 27. desember 2022 10:05
Fundi Eflingar og SA frestað fram á nýtt ár Fyrirhuguðum fundi samninganefnda Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, sem fara átti fram í dag, hefur verið frestað fram á næsta ár. Þess í stað mun vinnufundur minni hóps fara fram á morgun. Innlent 27. desember 2022 07:33
Afturvirkni samninga gæti verið í hættu dragist þeir á langinn Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að erfitt gæti reynst að semja um afturvirkni samninga við Eflingu dragist gerð nýs kjarasamnings fram yfir áramót. Formaður Eflingar segir furðulegt ef refsa eigi eflingarfólki fyrir öfluga kjarabaráttu. Innlent 22. desember 2022 19:21
„Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að Samtök atvinnulífsins hafi ekki fallist á það tilboð sem Efling hafði gert þeim. Það hafi verið niðurstaða fundarins sem fram fór í húsnæði ríkissáttasemjara í morgun. „Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum,“ segir Sólveig Anna. Innlent 22. desember 2022 11:59
Tilboð Eflingar gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamnings Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins segir að tilboð sem Efling kynnti í dag sé ekki í neinu samræmi við þá línu sem lögð hefur verið í kjaraviðræðum undanfarið. Það gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamninga. Innlent 22. desember 2022 11:49
Sólveig Anna segir Eflingu hafa komið til móts við SA en vill meiri hækkanir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að félagið hafi komið til móts við Samtök atvinnulífsins með nýju samningstilboði sem kynnt var í gær. Hún segir þó alveg ljóst að verka- og láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu þurfi meiri hækkanir en samið hafi verið um í samningum við Starfsgreinasambandið. Innlent 22. desember 2022 09:58
Vonar að hreyfingin geti staðið þéttar saman fyrir næstu samninga Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í VR, Landssambandi verslunarmanna og samfloti iðn- og tæknimanna hefur samþykkt skammtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Formaður VR bindur vonir við að Efling nái að semja sem fyrst og að hreyfingin standi þéttar saman fyrir næstu samninga. Innlent 21. desember 2022 19:39
Efling fikrar sig nær SA með nýju tilboði Stéttarfélagið Efling hefur gert Samtökum atvinnulífsins (SA) tilboð um endurnýjun samninga. Í nýju tilboði er samþykkt að hagvaxtarauki sem bætast átti á laun í apríl á næsta ári falli niður en á móti koma aðra launaliðshækkanir. Innlent 21. desember 2022 18:54
Félagsmenn RSÍ samþykktu kjarasamning Félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands samþykktu kjarasamning við Samtök Atvinnulífsins í dag. Innlent 21. desember 2022 15:22
Félagsmenn VR samþykktu kjarasamninga við SA og FA Félagsmenn VR hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag og voru niðurstöðurnar kynntar rétt í þessu. Báðir samningar voru samþykktir með yfir 80 prósent atkvæða. Innlent 21. desember 2022 14:56
86 prósent sögðu já við nýjum kjarasamningi SGS við SA Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna hjá sautján af nítján félögum Starfsgreinasambandsins sögðu já við nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Í fimmtán af sautján félögum var samningurinn samþykktur með yfir áttatíu prósent atkvæða. Þáttaka var lítil í kosningunum en aðeins sautján prósent félagsmanna tóku afstöðu til samningsins. Innlent 19. desember 2022 13:51
Níu af tíu samþykktu SGS-samninginn á Akranesi Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness samþykktu með yfirgnæfandi meirihluti kjarasamning við Samtök atvinnulífsins til fimmtán mánaða. Formaður félagsins og Starfsgreinasambandsins á von á að samningurinn verði samþykktur. Innlent 19. desember 2022 13:18
Viðskiptafréttir ársins 2022: Skattsvik, klikkaður fasteignamarkaður og úrræðagóðir Akureyringar Árið 2022 í viðskiptalífinu einkenndist af því að í fyrsta sinn frá því snemma árs 2020 komst lífið aftur í venjubundið horft eftir tveggja ára kórónuveirufaraldur. Viðskipti innlent 18. desember 2022 10:00
Gengur betur næst? Í sumar birti ég greinarflokk á Kjarnanum þar sem ég fjallaði um kreppu og hnignun íslensku verkalýðshreyfingarinnar síðustu fjóra áratugi og greindi ástæðurnar þar að baki. Nú hefur sú kreppa spilast út fyrir almenningssjónum enn á ný, að þessu sinni með snautlegri niðurstöðu af kjarasamningagerð stærstu landssambanda hreyfingarinnar. Skoðun 17. desember 2022 10:30
Sólveig Anna fullviss um að ná fram kröfum Eflingar Formaður Eflingar segir launahækkanir í samningi Starfsgreinasambandsins ekki duga hennar fólki og telur ólíklegt að samningar takist fyrir jól. Framkvæmdastjóri SA segir samninginn aftur á móti tryggja verkafólki kaupmáttaraukningu og meira væri ekki í boði. Innlent 16. desember 2022 17:45