Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins. Lífið 23. nóvember 2024 07:04
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22. nóvember 2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 13:43
ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22. nóvember 2024 11:27
Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 10:06
Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Ljósvakamiðlarnir Sýn, Sjónvarp Símans og Ríkisútvarpið hafa stofnað til sérstakra íslenskra sjónvarpsverðlauna. Stefnt er að því að verðlaunin verði afhent í fyrsta sinn maí næstkomandi á sérstökum viðburði. Bíó og sjónvarp 21. nóvember 2024 16:40
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21. nóvember 2024 12:22
Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendastofa hefur slegið á putta Olís og Orkunnar fyrir fullyrðingar í auglýsingum um að eldsneyti stöðvanna væri kolefnisjafnað. Auglýsingarnar hafi gefið það í skyn að eldsneytisviðskipti neytenda hefðu engin áhrif á umhverfið. Neytendur 21. nóvember 2024 11:17
Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Fasteignafélagið Heimar hefur sett af stað umfangsmiklar framkvæmdir í austurenda Smáralindar en þar á að rísa nýtt veitingasvæði. Áætlað er að þrettán veitingastaðir verði opnaðir á þessu nýja svæði í Smáralind fyrir lok árs 2025. Um verður að ræða allt frá skyndibita yfir í fínni veitingastaði sem einnig verða opnir á kvöldin. Viðskipti innlent 21. nóvember 2024 10:15
Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20. nóvember 2024 21:31
Fyrsta flug þotu sem markar þáttaskil í sögu Icelandair Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar. Innlent 20. nóvember 2024 20:24
Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026. Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum. Innlent 20. nóvember 2024 18:59
Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Íslandsbanki ætlar að lækka óverðtryggða vexti á útlánum sínum um allt að 0,5 prósentustig í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti sína. Tilkynning Íslandsbanka var send út innan við stundarfjórðungi eftir að ákvörðun Seðlabankans var kynnt. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 08:53
Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Airbus-verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi í dag. Flugvélin, af gerðinni Airbus A321neo, hóf sig til flugs laust eftir hádegi að staðartíma. Innlent 19. nóvember 2024 23:55
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19. nóvember 2024 12:49
Gjaldeyrisáhrifin af kaupunum á Marel farin að skila sér í styrkingu krónunnar Gengi krónunnar hefur styrkst verulega á allra síðustu vikum, einkum vegna kaupa erlendra fjárfestingarsjóða á bréfum í Marel í aðdraganda væntanlegs samruna við bandaríska félagið JBT, og er núna í sínu sterkasta gildi í meira en eitt ár. Sérfræðingar segja því ljóst að áhrifin vegna kaupanna á Marel séu nú þegar farin að koma fram á gjaldeyrismarkaði en innlendir fjárfestar fara með meirihluta í félaginu og munu fá greitt að stórum hluta í reiðufé í erlendri mynt. Innherji 19. nóvember 2024 12:23
Freista þess að sækja þrjátíu milljarða í nýtt hlutafé frá erlendum fjárfestum Landeldisfyrirtækið First Water hóf formlega fyrr í þessum mánuði fjármögnunarferli með erlendum ráðgjafa sínum sem miðar að því að sækja allt að tvö hundruð milljónir evra í nýtt hlutafé frá alþjóðlegum fjárfestum og sjóðum. Félagið, sem stendur að uppbyggingu á eldisstöð með um fimmtíu þúsund tonna framleiðslugetu, hefur fram til þessa alfarið verið fjármagnað af íslenskum fjárfestum og bönkum. Innherji 17. nóvember 2024 13:15
Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15. nóvember 2024 20:00
Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Brynjar Þór Ólafsson, Sólrún Lovísa Sveinsdóttir og Aníta Auðunsdóttir hafa verið ráðin til Reita. Viðskipti innlent 15. nóvember 2024 10:10
Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna. Innlent 15. nóvember 2024 09:13
Tekjurnar umfram væntingar og gætu nálgast efri mörkin í afkomuspá Alvotech Stjórnendur Alvotech sjá ekki ástæðu til að uppfæra afkomuáætlun sína fyrir þetta ár en eftir niðurstöðu þriðja fjórðungs, sem var nokkuð umfram væntingar greinenda, er útlit fyrir að tekjur félagsins verði í eftir mörkum þess sem áður hefur verið gefið út. Miklar sveiflur voru á hlutabréfaverði Alvotech í dag en félagið greindi meðal annars frá því að FDA hefði í reglubundinni úttekt fyrr í haust gert tvær athugasemdir við framleiðsluaðstöðuna í Reykjavík. Innherji 14. nóvember 2024 22:37
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14. nóvember 2024 14:05
Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Icelandair hefur bætt nýjum áfangastað við leiðakerfið sitt, hinni sögufrægu borg Istanbul í Tyrklandi. Flogið verður til borgarinnar fjórum sinnum í viku frá 5. september 2025 og er flugtími um fimm klukkustundir og 30 mínútur. Viðskipti innlent 14. nóvember 2024 13:33
Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Rekstrarhagnaður Alvotech var 56,2 milljónir dala á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tap upp á 277,7 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Það gerir viðsnúning upp á 46,6 milljarða króna. Viðskipti innlent 14. nóvember 2024 12:23
Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Viðskipti innlent 13. nóvember 2024 18:06
Spá hressilegri vaxtalækkun Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti sína um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Viðskipti innlent 13. nóvember 2024 11:29
Stuldur um hábjartan dag Íslenskir fjölmiðlar standa frammi fyrir áskorun sem hefur ekki einungis áhrif á fjölmiðlana sjálfa heldur samfélagið allt. Ólögleg dreifing og endursala sjónvarpsefnis er orðin veruleg ógn við afkomu og framþróun í fjölmiðlaiðnaðinum. Skoðun 13. nóvember 2024 08:02
Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í dag lánshæfismat Landsbankans og Íslandsbanka og tilkynnti jafnframt um breytingu á horfum úr stöðugum í jákvæðar. Þriðji stóri viðskiptabankinn, Arion banki, sleit samstarfi sínu við S&P fyrr á árinu. Viðskipti innlent 12. nóvember 2024 16:12
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12. nóvember 2024 11:43
Frægir flugfreyjubúningar í útgáfuhófi Loftleiðabókar Konur klæddar gömlum flugfreyjubúningum Loftleiða tóku á móti gestum útgáfuhófs ljósmyndabókar um Loftleiðasöguna, sem Sigurgeir Orri Sigurgeirsson gefur út í samvinnu við Sögufélag Loftleiða. Útkomu bókarinnar var fagnað síðdegis í gær, sunnudag, og að sjálfsögðu á Loftleiðahótelinu. Lífið 11. nóvember 2024 09:02