Árvakur og 365 skoða samstarf „Það liggur ekkert fyrir um að slíkt takist en það eru það erfiðar aðstæður á prentmarkaðnum að ef það ætti einhvern tímann að ganga þá væri það núna,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. Heimildir Markaðarins herma að samningaviðræður eigi sér stað milli 365 og Árvakurs til að ná fram stærðarhagkvæmni í rekstri. Á það einkum við rekstrarliði sem lúta að framleiðslu og dreifingu á dagblöðum. Viðskipti innlent 6. ágúst 2008 00:01
Kvótaþak hamlar vexti sjávarútvegs „Í sjávarútvegi þar sem starfað er við útflutning mæla engin hagfræðileg rök með því að stærð fyrirtækja sé haldið niðri með hömlum á kvótaeign,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar Kaupþings. Viðskipti innlent 6. ágúst 2008 00:01
Urriðavöllur dýrastur Urriðavöllur er dýrasti golfvöllur landsins árið 2008. Urriðavöllur er rekinn af Golfklúbbnum Oddi. Hringurinn á Urriðavelli kostar 7.400 krónur án afsláttar. Næstur í kjölfarið kemur Vífilsstaðavöllur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Gjaldið þar er 7.000 krónur. Viðskipti innlent 6. ágúst 2008 00:01
Sparisjóðir í vandræðum vegna gengisfalls Existu „Miðað við stöðu Sparisjóðs Mýrasýslu um áramót í samanburði við aðra sparisjóði má ætla að fleiri sparisjóðir lendi í vandræðum á næstunni,“ segir Sveinn Þórarinsson, hjá greiningu Glitnis. Viðskipti innlent 6. ágúst 2008 00:01
Dögun vetnisaldar – veruleiki eða framtíðarsýn Jarðeldsneyti er takmarkað og ljóst er að síhækkandi eldsneytisverð er að sliga atvinnuvegi landsins og að hagkvæmara er orðið að leita annarra leiða til að knýja ökutæki í framtíðinni. Í bók sinni, Dögun vetnisaldar – róteindin tamin fjallar Þorsteinn Ingi Sigfússon um vetni sem orkugjafa. Bókin er gefin út samtímis á íslensku og ensku. Viðskipti innlent 6. ágúst 2008 00:01
Eldingum skotið í tölvur í prófunum Tölvuframleiðandinn Lenovo leggur mikla áherslu á gæðaprófanir í framleiðslu á tölvubúnaði sínum. Björn Birgisson, yfirvörustjóri hjá Nýherja, heimsótti höfuðstöðvar Lenovo í Peking og komst að því að þar eru tölvurnar frystar, hristar, hitaðar, fallprófaðar og látnar verða fyrir eldingum í gæðaprófunum. Viðskipti erlent 6. ágúst 2008 00:01
Bankahólfið: Íþróttaálfur mærir forsetann Forseti Íslands fær heldur betur hlýjar kveðjur frá íþróttaálfinum sjálfum í Latabæ, Magnúsi Scheving, í nýjasta Útherja, fréttablaði Útflutningsráðs Íslands. Viðskipti innlent 2. júlí 2008 00:01
Bankahólfið: Minnisleysa Íslensk erfðagreining ku ætla að rannsaka hvaða erfðaþættir það séu sem hafi áhrif á minni, athygli og hraða hugsunar. Illkvittnir sáu samstundis glitta í gagnsemi rannsóknarinnar. Viðskipti innlent 25. júní 2008 00:01
Biðstaða á gjaldeyrismarkaði? Eftir rúmlega 20% gengisfall í mars hefur krónan flökt á bilinu 113-124 á móti evru og þannig má líta svo á að gjaldeyrismarkaðurinn hafi verið nokkuð stöðugur á öðrum ársfjórðungi. Þrátt fyrir þennan stöðugleika á ytri borði er samt ljóst að undir niðri kraumar töluverð óvissa. Svo virðist sem fæstir hafi trú á því að núverandi gildi sé einhvers konar jafnvægi heldur að gjaldeyrismarkaðurinn sé í biðstöðu. Hvert er þá krónan að stefna þegar kemur fram að þriðja fjórðungi? Skoðun 18. júní 2008 11:30
Pissað í polla Vondar fréttir af Eimskipafélaginu sendu markaðinn í þunglyndi í vikunni. Það var svo sem ekki á svartsýnina bætandi og fyrir vikið sat íslenski markaðurinn eftir þegar Evrópa rétti sig örlítið við. Þunglyndið var allsráðandi og ég mann satt að segja ekki eftir jafn svartsýnum tóni á markaðinum síðan 2001-2002 þegar gengið grillaði ansi marga á sama tíma og draumurinn um að þjóðin gæti upp til hópa lifað af arðinum á Decode lognaðist út af. Viðskipti innlent 18. júní 2008 09:31
Af dónalegum spurningum Geir H. Haarde, forsætisráðherra, brást illa við spurningum Sindra Sindrasonar, fréttamanns Markaðarins, fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorgun. Sakaði Geir Sindra um dónaskap þegar hann innti ráðherra eftir aðgerðum í efnahagsmálum. Svona voru samskiptin: Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?” Geir: „Á þetta að vera viðtal? Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta...” Geir: „Þú verður að hafa samband fyrirfram.” Sindri: Geir, þjóðin náttúrulega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?” Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega.” Viðskipti innlent 14. júní 2008 00:01
Skjót viðbrögð Seðlabankans Seðlabanki Íslands brást skjótt við umfjöllun Markaðarins í gær um kennsluefni Seðlabanka. Í gærmorgun barst fréttatilkynning frá bankanum þar sem bent er á efni sem bankinn gefur út, tengla á efni frá öðrum seðlabönkum og nánari upplýsingar um opnunartíma myntsafns Seðlabankans. Fjallað er um tölvuleik sem er staðsettur í myntsafni Seðlabanka Íslands þar sem hægt er að setjast í stól bankastjóra og spreyta sig á því að beita stýritækjum hans til að ná verðbólgumarkmiði bankans. Viðskipti innlent 12. júní 2008 00:01
Bankahólfið: Netbóluísinn brotinn Úrvalsvísitalan sleikti 4.500 stiga markið í gær. Eins og margoft hefur verið tuggið á fór vísitalan hæst í 9.016 stig 18. júlí í fyrra áður en hún fór að síga en fall vísitölunnar nú nemur 49,6 prósentum á tæpum ellefu mánuðum. Viðskipti innlent 11. júní 2008 00:01
Bankahólfið: Buffet-aðferðin Alltaf er fengur að bókum á íslensku um viðskipti og athafnafólk. Warren Buffet-aðferðin ætti því að vera kærkomin lesning, ekki síst fyrir íslenska fjárfesta sem brennt hafa sig illa á hlutabréfaviðskiptum síðustu misserin. Viðskipti innlent 4. júní 2008 00:01
Hollendingar fagna Icesave Landsbankinn hóf á fimmtudag að bjóða Hollendingum upp á Icesave-innlánsreikninga. Viðskipti innlent 31. maí 2008 00:01
Nýsir selur Konditori „Við erum að endurskipuleggja fyrirtækið og ætlum að einblína á kjarnastarfsemi sem snýr að rekstri og umsjón fasteigna. Veitingahúsarekstur var ekki hluti af kjarnastarfsemi,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri fasteigna- og fjárfestingarfélagsins Nýsis. Viðskipti innlent 31. maí 2008 00:01
Bankarnir borga ekki í láni ríkisins Bankarnir vilja ekki taka þátt í kostnaði við erlendar lántökur ríkissjóðs. Ríkið hefur ekki beðið þá um það. Bankarnir verði að bjóðast til þess. Viðskiptaráðherra segir ráðast af kostnaði við lántöku hvort bankarnir taki þátt í honum. Viðskipti innlent 31. maí 2008 00:01
Bankahólfið: Stærsta lán allra tíma Fregnum af útspilum stjórnvalda og Seðlabankans til stuðnings íslensku fjármálakerfi hefur verið vel tekið á markaði; fyrst gjaldeyrisskiptasamningum við þrjá norræna seðlabanka og nú síðast lagafrumvarpi fjármálaráðherra um heimild ríkissjóðs til að taka allt að 500 milljarða króna að láni í útlöndum í því skyni að efla gjaldeyrisforðann. Viðskipti innlent 28. maí 2008 00:01
Bankahólfið. LL styrkja rannsóknir Landssamtök lífeyrissjóða hafa ákvðið að styrkja Ólaf Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, um eina milljón króna vegna doktorsritgerðar sem hann vinnur að um íslenska lífeyriskerfið. Stjórn samtakanna samþykkti þetta á aðalfundi sínum fyrir helgi. Viðskipti innlent 21. maí 2008 00:01
Bankahólfið: Hógværir Misjafnt er hversu umsvifamiklir stjórnendur og stjórnarmenn fjármálastofnana eru í lántökum innan þeirra bankastofnana sem þeir starfa hjá. Sem dæmi námu útistandandi lán til bankastjóra og framkvæmdastjóra Landsbankans í lok mars um 158 milljónum króna. Viðskipti innlent 14. maí 2008 00:01
Bankahólfið: Sölutrygging Skeljungs Glitnir hefur eins og kunnugt er sölutryggt Skeljung, sem er í eigu Fons Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristjánssonar. Lítið fer þó fyrir sölunni enda áhugi fjárfesta lítill í þessu árferði. Viðskipti innlent 7. maí 2008 00:01
Bankahólfið: Baldur flottur á því Baldur Guðnason hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi á umliðnum árum, en lítið hefur þó farið fyrir honum eftir að hann hætti sem forstjóri Eimskips fyrir skemmstu. Viðskipti innlent 30. apríl 2008 00:01
Spákaupmaðurinn: Greidd skuld er glatað fé Loksins, loksins, eftir mikla og margra ára baráttu og barning við lánastofnanir, innheimtumenn og lögfræðinga er hann loksins frjáls. Spákaupmaðurinn er nefnilega nýlega orðinn skuldlaus og vill syngjandi kátur byrja að spara. Viðskipti innlent 30. apríl 2008 00:01
Á ennþá 15 prósent Finnur Ingólfsson er enn stór hluthafi í Icelandair Group í gegnum félagið Langflug. Fréttir af sölu Finns á hlutum í félaginu í fyrrasumar, báru með sér að þá hefði Finnur sagt skilið við félagið. Þá seldi félag Finns FS7 tæplega 15,5 prósenta hlut sinn. Viðskipti innlent 24. apríl 2008 00:01
Mikilvægast að ná verðbólgunni niður „Húsnæðislánavextir banka og sparisjóða eru töluvert hærri nú en vextir Íbúðalánasjóðs, enda þurfa þeir að taka mið af peningamálastefnu landsins, ólíkt því sem virðist gilda um Íbúðalánasjóð,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Vaxtalækkun sjóðsins í byrjun vikunnar sé ekki til þess fallin að styðja við virkni peningamálastefnu Seðlabankans. Viðskipti innlent 24. apríl 2008 00:01
Báðu ekki um ný lög Frumvarp fjármálaráðherra um lífeyrissjóði fellur í grýttan jarðveg hjá verkalýðshreyfingunni, sem segir að með því verði eignir landsmanna í lífeyrissjóðum ofurseldar skortsölu. Viðskipti innlent 17. apríl 2008 00:01
Bankahólfið: Hvað gerir Magnús nú? Óhætt er að segja að minna fari fyrir athafnamanninum Magnúsi Þorsteinssyni í íslensku samfélagi en áður. Magnús var stjórnarformaður Avion Group sem átti að verða stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heimi, en það gekk ekki eftir og félaginu var skipt upp. Viðskipti innlent 16. apríl 2008 00:01