Ýmis ákvæði sóttvarnalaga styrkt og skýrð nánar Annarri umræðu um breytingar á sóttvarnalögum lauk á Alþingi í gærkvöldi en þær fela í sér styrkingu alls konar heimilda sóttvarnayfirvalda til aðgerða í sóttvarnamálum. Varaformaður velferðarnefndar Alþingis segir brýnt að hefja þegar undirbúning að heildarendurskoðun laganna. Innlent 29. janúar 2021 12:06
450 afbrigði greinst á landamærunum en þrettán innanlands Frá 15 júní á síðasta ári og til dagsins í dag hafa alls um 450 afbrigði kórónuveirunnar greinst við landamæraskimun hér á landi. Á sama tíma hafa aðeins þrettán afbrigði greinst innanlands. Innlent 28. janúar 2021 12:27
Flugvirkjar Icelandair byrjaðir að búa fyrstu MAX-vélina undir flug Flugvirkjar eru fjölmennsta flugstéttin hjá Icelandair um þessar mundir. Tvær umfangsmiklar stórskoðanir standa yfir í viðhaldsstöð félagsins Keflavík auk sem byrjað er að gera fyrstu MAX-vélina klára fyrir flug á ný. Viðskipti innlent 27. janúar 2021 21:13
Þörf á mun meiri inniviðafjárfestingum opinberra aðila en áætlað er Formaður Samtaka iðnaðarins segir þörf á mun meiri fjárfestingum í innviðum landsins en áætlanir opinberra aðila upp á 139 milljaðar kveða á um á þessu ári. Í kreppunni nú vegna kórónuveirufaraldurins sé rétti tíminn til að gefa verulega í. Innlent 27. janúar 2021 19:21
Boeing 737 Max fá græna ljósið í Evrópu Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið græna ljósið á að Boeing 737 Max flugvélarnar geti flogið um loftin blá í Evrópu. Þar með er 22 mánaða banni á flugvélunum lokið í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu 346 manns lífið. Viðskipti erlent 27. janúar 2021 12:30
Opinberir aðilar áforma framkvæmdir upp á 139 milljarða í ár Framkvæmdir opinberra aðila voru mun minni í fyrra en þeir höfðu boðað á útboðsþingi í upphafi þess árs. Mestu munar um stórfelldan samdrátt í framkvæmdum hjá Ísavia. Reykjavíkurborg stóð hins vegar nokkurn vegin við áform sem gefin voru á útboðsþingi í byrjun síðasta árs. Innlent 27. janúar 2021 11:57
Tollurinn fái víðtækari heimildir til þess að leita í farangri Drög að frumvarpi til breytinga á tollalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Tollyfirvöldum eru þar veittar auknar heimildir til þess að leita í innrituðum farangri, án þess að eigandinn sé viðstaddur. Innlent 27. janúar 2021 11:25
Stór farþegaþota rifin í fyrsta sinn á Íslandi Fyrsta niðurrif farþegaþotu, sem fram fer hérlendis, er langt komið í Keflavík. Flugvirkjar Icelandair luku í dag við að ná síðasta hjólastellinu undan Boeing-þotu en flugstjórnarklefinn fer svo á flugsafnið á Akureyri. Viðskipti innlent 27. janúar 2021 10:50
Þrýstingsfall í flugvél Bláfugls vegna leka við frakthurð Þrýstingsfall varð í einni af Boeing-fraktflugvélum flugfélagsins Bláfugls í gærmorgun þegar vélin var á leið frá Dublin til Keflavíkur. Þrýstingsfallið uppgötvaðist þegar vélin var skammt frá Færeyjum. Innlent 27. janúar 2021 10:23
Gjöld vegna Covid-19 vottorðs geta margfaldað ferðakostnað Fleiri ríki gera nú kröfu um að flugfarþegar framvísi vottorði um neikvæða niðurstöðu úr nýlegu Covid-19 prófi þegar þeir koma til landsins. Frá og með deginum í dag þurfa allir sem koma til Bandaríkjanna að hafa undir höndum slíkt vottorð en fyrr í mánuðinum tók sú breyting til að mynda gildi í Englandi og Danmörku. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 13:11
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. Innlent 26. janúar 2021 11:54
Munu bjóða upp á flug milli Keflavíkur og Manchester á næsta ári Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022. Viðskipti innlent 22. janúar 2021 11:10
ASÍ fussar og sveiar yfir uppsögnum Bláfugls Alþýðusamband Íslands fordæmir það sem sambandið kallar enn eina tilraunina til félagslegra undirboða í flugrekstri hér á landi. Vísað er til uppsagnar fragtflugfélagsins Bláfugls sem sagði upp ellefu flugmönnum í desember í hagræðingarskyni. Viðskipti innlent 21. janúar 2021 16:29
Íslenskir forritarar höfðu betur í baráttu við Ballarin um vangoldin laun USAerospace Associates LLC, félag í eigu Michelle Ballarin sem hefur stefnt að flugrekstri undir merkjum WOW air, hefur verið dæmt til að greiða tveimur forriturum rúmlega fjörutíu milljón krónur í vangoldin laun. Dómur var kveðinn upp í héraði í dag. Viðskipti innlent 20. janúar 2021 16:13
Flughermir Icelandair uppfærður fyrir breytingar á MAX Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir uppfærslur á flughermi félagsins á Flugvöllum í Hafnarfirði vegna MAX flugvélanna hafa verið vottaðan í lok þar síðustu viku. Félagið geti því byrjað að þjálfa flugmenn á Boeing 737 MAX flugvélarnar. Innlent 19. janúar 2021 13:57
Brennd af ferðamönnum sem flökkuðu um landið í sóttkví Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að ef til vill þurfi að hnykkja betur á því að farþegar hafi heimild til að gista nálægt landamærastöð áður en haldið er heim í sóttkví. Hann segir ábendingu ísfirsks læknis, sem gagnrýndi fyrirkomulagið í gær, réttmæta. Þó beri að nefna að starfsfólk á landamærum sé svolítið brennt af ferðamönnum sem flakkað hafa um landið í sóttkví eftir komu til landsins. Innlent 19. janúar 2021 13:52
Hlutafé Isavia aukið vegna rekstrartaps í kreppunni Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn. Hlutafjáraukningunni er ætlað að mæta rekstrartapi vegna COVID-19. Innlent 19. janúar 2021 12:26
Telur ótækt að yfirvöld etji þreyttum ferðalöngum út í hættulegar heimferðir Læknir á Ísafirði telur ótækt að því sé haldið að ferðalöngum, sem búsettir eru á landsbyggðinni og koma frá útlöndum, að koma sér tafarlaust á skráðan sóttkvíarstað, jafnvel þótt þeir eigi langt ferðalag fyrir höndum. Leggja eigi áherslu á að fólk geti hvílt sig í grennd við flugvöllinn, frekar en að „etja þreyttum ferðalöngum út í að keyra um landið þvert og endilangt“ við erfið skilyrði. Innlent 19. janúar 2021 10:17
Icelandair setur Iceland Travel í sölu Icelandair Group hefur ákveðið að hefja söluferli á dótturfélagi sínu, Iceland Travel. Félagið segir markmiðið í söluferlinu að hámarka virði fyrirtækisins og tryggja á sama tíma hagsmuni starfsfólks og íslenskrar ferðaþjónustu. Innlent 19. janúar 2021 10:04
Trump muni aflétta banni við komu farþega frá Evrópu Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hyggst fella úr gildi ferðabann sem hamlar komu erlendra ríkisborgara frá Brasilíu og Evrópu til Bandaríkjanna þann 26. janúar næstkomandi. Þetta herma heimildir Reuters-fréttastofunnar sem hefur þetta eftir ónefndum ráðamönnum innan Hvíta hússins. Erlent 18. janúar 2021 23:47
Segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent Johan Lundgren, forstjóri EasyJet, segir útlit fyrir mikinn ferðavilja meðal fólks þegar slakað verður á takmörkunum vegna kórónuveirunnar. Hann segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 18. janúar 2021 23:11
Bjó á flugvellinum í Chicago í þrjá mánuði Aditya Singh, 36 ára gamall maður frá Kaliforníu, var handtekinn um helgina á O‘Hare-alþjóðaflugvellinum í Chicago og ákærður fyrir ýmis brot, meðal annars þjófnað og að hafa farið í leyfisleysi inn á lokað svæði á vellinum. Erlent 18. janúar 2021 07:21
Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi Flugvallafélag grænlenskra stjórnvalda, Kalaallit Airports, hefur ákveðið að bjóða út að nýju gerð flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Þetta er endurtekning á útboði í fyrra en tilboðin sem þá bárust voru sögð hafa verið öll hátt yfir fjárhagsramma verkefnisins. Íslenski verktakinn Ístak var í hópi bjóðenda, sem valdir höfðu verið að undangengnu forvali. Viðskipti erlent 17. janúar 2021 22:00
Koma heim úr jarðarförum, brúðkaupum eða afmælum og reynast smituð Flestir sem hafa greinst með kórónuveiruna á landamærum undanfarið koma frá löndum á borð við Danmörku og Pólland, sem hafa hvað mesta tengingu við Ísland. Dæmi eru um að stórir hópar komi heim úr jarðarförum eða brúðkaupum og reynist jákvæðir í skimun á Keflavíkurflugvelli. Innlent 17. janúar 2021 19:14
Engin störukeppni við óstýriláta farþega í dag Ekkert kom upp á við sýnatökuhlið Keflavíkurflugvallar í dag og allir farþegar virtu skimunarskyldu án vandkvæða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Innlent 17. janúar 2021 18:26
Nær allir sem greindust komu með sömu flugvélinni Fjórtán greindust með kórónuveiruna á landamærunum í gær, nær allir úr sömu flugvélinni. Yfirlögregluþjónn telur stöðuna á faraldrinum hér á landi almennt góða; Ísland sé í einstakri stöðu, jafnvel á heimsvísu, en enn þurfi að hafa allan varann á. Innlent 17. janúar 2021 13:17
Hjón neituðu að fara í skimun en snerist hugur eftir þriggja klukkutíma bið Hjón með ung börn sem komu til landsins með flugi í gær neituðu að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á Keflavíkurflugvelli. Þau biðu í þrjá til fjóra tíma við sýnatökuhlið á flugvellinum en snerist á endanum hugur og fóru í sýnatöku. Innlent 17. janúar 2021 12:59
Kærkomið að losna við argaþrasið Starfsfólki Keflavíkurflugvallar hefur gengið vel að framfylgja nýrri skimunarskyldu á landamærum í dag. Yfirlögregluþjónn segir gott að losna við þjarkið sem oft fylgdi því að telja farþega á að velja skimun fram yfir sóttkví. Innlent 16. janúar 2021 17:47
Hitta reglulega ferðamenn sem ætla ekki að virða sóttkví eftir skimun Yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir talsvert um það að ferðamenn komi hingað til lands, fari í skimun á flugvellinum en hyggist greinilega ekki virða sóttkví að henni lokinni. Það segi sig sjálft þegar aðeins sé bókuð nokkurra daga ferð. Innlent 16. janúar 2021 12:30
Segir aðgerðir á landamærum ekki geta verið mildari Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir að einhvern veginn þurfi að girða fyrir að fólk geti komist hjá því að sæta sóttkví. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að frá og með deginum í dag yrði skylda fyrir þá sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli. Þeim sem neita verður meinaður aðgangur að landinu. Innlent 16. janúar 2021 07:59