Ný Formúlu 1 braut í Indlandi kostaði 300 miljónir Bandaríkjadala Nú Formúlu 1 braut verður notuð af Formúlu 1 liðum í keppni í fyrsta skipri á Indlandi á sunnudaginn, en hún er staðsett í 50 km fjarlægð frá miðhluta Nýju Delí og kallast brautin Buddh. Brautin var hönnuð af Hermann Tilke og fyrirtæki hans og er áætlað að það hafi kostað 300 miljónir Bandaríkjadala (nærri 34 miljarða íslenskra króna) að koma henni í gagnið samkvæmt upplýsingum frá FIA. Buddh brautin er 5.137 km að lengd og verða eknir 60 hringir í kappakstrinunm á sunnudag. Formúla 1 27. október 2011 19:15
Horner segir Red Bull liðið hafa bætt sig á öllum sviðum Red Bul liðiðl fagnaði því í gær að liðið vann titil bílasmiða í Formúlu 1, viku eftir að Sebastian Vettel, annar ökumanna liðsins hafði fagnað því að vinna meistaratitil ökumanna. Red Bull var í mestri samkeppni við McLaren og Ferrari um meistaratitil bílasmiða, en tryggði sér titilinn í gær, þó þremur mótum sé enn ólokið á keppnistímabilinu. Yfirmaður Red Bull, Christian Horner segir liðið hafa bætt sig á öllum sviðum. Formúla 1 17. október 2011 14:45
Vettel vann og Red Bull liðið tryggði sér meistaratitil bílasmiða Sebastian Vettel vann sinn tíunda sigur í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili í dag. Hann kom fyrstur í endamark á kappakstursbrautinni í Yeongam í Suður Kóreu. Lewis Hamilton á McLaren varð í öðru sæti í mótinu og Mark Webber á Red Bull þriðji. Formúla 1 16. október 2011 10:08
Hamilton sá við Vettel og Webber í tímatökunni Formúlu 1 ökumaðurinn Lewis Hamilton á McLaren verður fremstur á ráslínu á kappakstursbrautinni í Yenogam í Suður Kóreu á aðfaranótt sunnudags. Hamilton náði besta tíma í tímatökunni fyrir keppnina. Formúla 1 15. október 2011 06:31
Button á McLaren fljótastur á lokaæfingunni Jenson Button á McLaren reyndist fljót æiastur á síðustu æfingu Formúlu 1 liða í fyrir tímatökuna, sem verður í nótt á kappakstursbrautinni í Yenomag í Suður Kóreu. Button varð 0.289 úr sekúndu á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma og var 0.833 á eftir Button. Sebastian Vettel á Red Bull náði aðeins með níunda besta tíma, en lenti í tvígang í því að Torro Rosso ökumaður var fyrir honum í brautinni í hröðum hring. Brautin í Suður Kóreu var þurr, en tvær fyrstu æfingarnar höfðu farið fram í rigningu og ekki eru líkur á rigningu í tímatökunni. Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 04.45 í nótt og verður í opinni dagskrá og endursýn kl. 11.45 á laugardag. Formúla 1 15. október 2011 03:11
Hamilton vill skáka Vettel í tímatökunni í nótt Lewis Hamilton á McLaren var með besta tíma á föstudagsæfingum Formúlu 1 liða á kappakstursbrautinni í Yenogam í Suður Kóreu. Formúla 1 14. október 2011 19:56
Hamilton fljótastur í Suður Kóreu Tvær æfingar fór fram hjá Formúlu 1 liðum á Kóreu kappakstursbrautunni í Yenogam í Suður Kóreu í nótt. Rigning var á báðum æfingum, sem voru liður í undirbúningi fyrir kappakstur á brautinni á sunnudaginn. Red Bull á möguleika á að tryggja sér meistaratitil bílasmiða í mótinu, en Sebastian Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna. Formúla 1 14. október 2011 10:00
Horner: Árið hefur verið magnað Christian Horner, yfirmaður Formúlu 1 liðs Red Bull, segir að markmið liðsins sé að tryggja liðinu meistaratitil bílsmiða í framhaldinu af því að Sebastian Vettel ökumaður liðsins tryggði sér titil ökumanna í gær. Yngstur allra til að vinna tvo meistaratitla í röð, eftir að hafa orðið yngsti meistari sögunnar í fyrra. Formúla 1 10. október 2011 19:00
Button: Vettel á titilinn skilið Jenson Button fagnaði sigri í japanska kappakstrinum í gær á McLaren, en Button var eini ökumaðurinn sem átti tölfræðilega möguleika á því að skáka Vettel í titilslagnum fyrir mótið í Japan. Formúla 1 10. október 2011 16:45
Meistarinn Vettel segist lánsamur og blessaður Sebastian Vettel fagnaði öðrum meistaratitli sínum í heimsmeistaramóti ökumanna í Formúlu 1 á Suzuka brautinni í Japan í dag. Hann fór fögrum orðum um samstarfsmenn sína hjá Red Bull liðinu eftir að hafa tryggt sér meistaratitilinn annað árið í röð. Hann vildi meina að allir hjá Red Bull hefðu lagt hönd á plóginn í kapphlaupinu um titilinn, sama í hvaða starfi þeir væru hjá liðinu, en Red Bull liðið er staðsett í Milton Keynes í Bretlandi. Formúla 1 9. október 2011 21:19
Sigur Button dugði ekki gegn Vettel í titilslagnum Jenson Button á McLaren vann japanska kappaksturinn á Suzuka brautinni í dag. Hann kom fyrstur í endmark á undan Fernando Alonso á Ferrari og Sebastian Vettel á Red Bull. Vettel tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna með árangri sínum í dag. Formúla 1 9. október 2011 11:54
Sebastian Vettel heimsmeistari Sebastian Vettel tryggði sér í morgun heimsmeistaratitilinn í Formúlu-1 annað árið í röð. Vettel verður þar með yngsti tvöfaldi heimsmeistari frá upphafi formúlunnar, en hann er aðeins 24 ára og 98 daga gamall. Titilinn tryggði hann sér í nótt á japönsku kappakstursbrautinni í Suzuka. Þar endaði Vettel þriðji, á eftir Jenson Button og Fernando Alonso. Það dugði honum þó til þess að tryggja sér titilinn.Félagi Vettels, Mark Webber, endaði fjórði í morgun. Þeir aka fyrir lið Red Bull, og með stigunum í morgun virðast Red Bull vera að tryggja sér titil bílasmiða annað árið í röð. Formúla 1 9. október 2011 08:12
Vettel ekki að einbeita sér að stiginu sem vantar Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu í japanska Formúlu 1 kappakstrinum á Suzuka brautinni, sem fram fer á sunnudag. Vettel varð aðeins 0.009 sekúndum á undan Jenson Button á McLaren í tímatökunni í dag. Formúla 1 8. október 2011 16:45
Vettel fremstur á ráslínu í tólfta skipti á árinu Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð aðeins 0.009 úr sekúndu á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur og Felipe Massa á Ferrari á eftir honum. Formúla 1 8. október 2011 07:34
Button fremstur í flokki á lokaæfingunni Jenson Button á McLaren náði besta tíma á þriðju og síðustu æfingu Formúlu 1 ökumanna á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann var 0.507 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren, en Sebastian Vettel á Red Bull var með þriðja besta tíma, 0.867 á eftir Button. Fjórði varð Fernando Alonso á Ferrari, 1.024 sekúndu á eftir Button. Formúla 1 8. október 2011 03:14
Button fljótastur á æfingum í Japan í nótt Jenson Button á McLaren náði besta tíma á báðum æfingum Formúlu 1 liða sem fóru fram á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Á fyrri æfingunni var hann aðeins 0.091 úr sekúndu fljótari en næsti ökumaður, sem var Lewis Hamilton á McLaren. Á síðari æfingunni var Button 0.174 úr sekúndu fljótari en Fernando Alonso á Ferrari. Formúla 1 7. október 2011 07:46
McLaren samdi við Button um áframhaldandi samstarf McLaren Formúlu 1 liðið tilkynnti í dag að liðið hefur gert áframhaldandi samstarfssamning við Jenson Button. Button er í öðru sæti í heimsmeistaramóti ökumanna á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull. Báðir keppa þeir í Formúlu 1 mótinu á Suzukua brautinni í Japan um helgina, þar sem Vettel getur tryggt sér meistaratitilinn í ár, en Button á enn tölfræðilega möguleika á að vinna meistaratitilinn. Formúla 1 5. október 2011 14:45
Vettel og Webber vilja létta japönskum áhorfendum lífið Formúlu 1 meistarinn Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull liðinu keppa í japanska Formúlu 1 kappakstrinum um næstu helgi og vonast eftir góðu móti, sem létt getur japönskum áhorfendum lífið. Japanska þjóðin hefur gengið i gegnum erfiðleika vegna náttúruhamfaranna sem voru í mars og Formúlu 1 ökumenn hafa sýnt þeim samhug í verki vegna þess. Formúla 1 3. október 2011 20:00
Schumacher sexfaldur sigurvegari á Suzuka brautinni Michael Schumacher hjá Mercedes liðinu er sá Formúlu 1 ökumaður sem hefur oftast fagnað sigri á Suzuka-brautinni í Japan, en keppt verður á brautinni um næstu helgi. Mótið er það fyrsta í Asíu á árinu, en keppt verður í Suður Kóreu um aðra helgi. Brautin í Suzuka er í uppáhaldi hjá mörgum ökumönnum, og Nico Rosberg liðsfélagi Schumacher, telur hana eina af þeim bestu sem notuð er á keppnistímabilinu, rétt eins og Schumacher. Formúla 1 3. október 2011 16:00
Button: Verður tilfinningaþrungið að keppa í Japan Bretinn Jenson Button hjá McLaren segir Japan vera sinn annan heimavöll í Formúlu 1, en hann á japanska kærustu sem heitir Jessica Mishibata. Hún er þekkt fyrirsæta í sínu heimalandi og þau skötuhjú dvelja þar oft á tíðum. Um tíma var óljóst hvort Formúlu 1 mótið í Japan gæti farið fram vegna náttúruhamfaranna sem urðu í landinu í mars, en Button telur að mótsthaldið geti gefið japönsku þjóðinni styrk, en miklill áhugi er á Formúlu 1 í Japan. Formúla 1 30. september 2011 20:30
Tolla og skattayfirvöld í Indlandi að hrella Formúlu 1 liðin Fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi fer fram í lok október, en snuðra er hlaupinn á þráðinn þar sem tolla og skattayfirvöld þar í landi eru ströng hvað allan innflutning varðar. Forráðamenn Formúlu 1 liða hafa verið í viðræðum við tilheyrandi aðila varðandi innflutning á bílum og starfsmönnum, en svo virðist sem skattleggja eigi bæði lið og ökumenn fyrir að koma til landsins. Formúla 1 28. september 2011 11:37
Kobayashi telur jákvætt að keppt sé í Japan eftir náttúruhamfarirnar Japanski Formúlu 1 ökumaðurinn Kamui Kobayashi verður á heimavelli í næstu keppni, sem verður í Japan um aðra helgi. Hann hefur stutt landa sína með ráði og dáð eftir náttúruhamfarirnar í Japan fyrr á árinu og útbjó m.a. rafræna Formúlu 1 bók í samstarfi við ökumenn og keppnisliðin til styrktar Rauða krossinum í Japan. Formúla 1 27. september 2011 14:36
Vettel og Red Bull vilja taka titilinn með trompi Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að liðið og Sebastian Vettel vilji landa meistaratitli ökumanna með sigri í næsta móti sem er í Japan eftir hálfan mánuð. Vettel nægir tíunda sætið í mótinu og eitt stig, til að verða meistari þegar fimm mótum er ólokið á tímabilinu. Formúla 1 26. september 2011 15:51
Whitmarsh segir að Hamilton muni læra sína lexíu Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins hefur komið Formúlu 1 ökumanninum Lewis Hamilton til varnar, en Hamilton var harðlega gagnrýndur af Felipe Massa eftir mótið í Singapúr í gær. Hamilton keyrði aftan á Massa og hefur lent öðrum árekstrum á árinu. Formúla 1 26. september 2011 15:09
Stewart: Hamilton þarf að skoða hugarástand sitt Jackie Stewart sem er þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton hjá McLaren þurfi að nálgast aksturinn á annan hátt í mótum en raunin er á köflum. Hamilton ók aftan á Ferrari ökumanninn Felipe Massa í keppninni í Singapúr í gær og hefur lent í óhöppum á þessu ári sem hann var valdur að. Formúla 1 26. september 2011 14:25
Vettel: Mjög ánægður með árangurinn Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu vann Formúlu 1 kappakstursmótið í Singapúr í dag og þegar fimm mótið er ólokið er hann aðeins einu stigi frá því að tryggja sér meistaratitilinn í Formúlu 1, annað árið í röð. Eftir mótið í dag getur aðeins Jenson Button há McLaren liðinu komið í veg fyrir það tölfræðilega séð. Formúla 1 25. september 2011 19:11
Vettel sigraði í Singapore - komin með níu fingur á titilinn Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að Sebastian Vettel, Red Bull, verði heimsmeistari í keppni ökumanna í Formúlu 1. Formúla 1 25. september 2011 14:32
Vettel getur orðið meistari í dag, en Hamilton í vandræðum Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu getur orðið heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 mótinu í Singapúr í dag, ef úrslitin í mótinu verða honum hagstæð. Vettel er fremstur á ráslínu, en fjórir keppinautar hans um titilinn eru í næstu sætum á eftir. Formúla 1 25. september 2011 10:19
Vettel getur slegið met Sebastian Vettel var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Singapúr í dag. Hann náði besta tíma og hefur ellefu sinnum verið fremstur á ráslínu í Formúlu 1 á þessu ári. Vettel getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn annað árið í röð ef úrslitin í kappakstrinum á sunnudag verða honum hagstæð. Formúla 1 24. september 2011 23:10
Vettel fremstur á ráslínu í ellefta skipti í ár Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Hann ók á tímanum 1:44.381 og Mark Webber á Red Bull náði næst besta tíma og var 0.351 úr sekúndu á eftir Vettel. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.428 sekúndum á eftir Vettel. Vettel verður fremstur á rásllínu í ellefta skipti á árinu í kappakstrinum á morgun. Formúla 1 24. september 2011 15:34