NASCAR tímabilið hefst með hvelli með Daytona 500 Matt Kenseth sem ekur fyrir Roush Fenway sigraði Daytona 500 kappaksturinn, fyrsta mót ársins í NASCAR í Bandaríkjunum. Daytona 500 er stærsti götubílakappakstur ársins í Bandaríkjunum. Formúla 1 28. febrúar 2012 17:30
Marussia stóðst ekki árekstursprófanir og fær ekki að æfa Marussia liðið fær ekki að æfa í síðustu í æfingalotu Formúlu 1 liða sem fram fer í Barcelona í lok vikunnar. Nýji bíllinn stóðst ekki árekstursprófanir FIA og er því ólöglegur. Formúla 1 28. febrúar 2012 08:00
Alain Prost: Williams í miklum peningavandræðum Alain Prost, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður Williams liðsins, segir sitt gamla lið vera í mjög miklum vandræðum með að fjármagna sig. Formúla 1 27. febrúar 2012 21:15
Webber er undir smásjánni hjá Red Bull Mark Webber, ástralski ökumaður Red Bull, segist ekki leiða hugann að öllum keppnautum sínum sem vilja sæti hans fyrir árið 2013. Formúla 1 27. febrúar 2012 19:00
Jenson Button: Liðin of jöfn til að skera úr um yfirburði Jenson Button, ökumaður McLaren liðsins telur að Sebastian Vettel muni ekki hafa eins mikla yfirburði og hann hafði í fyrra. Formúla 1 23. febrúar 2012 22:28
Hulkenberg fljótastur á öðrum degi æfinga Formúlu liða Nico Hulkenberg, þýski ökumaður Force India liðsins, var fljótastur þegar æfingum lauk í Barcelona í dag. Tímann setti hann fyrir hádegi og reyndi enginn að taka fyrsta sætið af honum síðdegis. Formúla 1 22. febrúar 2012 22:44
Ross Brawn: Draumurinn að Schumacher sigri aftur Ross Brawn liðstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir það vera draum sinn að Michael Schumacher standi aftur á efsta þrepi verðlaunapallsins í mótum ársins. Brawn stýrði líka Ferrari í sigurtíð Schumachers þar. Formúla 1 22. febrúar 2012 08:00
Vettel fljótastur á æfingum dagsins í Barcelona Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra á æfingum í Barcelona í dag. Alls tóku ellevu lið þátt á þessum fyrsta degi æfinga í Barcelona. Formúla 1 21. febrúar 2012 22:47
Engar liðskipanir hjá Red Bull í sumar Ökumenn Red Bull liðsins í Formúlu 1 munu hafa jafna stöðu í mótum ársins. Þetta sagði Dietrich Matesichitz eigandi Red Bull. Formúla 1 20. febrúar 2012 21:45
Hamilton eyðir tíma með fyrrverandi Þó að þau hafi hætt saman í nóvember eru Lewis Hamilton (27) og söngkonan Nicole Scherzinger (33) enn góðir vinir. Hamilton tilkynnti á Twitter fyrir helgi að hann væri á tónleikum Nicole í Dublin að hún hefði verið frábær. Formúla 1 20. febrúar 2012 17:15
Adrian Newey með snjalla lausn á afturenda Red Bull bílsins Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull liðsins hefur enn á ný fundið "snjalla" lausn á nýjum reglum um útblásturskerfi bílsins. Nýlega voru "blásnir loftdreifar" bannaðir en þar lágu helstu yfirburðir Red Bull bílsins síðustu ár. Formúla 1 20. febrúar 2012 12:26
Sterling Moss: Vettel er Fangio nútímans Formúlu 1 goðsögnin Sterling Moss segir heimsmeistarann Sebastian Vettel vera jafnoka Juan Manuel Fangio í nútímanum. Formúla 1 18. febrúar 2012 22:45
Schumacher kostar Mercedes 95 milljónir á mánuði Heimsmeistarinn sjöfaldi Michael Schumacher kostar Mercedes liðið um 95.000.000 króna á mánuði. Þetta lét framkvæmdastjóri Daimler bílaframleiðandans hafa eftir sér. Daimler á Mercedes-Benz verksmiðjurnar sem reka kappaksturslið AMG Mercedes. Formúla 1 17. febrúar 2012 22:45
Petrov ekur fyrir Caterham í stað Trulli Rússneski ökuþórinn Vitaly Petrov sem var á mála hjá Renault liðinu á síðasta tímabili hefur nú gengið til liðs við Caterham og mun aka þar í ár í stað Jarno Trulli sem ekið hefur fyrir liðið frá því það kom fyrst til sögunnar árið 2010. Formúla 1 17. febrúar 2012 16:45
Schumacher hræðir Rosberg ekki Liðsfélagi Michael Schumacher hjá Mercedes liðinu, þjóðverjinn Nico Rosberg, segir sjöfalda heimsmeistarann ekki hræða sig. Schumacher hefur þriðja ár endurkomu sinnar í Formúlu 1 í ár. Formúla 1 15. febrúar 2012 20:15
Fimm lið gætu keppt um heimsmeistaratitilinn í Formúlu eitt í ár Keppnisliðin í Formúlu 1 luku fyrstu æfingalotu sinni á Jerez brautinni á Spáni í síðustu viku. Niðustöður æfingana gefa til kynna að tímabilið í ár verður spennandi og telja sérfræðingar fimm lið eiga möguleika á að keppast um titilinn. Formúla 1 14. febrúar 2012 22:15
"Bílarnir 2012 eins og Heidi Klum án barms" Mikil umræða hefur skapast um nýstárlega hönnun F1 bílanna í ár. Ljótur framendi, of mjó dekk og of lítill afturvængur er það sem stingur sérfræðinga sérstaklega í augun. Formúla 1 13. febrúar 2012 14:30
Nýr bíll HRT stenst ekki árekstrarpróf og ekur ekki fyrr en í mars Bíll HRT liðsins í Formúlu 1 stóðst ekki árekstrarprófanir FIA og fær því ekki keppnisleyfi að svo stöddu. Nýr HRT bíll verður ekki frumsýndur fyrr en liðið hefur bætt úr þessu. HRT æfir því ekki á nýjum bíl fyrr en í byrjun mars, á síðustu æfingalotunni af þremur í ár. Formúla 1 13. febrúar 2012 13:15
Alonso fremstur á síðasta degi æfinga Fernando Alonso, Spánverjinn knái hjá Ferrari, átti besta tíma dagsins á síðasta æfingadegi Formúlu 1 liða á Jerez-brautinni á Spáni. Tími Alonso er næst besti hringtími settur á Jerez brautinni á 2012-bíl. Það var kalt á Spáni í dag og hafði það veruleg áhrif á æfingar liðanna. Formúla 1 10. febrúar 2012 22:15
Ferrari ósátt með nýja bílinn á æfingum Tæknistjóri Ferrari liðsins, Pat Fry, sagðist ekki vera ánægður með stöðu Ferrari liðsins það sem af er. "Ég er ekki ánægður með hvar við stöndum í augnablikinu," sagði hann. "Það eru margir fletir sem þarf að endurskoða. Bíllinn virkar ágætlega sumstaðar en það á ekki við um allar aðstæður." Formúla 1 9. febrúar 2012 20:30
Rosberg fljótastur en heimsmeistarinn þriðji Nico Rosberg á Mercedes bíl síðasta árs var fljótastur á þriðja degi æfinga á Jerez-brautinni á Spáni í dag. Rosberg er liðsfélagi Michaels Schumachers sem ekkert fékk að aka í dag eftir að hafa verið fljótastur í gær á sama bíl. Formúla 1 9. febrúar 2012 17:30
Paul di Resta: Furðulegu bílarnir betri í ár Skoski ökuþórinn Paul di Resta hjá Force India liðinu sagði í viðtali á Spáni í dag að nýju bílarnir væru betri en þeir í fyrra þrátt fyrir strangari reglur. Æfingatímabil F1 liða stendur nú yfir. Vænta má betri hringtíma í mótum ársins að mati di Resta. Formúla 1 9. febrúar 2012 17:18
Schumacher fljótastur á æfingum dagsins Michael Schumacher, á 2011 árgerð Mercedes bílsins, var fljótastur á æfingum F1 liða á Jerez brautinni á Spáni í morgun. Æfingatímabil keppnisliða hófst í gær þegar Kimi Raikkönen var fljótastur á 2012 árgerð Lotus liðsins. Kimi varð síðan fimmti á æfingum dagsins. Formúla 1 8. febrúar 2012 16:39
Barrichello íhugar tilboð frá Indy kappakstursliði Rubens Barrichello hefur á undanförnum dögum tekið þátt í æfingaakstri hjá KV Racing Technology sem staðsett er í Bandaríkjunum. Svo gæti farið að hinn 39 ára gamli Brasilíumaður keppi í Indy kappakstrinum en Barrichello hefur keppt í 19 ár sem Formúlu 1 ökumaður. Formúla 1 6. febrúar 2012 23:00
Hamilton yfirgefur Sviss og flytur til Mónakó Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó en Lewis hefur búið í Sviss frá árinu 2007. Hamilton bjó fyrstu þrjú árin í Genf en hann hefur búið í Zürich undanfarin misseri. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er Hamilton frekar leiður á rólegheitunum í Sviss. Formúla 1 6. febrúar 2012 17:00
Hamilton: Ég missti alla einbeitingu á síðasta tímabili Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að hann hafi misst einbeitinguna bæði innan sem og utan brautarinnar árið 2011. Formúla 1 5. febrúar 2012 19:45
Hamilton á sér leynda tónlistardrauma Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa varið frítíma sínum í að taka upp frumsamin lög í hljóðveri í Englandi. Formúla 1 1. janúar 2012 23:15
Button: Finnst að okkar tími sé að koma Jenson Button varð í öðru sæti í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili á eftir Sebastian Vettel. Hann telur að ef McLaren liðið bætir sig aðeins fyrir næsta ár þá geti liðið barist um fleiri sigra en í ár. Fyrstu æfingar Formúlu 1 liða fyrir næsta keppnistímabil verða í febrúar á Spáni. Formúla 1 23. desember 2011 13:00