Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. Innlent 8. september 2024 12:35
Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7. september 2024 12:13
Af hættustigi niður á óvissustig Almannavarnastig hefur verið fært af hættustigi niður á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Það er Ríkislögreglustjóri sem ákveður þetta í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 6. september 2024 11:14
Eldgosinu er lokið og landris hafið í Svartsengi Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell sem hófst þann 22. ágúst er nú lokið en engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum á svæðinu í um hálfan sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Innlent 6. september 2024 09:49
Telja að eldgosinu sé lokið Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segja að svo virðist sem eldgosinu á Reykjanesskaga sé lokið. Verulega hafi dregið úr krafti gossins síðustu daga og í dag hafi ekki sést til glóðar þegar flogið var yfir eldstöðvarnar. Innlent 5. september 2024 21:00
Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. Innlent 5. september 2024 20:20
Gasmengun berst yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld Gasmengun mun berast yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld og á morgun frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð. Vegna ríkjandi suðvestanáttar berst gosmengunin til norðausturs og suðvestanátt er í kortunum næstu daga. Innlent 5. september 2024 16:14
„Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5. september 2024 14:18
Vísbendingar um að land rísi enn á ný GPS mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hefur dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Innlent 5. september 2024 14:03
Gekk yfir nýstorknað hraun á leið frá gígnum Ferðamaðurinn sem sást aðeins nokkra metra frá spúandi eldgíg á Reykjanesi í gær gekk yfir nýstorknað hraun sem gaf sig undan fótum hans á leið sinni til baka. Stutt er niður á glóandi hraun við slíkar aðstæður. Innlent 4. september 2024 14:43
Gekk upp að eldgígnum og veifaði dróna Leiðsögumaður sem náði drónamynd af erlendum ferðamanni rétt upp við virkan gíg á Reykjanesi furðar sig á að lögregla geti ekkert gert í atvikum sem þessum. Hann segir ferðamanninn hafa verið nálægt því að falla ofan í hraun á leið sinni til baka. Innlent 4. september 2024 10:13
Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3. september 2024 12:52
Skjálftavirkni minnkað við kvikuganginn Virkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni hefur haldist óbreytt síðastliðinn sólarhring en tólf dagar eru síðan gosið hófst. Sem fyrr er of snemmt að segja til um hvort landris sé hafið að nýju á Reykjanesskaga. Innlent 2. september 2024 22:34
Fréttamaðurinn hafi vart getað varist hlátri Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis fer um víðan völl í viðtali á Sprengisandi í dag. Hann ræðir grundvallarréttindi borgaranna og spyr hvort viðhorf stjórnvalda hafi breyst eftir tíma heimsfaraldurs og eldsumbrota. Fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi vart getað varist hlátri fyrir tveimur árum við lestur fréttar um að umboðsmaður hefði sett spurningarmerki við samkomutakmarkanir. Innlent 1. september 2024 16:16
Reisa 350 metra af girðingum á dag Vinna við að fylla í sprungur og girða af hættuleg svæði í Grindavík er hafin. Tæplega sjö kílómetrar af girðingu verða lagðir. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum í október. Innlent 1. september 2024 13:31
Of snemmt að segja til um landris Of snemmt er að segja til um hvort landris sé hafið á Reykjanesskaga að nýju, en náttúruvársérfræðingur segir líklegt að sú verði raunin. Útlit er fyrir mikla loftmengun frá gosstöðvunum. Innlent 31. ágúst 2024 13:29
Margfölduð áhrif þegar gasmengun og svifryk blandast Líkur eru á áframhaldandi loftmengun í Vogum og Suðurnesjum í dag. Áhrif á loftgæði margfaldast þegar gasmengun frá eldgosinu blandast við svifryk frá gróðureldum á svæðinu. Vonir eru bundnar við að mikil úrkoma slökkvi eldana næsta sólarhringinn. Innlent 31. ágúst 2024 11:00
Mikil brennisteinsmengun í Vogum Gildi brennisteinsdíoxíðs og svifryks hefur mælst vel yfir heilbrigðismörkum í Vogum á Vatnsleysuströnd í allan dag. Mengun stafar bæði af gosmóðu sem leggur yfir bæinn og reyks frá gróðureldum sem brenna við eldgosið. Innlent 30. ágúst 2024 22:23
Gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni fram eftir degi Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar við að gosmóðu og gasmengun sem nú liggur nú yfir höfuðborginni og berst frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð. Vegna ríkjandi sunnanáttar berst gosmengun til norðurs og mun það ástand vara fram eftir degi samkvæmt Veðurstofu Íslands. Með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn. Innlent 30. ágúst 2024 10:00
Meiri skjálftavirkni en í fyrri gosum Síðustu sólarhringa hefur virknin í eldgosinu haldist nokkuð stöðug. Enn eru tveir meginstrókar virkir og eru enn nokkuð kröftugir samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Hraun flæðir að mestu til norðvesturs en einnig til austurs. Meginstraumurinn er til norðvesturs en framrásin er mjög hæg. Innlent 29. ágúst 2024 17:58
Flýgur þyrlunni á myndbandinu og braut engar reglur Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. Innlent 29. ágúst 2024 11:09
Engin gosmóða í dag Litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum í nótt og ekki má búast við gosmóðu yfir suðvesturhorninu í dag. Innlent 29. ágúst 2024 07:27
Betra að blása eða skola nornahárin af til að koma í veg fyrir skemmdir Bergrún Arna Óladóttir, gjóskulagafræðingur á Veðurstofu Íslands, segir nornahár ekki ný af nálinni. Það þurfi ekki að óttast þau en hún hvetur þó fólk frekar til að skola eða blása þau burt en að bursta þau eða nudda þau burt liggi þau á bíl eða trampólíni. Bergrún ræddi nornahárin í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Innlent 28. ágúst 2024 21:02
Stórkostlegt sjónarspil yfir gosstöðvunum Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, fangaði ótrúlegt sjónarspil við gosstöðvarnar í nótt. Innlent 28. ágúst 2024 06:33
Spánverjar rekja „úldna eggjalykt“ til eldgossins Sérfræðingur í loftgæðamálum segir það vel geta gerst að gosmóða geti borist suður á bóginn og jafnvel til Spánar. Þar í landi kvarta menn undan „úldinni eggjalykt“ sem er rakin til eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 27. ágúst 2024 21:45
Þyrlur í lágflugi við eldgosið Þyrlur með ferðamenn hafa verið á flugi við eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan byrjaði að gjósa á fimmtudagskvöldið. Sumar hafa hætt sér ansi nálægt gígnum. Innlent 27. ágúst 2024 15:22
Börn sofi ekki úti í vagni vegna gosmóðu Þess má vænta að töluverð gosmóða og reykur frá gróðureldum vegna eldgossins við Sundhnúksgíga leggist yfir byggð í dag. Gosvirkni hefur verið stöðug í nótt og strókavirkni kröftug. Innlent 27. ágúst 2024 07:19
Sýnileg gasmengun en ekki hættuleg Gasmengun mælist í Reykjanesbæ og nágrenni vegna eldgossins sem enn mallar á Reykjanesskaga. Að sögn náttúruvársérfræðings stafar ekki hætta af menguninni. Innlent 26. ágúst 2024 20:15
Fundu virka sprengju nærri gönguleið Virk sprengja hefur fundist nærri gönguleið sunnan Voga og sunnan Reykjanesbrautar við upphaf eldgossins. Svæðið er þekkt sprengjusvæði, en þar stóð bandaríski herinn fyrir skotæfingum allt fram til ársins 1960. Innlent 26. ágúst 2024 19:15
Gosið það stærsta til þessa síðan jarðhræringar hófust Eldgosið sem nú stendur yfir á Reykjanesi er það stærsta á Sunhnúksgígaröðinni frá því að jarðhræringar hófust á svæðinu í fyrrahaust. Landris mælist enn í Svartsengi og áfram gýs á svæðinu norðaustan við Stóra-Skógfell. Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir að mengun frá eldgosinu auk gróðurelda verði meðal annars í Svartsengi, Reykjanesbæ og í Vogum. Innlent 26. ágúst 2024 15:38