„Yfirþyrmandi banvænt afl“ Bandaríkjanna varð fleiri leiðtogum Húta að bana Umfangsmiklar loftárásir Bandaríkjanna á skotmörk í Jemen í gærkvöld urðu nokkrum leiðtogum Húta að bana að sögn þjóðaröryggisráðgjafa. Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því að beita Húta „yfirþyrmandi banvænu afli“ þar til þeir létu af árásum sínum á skip á Rauðahafi. Erlent 16. mars 2025 15:11
Bannaði Trump að nota lög frá átjándu öld Bandarískur alríkisdómari meinaði í gærkvöldi Donald Trump, forseta, að nota lög frá lokum átjándu aldar til að gera auðveldara að flytja farand- og flóttafólk úr landi. Skipaði hann ríkisstjórn Trumps að snúa við flugvélum með fólki sem verið var að flytja úr landi. Erlent 16. mars 2025 14:35
Hver reif kjaft við hvern? Undanfarna daga hefur mikið verið rætt um alræmdan fréttamannafund sem fram fór í Hvíta húsinu föstudaginn 28.febrúar síðastliðinn. Hann er þegar kominn á spjöld sögunnar. Á honum voru tveir megin gerendur; Donald Trump, forseti Bandaríkjanna og Volodimír Zelenský, forseti Úkraínu, en þó með veigamikilli innkomu varaforsetans, J.D.vance. Skoðun 16. mars 2025 09:30
Gera umfangsmiklar árásir á Húta: „Tími ykkar er liðinn“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skipaði her sínum í gærkvöldi að hefja umfangsmiklar loft- og eldflaugaárásir gegn Hútum í Jemen. Hét hann því að beita áfram „yfirþyrmandi banvænu afli“ þar til Hútar létu af árásum sínum á skip á Rauðahafi og gagnrýndi hann Joe Biden, forvera sinn, fyrir meintan veikleika. Erlent 16. mars 2025 07:44
Níu mánaða geimferð sem átti að taka átta daga lýkur Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna og SpaceX skutu í gærkvöldi fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, þar sem þeir eiga að leysa af hólmi tvo geimfara sem verið nokkurs konar strandaglópar í geimstöðinni í níu mánuði. Erlent 15. mars 2025 09:59
Segir sendiherra hata Trump og Bandaríkin Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að sendiherra Suður-Afríku væri ekki lengur velkominn í Bandaríkjunum. Rubio sagði Ebrahim Rasool ýta undir rasisma og að sagði sendiherrann hata Bandaríkin og Donald Trump, forseta. Erlent 15. mars 2025 07:47
Bað Pútín um að hlífa hermönnum sem enginn kannast við Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann og/eða erindrekar hans hafi átt gott og uppbyggilegt samtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í gær. Hann segir góðar líkur á því að hægt verði að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu, þó Pútín hafi hafnað vopnahléstillögu Bandaríkjamanna í gær og lagt fram viðbótarkröfur. Erlent 14. mars 2025 15:52
Forsvarsmenn Tesla gjalda varhug við tollaaðgerðum stjórnvalda Forsvarsmenn Tesla hafa sent erindi á Jamieson Greer, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, þar sem segir að fyrirtækið styðji „sanngjarna viðskiptahætti“ en að stjórnvöld þurfi að tryggja að aðgerðir þeirra komi ekki niður á innlendum fyrirtækjum. Erlent 14. mars 2025 11:50
Lúffar af ótta við enn meira niðurrif Trumps Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, lýsti því yfir í gær að hann ætlaði sér að greiða atkvæði með tímabundnu fjárlagafrumvarpi Repúblikana í dag. Þannig dró hann verulega úr líkunum á því að rekstur alríkisins myndi stöðvast á miðnætti en Schumer sagðist telja það skárri kostinn af tveimur slæmum. Erlent 14. mars 2025 11:38
„Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn. Nei, við viljum ekki vera Danir. Við viljum vera Grænlendingar og við viljum sjálfstæði í framtíðinni,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, formaður formaður Demokraatic, fyrir þingkosningarnar í síðust viku. Erlent 14. mars 2025 06:36
Gerir lítið úr tilkalli Dana til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti segist halda að Bandaríkin muni innlima Grænland. Fráfarandi formaður landstjórnar Grænlands, Múte B. Egede, hefur ítrekað undirstrikað það í viðtölum að Grænlendingar hafi engan áhuga á því að ganga inn í Bandaríkin. Erlent 13. mars 2025 18:00
Segist opinn fyrir vopnahléi en hafnar tillögu Trumps Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist heilt yfir hlynntur því að samþykkja þrjátíu daga vopnahlé í Úkraínu, en því fylgi ákveðin skilyrði og vandkvæði. Hann í raun hafnaði tillögu Bandaríkjamanna á þeim grundvelli að Úkraínumenn myndu hagnast á því og sagðist vilja að vopnahlé leiddi til langvarandi friðar og að „rætur“ innrásar Rússa í Úkraínu yrðu ávarpaðar. Erlent 13. mars 2025 16:06
Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Donald Trump hefur hótað að setja á tvö hundruð prósenta toll á áfengar útflutningsvörur frá Evrópusambandsríkjum. Viðskipti erlent 13. mars 2025 13:06
Ráðgjafi Pútíns segir tillögu Trumps tilgangslausa Tillaga Bandaríkjamanna um þrjátíu daga vopnahlé í Úkraínu þjónar engum tilgangi, samkvæmt ráðgjafa Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Vopnahlé yrði eingöngu tímabundin pása fyrir úkraínska hermenn, sem ættu undir högg að sækja. Erlent 13. mars 2025 11:55
Umhverfisvernd ekki lengur meðal markmiða EPA Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (EPA) hefur nú það hlutverk að greiða fyrir markmiðum stjórnvalda um að lækka kostnaðinn við að kaupa bíl, hita heimilið og reka fyrirtæki. Erlent 13. mars 2025 10:35
Rekin eftir að hafa neitað að endurnýja byssuleyfi Mels Gibson Náðunarfulltrúi dómsmálaráðuneytisins var rekinn degi eftir að hafa neitað að endurnýja byssuleyfi Mels Gibson, yfirlýsts stuðningsmanns Donalds Trump, en hann var sviptur því árið 2011 vegna heimilisofbeldisdóms. Ráðuneytið segir brottrekstur fulltrúans ekki tengjast Gibson. Erlent 13. mars 2025 09:33
Handtekinn á vafasömum forsendum og hótað brottflutningi Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið og hyggjast flytja úr landi mann sem fór fyrir mótmælaaðgerðum gegn stríðinu á Gasa á skólalóð Columbia-háskóla í fyrra. Erlent 13. mars 2025 06:49
Lýsandi talaði um að Trump vildi eignast Ísland Afar sérstök ummæli féllu í lýsingu frá leik í bandaríska háskólakörfuboltanum í gær, um Ísland og Donald Trump. Körfubolti 12. mars 2025 15:32
Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Ráðamenn í Kanada hafa tilkynnti viðbragðstolla á innfluttar vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump setti 25 prósenta toll á innflutning stáls og áls til Bandaríkjanna. Fjármálaráðherra Kanada segir tolla Trumps og árásir hans á hagkerfi Kanada vera óréttláta. Viðskipti erlent 12. mars 2025 14:47
Trump-tollar geti haft óbein áhrif á Íslendinga Tollastríð er hafið á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að Íslendingar geti orðið fyrir óbeinum áhrifum af tollum Bandaríkjaforseta og unnið er að greiningu á nýjum ESB-tollum. Viðskiptahættir í heiminum séu að gjörbreytast. Viðskipti innlent 12. mars 2025 11:51
„Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, setti í gær 25 prósenta toll á innflutning á stáli og áli. Evrópusambandið hefur tilkynnt eigin tolla á vörur frá Bandaríkjunum og er útlit fyrir að viðskiptastríð sé hafið. Viðskipti erlent 12. mars 2025 11:32
Tollar Trump á stál og ál taka gildi Tuttugu og fimm prósenta tollur Donald Trump Bandaríkjaforseta á allt innflutt stál og ál tók gildi á miðnætti. Breytingin er talin munu hafa verulega áhrif á innlenda framleiðendur bifreiða, áldósa, sólarrafhlaða og fleiri. Erlent 12. mars 2025 06:50
Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að setja fimmtíu prósent tolla á stál og ál sem flutt er til landsins frá Kanada. Hótar hann viðbrögðum sem lesið verði um í sögubókum framtíðarinnar. Hann segir það besta sem Kanadamenn geti gert vera að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 11. mars 2025 15:12
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Í vandræðum í Kúrsk en bætt staða í austri Úkraínskir hermenn eiga í töluverðum vandræðum í Kúrskhéraði í Rússlandi, þar sem yfirráðasvæði þeirra hefur dregist mjög saman. Mögulegt er að hermenn verði umkringdir eða þurfi að hörfa frá bænum Sudzha í héraðinu. Erlent 11. mars 2025 09:02
Bandaríkjamenn og Úkraínumenn funda eftir munnhöggin í Hvíta húsinu Sendinefndir Bandaríkjanna og Úkraínu eru komnar til Sádí-Arabíu en fundur þeirra fer fram á morgun þar sem þess verður freistað að bæta skaddað samband þjóðanna og ræða mögulegt vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands. Erlent 10. mars 2025 23:48
Sögulegar kosningar í skugga ásælni Trumps Á morgun ganga Grænlendingar til þingkosninga sem verða, að sögn formanns landstjórnarinnar, þær örlagaríkustu síðari tíma. Grænlendingar hafa setið undir stöðugum hótunum um innlimun inn í Bandaríkin og spurningin um sjálfstæði brennur á allra vörum. Erlent 10. mars 2025 22:30
Kaninn selur langmest af vopnum en framtíðin óviss Umsvif bandarískra hergagnaframleiðenda á heimsvísu hafa aukist til muna á undanförnum árum. Frá 2020 til og með ársins 2024 seldu bandarísk fyrirtæki um 43 prósent af öllum hergögnum sem gengu kaupum og sölu ríkja á milli, talið í veltu, en fimm árin þar áður var hlutfallið 35 prósent. Erlent 10. mars 2025 13:03
Segir Bandaríkjaforseta sýna Grænlendingum lítilsvirðingu Formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir að Bandaríkjaforseti komi ekki fram við Grænlendinga af virðingu með hótunum sínum um að yfirtaka eyjuna. Hann vill sjá breiða samsteypustjórn eftir kosningar til grænlenska þingsins sem fara fram á morgun. Erlent 10. mars 2025 09:08
Óður til Grænlands „Getur þú ímyndað þér að þurfa alltaf að tala annað tungumál á fundum sem skipta einhverju raunverulegu máli í þínu eigin heimalandi?“ spurði grænlensk samstarfskona mig fyrir nokkrum árum og vísaði hér til dönsku. „Þú upplifir að þú sért óæðri á einhvern hátt, þó að það sé kannski ekki ætlunin, þá seytlast sú tilfinning smátt og smátt inn.“ Skoðun 10. mars 2025 07:47
Trump útilokar ekki samdrátt í kjölfar efnahagsaðgerða sinna Donald Trump Bandaríkjaforseti útilokaði ekki í viðtali sem birtist á Fox News í gær að Bandaríkjamenn horfðu fram á samdrátt í kjölfar aðgerða hans í efnahagsmálum. Erlent 10. mars 2025 07:16