Átján mánaða fangelsi fyrir innbrot og nauðgun Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa brotist inn á heimili vinkonu sinnarog naágranna og nauðgað henni. Maðurinn var jafnframt dæmdur til greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur. Innlent 9. nóvember 2021 23:01
Brotavilji Jóhannesar talinn bæði sterkur og einbeittur Landsréttur telur að brotavilji Jóhannes Tryggva Sveinbjörnssonar, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum hafi bæði verið einbeittur og sterkur. Hann hafi framið alvarleg brot gegn konunum, í skjóli trúnaðartrausts sem þær báru til hans. Innlent 8. nóvember 2021 20:03
Isavia sýknað af bótakröfu vegna útboðs á verslunarrými Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í síðasta mánuði Isavia af bótakröfu fyrirtækisins Drífu ehf., sem fer með rekstur Icewear. Drífa krafðist bóta úr hendi Isavia vegna þess að fyrirtækinu var ekki úthlutað verslunarrými á Keflavíkurflugvelli í kjölfar útboðs árið 2014. Innlent 8. nóvember 2021 17:58
„Þetta er hárrétt niðurstaða“ Jón Baldvin Hannibalsson var í morgun sýknaður af ákæru fyrir kynferðislega áreitni í garð Carmenar Jóhannsdóttur. Lögmaður Jóns Baldvins segir dóminn vel rökstuddan og að það hafi verið hárrétt niðurstaða að sýkna. Saksóknari segir niðurstöðuna ekki í samræmi við það sem héraðssaksóknari lagði upp með en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað. Innlent 8. nóvember 2021 12:30
Vitnisburður Carmenar og Laufeyjar talinn ósamrýmanlegur Héraðsdómur Reykjavíkur taldi vitnisburð Laufeyjar Óskar Arnórsdóttur, sem sakar Jón Baldvin Hannibalsson um að hafa áreitt dóttur sína Carmen Jóhannsdóttur kynferðislega á Spáni, vera óstöðugan og að sumu leyti ósamrýmanlegur vitnisburði Carmenar. Innlent 8. nóvember 2021 11:33
Jón Baldvin sýknaður í héraðsdómi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var í morgun sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru fyrir kynferðislega áreitni á Spáni. Innlent 8. nóvember 2021 09:37
„Uppbyggileg réttvísi“ getur gagnast bæði þolendum og gerendum: Horft til réttlætis en ekki refsinga Svokölluð uppbyggileg réttvísi gæti verið gott úrræði til að eiga við brot utan dómskerfis. Ferlið feli í sér áherslu á réttlæti en ekki refsingar og getur dregið úr áfallastreituröskun þolenda. Eins eru gerendur síður líklegir til að endurtaka brot sín. Innlent 6. nóvember 2021 14:01
Með óaðfinnanlega hnýtta þverslaufu á Kvíabryggju Vinjettuhöfundurinn Ármann Reynisson á að baki einstakt lífshlaup. Í þessu höfundatali segir hann meðal annars af dvölinni á Kvíabryggju en þar var hann eins og hvítur hrafn. Þá kemur hann inn á þá útskúfun sem hann telur sig hafa mátt sæta af hálfu þeirra sem tilheyra menningarelítunni. Menning 6. nóvember 2021 07:00
Þórunn Antonía leitaði réttlætis eftir nauðgun: „Það tók allt sem ég á.“ „Ég sit núna heima hágrátandi yfir því að það sé loksins komin niðurstaða. Ég upplifi að ég sé búin að teyma á eftir mér öskrandi risa í mörg ár og einn af hlekkjunum er allavegana horfin úr þeirri lest.“ Innlent 5. nóvember 2021 23:18
Dómur þyngdur í sjö og hálfs árs fangelsi vegna tveggja hrottafenginna árása Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Þorláki Fannari Albertssyni í sjö og hálfs árs fangelsi vegna tilraunar til manndráps, alvarlegrar líkamsárásar og frelsissviptingar á síðasta ári. Hann hafði í byrjun árs verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 5. nóvember 2021 14:40
Landsréttur dæmdi meðhöndlarann í sex ára fangelsi Landsréttur þyngdi í dag refsingu yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum um eitt ár. Hann þarf því að afplána sex ára fangelsisdóm. Innlent 5. nóvember 2021 14:14
Héraðsdómur hafnaði nauðasamningi Gray Line Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun að staðfesta nauðasamning Allrahanda GL ehf. sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line. Félagið hyggst áfrýja niðurstöðunni til Landsréttar en það hefur verið í greiðsluskjóli frá því á seinasta ári. Viðskipti innlent 3. nóvember 2021 12:08
Mega skoða síma manns sem grunaður er um að hafa sent fjölmörg hótunarskilaboð Lögreglan á Suðurnesjum hefur fengið heimild til þess að fara yfir farsímagögn manns sem grunaður er um líkamsárás og umsáturseinelti. Þá telur lögregla að gögnin geti nýst í öðru sakamáli gegn manninum. Innlent 2. nóvember 2021 14:06
Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 1. nóvember 2021 17:56
Hestakona fær skertar bætur vegna ölvunar Hestakona krafðist þess að henni yrðu greiddar fullar bætur vegna líkamstjóns sem hún hlaut eftir fall af hestbaki. Tryggingarfélagið féllst ekki á það og taldi nærri lagi að greiða henni 1/3 hluta tjónsins. Innlent 31. október 2021 14:56
Mál Gráa hersins gegn Tryggingastofnun tekið til meðferðar Aðalmeðferð í máli þriggja félaga Gráa hersins gegn Tryggingastofnun vegna skerðinga á ellilífeyri hófst í morgun. Eftir hana var blásið til samstöðufundar á Austurvelli, þar sem ræðumenn fóru hörðum orðum um stöðu eldri borgara í íslensku samfélagi. Innlent 29. október 2021 20:03
Sparkaði af krafti í brjóstkassa sambýliskonu sinnar Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa veist að fyrrverandi sambýliskonu sinni og sparkað af afli í brjóstkassa hennar. Landsréttur þyngdi dóminn yfir manninum í héraði hvar hann hlaut þriggja mánaða dóm fyrir sparkið. Innlent 29. október 2021 16:58
Bréfberi fær engar skaðabætur frá Íslandspósti vegna hálkuslyss Íslandspóstur þarf ekki að greiða bréfbera skaðabætur vegna vinnuslys sem hann varð fyrir í desember 2015. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Innlent 29. október 2021 16:04
Sagði fullar vínflöskur af amfetamíni óvæntan vinning í skemmtun á Spáni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til innflutnings á um rúmum einum og hálfum lítra af amfetamínbasa ætluðum til söludreifingar hér á landi. Efnið flutti maðurinn, Friðrik Hansson, með flugi frá Barcelona til Keflavíkurflugvallar í mars 2019. Innlent 29. október 2021 11:01
Aðalmeðferð í máli eldri borgara gegn Tryggingastofnun hefst í dag Félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldri borgara um lífeyrismál, mættu í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun til að fylgjast með aðalmeðferð í máli félaga hópsins gegn Tryggingastofnun. Innlent 29. október 2021 10:10
Skalf og kastaði upp í aftöku í Oklahoma Hinn sextíu ára gamli John Marion Grant var tekinn af lífi í Oklahoma í Bandaríkjunum fyrr í dag. Grant hlaut dauðadóminn fyrir að hafa stungið starfsmann mötuneytis í fangelsi árið 1998. Áður hafði hann verið dæmdur í 130 ára fangelsi fyrir rán. Erlent 28. október 2021 23:39
Fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar á Hornafirði vegna kynferðisbrotamáls Nokkrir tugir íbúa og aðila tengdum sveitarfélaginu Hornafirði fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar í kjölfar dóms í kynferðisbrotamáli aðila tengdum bæjarstjóra sveitarfélagsins. Telja þeir illa hafa verið staðið að málum á meðan rannsókn lögreglu stóð og vísa til þess að starfsmanni, sem grunaður var um kynferðisbrot, hefði ekki verið vikið frá störfum. Innlent 28. október 2021 15:19
Hundruð milljóna króna deila um leigumál send aftur í hérað Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í hundruð milljóna krónu deilu Íþaka fasteigna og Fosshótela um leigugreiðslur vegna Fosshótels við Höfðatorg. Héraðsdómur þarf því að taka málið aftur fyrir. Viðskipti innlent 28. október 2021 15:10
Dópsali í sautján ára fangelsi vegna dauða Mac Miller Þrír menn voru ákærðir í tengslum við dauða rapparans Mac Miller. Einn hefur nú játað sekt sína að hluta og fallist á sautján ára fangelsisvist með dómsátt. Mac Miller lést árið 2018 eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum. Lífið 27. október 2021 23:29
Fjölskyldutengsl bæjarstjóra við geranda í kynferðisbrotamáli Sveitarfélagið Hornafjörður gaf frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumfjöllunar í tengslum við dómsmál fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu varðar dómsmálið brot þáverandi starfsmanns bæjarins gegn samstarfskonu í vinnuferð. Innlent 27. október 2021 20:03
Síbrotamaður sem rauf einangrun áfram í varðhaldi Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður rauf einangrun vegna Covid-19 og sýndi starfsmönnum farsóttarhúss mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns sitji áfram í gæsluvarðhaldi. Alls er lögregla með sautján mál tengd manninum til rannsóknar. Innlent 26. október 2021 14:02
Geislafræðingur sem ráðist var á við vinnu fær ekki bætur frá ríkinu Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum geislafræðings sem hafði við störf sín árið 2016 orðið fyrir líkamsárás. Vildi geislafræðingurinn meina að ríkið ætti að greiða henni bætur í samræmi við kjarasamninga ríkisins við Félag geislafræðinga. Innlent 26. október 2021 13:49
Klemmdist á Keflavíkurflugvelli og fær sextán milljónir Tryggingarfélagið Sjóvá þarf að greiða karlmanni sem starfaði hjá IGS á Keflavíkurflugvelli 16,3 milljónir, eftir vinnuslys sem varð í hvassviðri á flugvellinum. Maðurinn klemmdist á fæti við að ferma flugvél. Innlent 26. október 2021 11:34
Sex ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti Héraðssaksóknari hefur ákært nokkra einstaklinga fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti í tengslum við ræktun á fíkniefnum í iðnaðarbili í Kópavogi. Hjón og sonur þeirra eru á meðal þess eru ákærð í málinu. Innlent 25. október 2021 14:30
Þarf ekki að greiða fyrir graðhesta sem léku lausum hala Landeigandi í Hörgársveit þarf ekki að greiða kostnað sem féll á Hörgársveit þegar sveitarfélagið lét handsama tvo graðhesta sem sluppu og léku lausum hala á annarri jörð í Hörgársveit. Innlent 25. október 2021 08:55