Tveggja ára skilorðsbundinn dómur og 283 milljóna króna sekt Kaare Nordbö, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Concretum, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í fyrra. Viðskipti innlent 27. janúar 2023 16:11
Rak höfuðið í lögreglubíl við störf og fær bætur Íslenska ríkið þarf að greiða lögreglumanni sem slasaðist er hann rak höfuðið í þegar hann settist í lögreglubíl tæpar sex milljónir í bætur vegna slyssins. Innlent 27. janúar 2023 14:16
Hæstiréttur hafnar beiðni aðgerðarsinna Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Elínborgar Hörpu- og Önundarburs, aðgerðarsinna og baráttukvár fyrir réttindum flóttafólks, um að taka fyrir dóm Landsréttar frá í nóvember síðastliðinn þar sem Elínborg var dæmt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þrjú brot. Innlent 27. janúar 2023 10:42
Hryðjuverkaákæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök ákæruvaldsins haldi ekki Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. Innlent 26. janúar 2023 18:00
Dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fimmtuga pólska konu í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konan var sakfelld fyrir að hafa í ágúst síðastliðnum staðið að innflutningi á samtals 3800 ml af amfetamínbasa hingað til lands frá Varsjá í Póllandi. Framburður konunnar fyrir dómi þótti fjarstæðukenndur. Innlent 26. janúar 2023 16:02
Krefst rúmra 650 milljón króna af Lindarhvoli og ríkinu Í morgun var aðalmeðferð í máli Frigusar II ehf á hendur Lindarhvoli ehf og íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Lögmaður Fringusar, Arnar Þór Stefánsson, krefst þess að stefndu verði gert að greiða Frigusi óskipt 651.192.377 krónur með vöxtum og verðtryggingu frá 30. apríl 2019. Viðskipti innlent 26. janúar 2023 14:15
Gert að greiða samfanga miskabætur eftir árás með trékefli Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt fangann Þorláki Fannari Albertssyni til að greiða samfanga sínum 300 þúsund krónur í miskabætur eftir árás með trékefli inni á Litla-Hrauni á Eyrarbakka í desember 2020. Innlent 26. janúar 2023 12:26
Tók dæmi af bankaráni til að útskýra ákæruna í hryðjuverkamálinu Saksóknari og verjendur í hryðjuverkamálinu svokallaða takast nú um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í brotinu. Saksóknari segir ekki unnt að lýsa ætluðum brotum ákærðu með nákvæmari hætti en gert sé í ákærunni. Hann tók sem dæmi ímyndað bankarán til að styðja þá skoðun sína að ákæran ætti að fá efnislega meðferð fyrir dómi. Innlent 26. janúar 2023 11:01
Játa aðild en segja þætti sína veigalitla í stóra kókaínmálinu Tveir sakborningar í stóra kókaínmálinu játa aðkomu að málinu en segja sína þætti hafa verið veigalitla. Þeir segjast aðeins hafa haft afmörkuð hlutverk en ekki komið að skipulagningu málsins á neinn hátt. Innlent 26. janúar 2023 07:01
Misnotaði litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misnota litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár, frá því að stúlkan var ellefu ára gömul þar til hún var átján ára. Maðurinn braut meðal annars á stúlkunni á meðan að sambúðarkona hans, systir stúlkunnar, lá í sama rúmi og þau. Innlent 25. janúar 2023 11:54
Útboð vegna snjómoksturs endaði með málaferlum Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað Akureyrarbæ af kröfum verktaka sem krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna meintra brota á útboðsskilmálum og verksamningi aðila. Samningurinn var í framhaldi af útboði vegna snjómoksturs og hálkuvarna á Akureyri fyrir árin 2019 til 2022. Innlent 24. janúar 2023 15:11
Ríkissaksóknari og verjendur sammála að annmarkar hafi verið á dómi Landsréttar Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Lögmaður eins sakborninganna fagnar ákvörðun Hæstaréttar og mikilvægt að Hæstiréttur skoði þá annmarka sem voru á dómi Landsréttar. Innlent 24. janúar 2023 12:01
Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi. Innlent 23. janúar 2023 18:17
Morðið í Rauðagerði verður tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 23. janúar 2023 14:54
Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni. Innlent 23. janúar 2023 10:36
Flúði land í farbanni vegna nauðgunardóms Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Escobar Diaz, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir nauðgun fór af landi brott í desember síðastliðnum. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann í september síðastliðnum og bíða afplánunar í fangelsi á Íslandi. Innlent 22. janúar 2023 07:00
Gæsluvarðhald timbursalans staðfest Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Páli Jónssyni, timburinnflytjanda á sextugsaldri, í tengslum við stóra kókaínmálið svokallaða. Innlent 20. janúar 2023 19:47
„Auðvitað slær þetta hjúkrunarfræðinga“ Formaður félags hjúkrunarfræðinga fagnar viðurkenningu Landspítala á ófullnægjandi starfsumhverfi á geðdeild - en ástandið sé auðvitað óboðlegt víðar. Yfirlýsingin var birt í tengslum við mál hjúkrunarfræðings sem ákærð er fyrir manndráp. Málið, og önnur sambærileg, hvíli þungt á stéttinni. Innlent 20. janúar 2023 11:34
Hafa allir svarað fyrir sig í stóra kókaínmálinu Fjórir karlmenn sem sæta ákæru í stóra kókaínmálinu svokallaða gáfu skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Óhætt er að segja að framburður ákærðu hafi verið um margt athyglisverður. Héraðsdómari tók skýrt fram við upphaf aðalmeðferðar í morgun að fjölmiðlar mættu ekki grein frá því sem fram kæmi fyrr en að lokinni aðalmeðferð. Innlent 19. janúar 2023 16:38
Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að hann skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó í október 2021. Erlent 19. janúar 2023 16:28
Dæmdur fyrir þjófnaði á Selfossi og svik á Facebook-síðunni Reiðhjól til sölu Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í níutíu daga fangelsi, meðal annars fyrir að hafa látið konu millifæra upphæð inn á reikning vegna kaupa á reiðhjóli. Maðurinn hafði auglýst hjólið – fulldempað TREK-fjallahjól – á Facebook-síðunni Reiðhjól til sölu, en afhenti hjólið aldrei. Innlent 19. janúar 2023 11:01
Aðalmeðferð í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar fer fram í dag Aðalmeðferð í stóra kókaínmálinu svokallaða fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða langstærsta kókaínmál sem komið hefur upp hér á landi. Fjórum sakborningum í málinu er gefið að sök að hafa flutt inn um hundrað kíló af kókaíni, sem falin voru í sjö trjádrumbum. Reikna má með þungum dómum verði mennirnir fundnir sekir. Innlent 19. janúar 2023 08:01
Dómari tekur til skoðunar hvort vísa eigi hryðjuverkalið frá Tveir karlmenn sem sæta ákæru fyrir skipulagningu hryðjuverka neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Þeir játuðu hluta ákærunnar sem sneri að vopnalagabrotum auk þess sem annar játaði fíkniefnabrot. Dómari ætlar að skoða hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum. Innlent 18. janúar 2023 13:44
„Við búum öll við geðheilsu rétt eins og við erum með hjarta“ Geðhjálp hefur sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við fyrirtöku í héraðsdómi Reykjavíkur í máli hjúkrunarfræðings sem ásakaður er um að hafa valdið andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans, og fjölmiðlaumræðu vegna fyrirtökunnar. Innlent 18. janúar 2023 13:20
Stöðvaður við akstur og reyndist með gróft barnaníðsefni í símanum Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann, sem handtekinn var vegna umferðarlagabrots á Akureyri í júní 2019, fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í sinni vörslu í tveimur símum og spjaldtölvu. Maðurinn hafði sömuleiðis dreift efni til ótilgreindra einstaklinga. Innlent 18. janúar 2023 13:19
Ganga lausir en grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Tæpir fjórir mánuðir eru liðnir síðan ríkislögreglustjóri handtók tvo karlmenn og lýsti því yfir að hættuástandi hefði verið aflýst. Á blaðamannafundi var greint frá því að mennirnir hefðu verið grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Mál gegn þeim verður þingfest klukkan 13 í dag en athygli vekur að dómstólar landsins telja mennina ekki hættulegri en svo að þeir ganga lausir. Innlent 18. janúar 2023 11:45
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 26 ára karlmann, Ómar Örn Reynisson, í þriggja ára fangelsi fyrir nauðga konu sem var gestkomandi á heimili hans. Brotið átti sér stað árið 2020. Innlent 17. janúar 2023 16:30
Tekist á um nærbuxnaatriði og nektardans Lenoncie í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Helga Jónsson, eiganda og umsjónarmann Glatkistunnar, í meiðyrðamáli söngkonunnar Leoncie Indiu Martin. Henni hefur verið gert að greiða Helga 1,4 milljón í málskostnað. Innlent 17. janúar 2023 15:19
Innheimta sekta gengur skelfilega og fælingarmátturinn lítill Ríkisendurskoðun kallar eftir því að dómsmálaráðuneytið bregðist hratt við því hve illa hafi gengið árum saman að innheimta sektir sem fólk fær sem hlýtur refsingu í dómskerfinu. Héraðssaksóknari hefur áhyggjur af því að fólk finni ekki fyrir refsingu. Innlent 17. janúar 2023 14:48
Sakfelldur fyrir fjárdrátt af heimili fyrir þroskahamlaða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og brot í opinberu starfi. Innlent 17. janúar 2023 10:36