Töluðu um gott innbrot eftir þjófnað á Rólex og Louis Vuitton Pólskir bræður hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfelld fíkniefnabrot og þjófnað. Meðal rannsóknaraðferða lögreglu var uppsetning eftirlitsmyndavélar og notkun eftirfarar- og hlerunarbúnaðar á bifreið sakbornings. Innlent 20. júlí 2023 14:54
Tvö burðardýr fá þunga dóma Maður og kona af erlendum uppruna fengu í dag þunga dóma í Héraðsdómi Reykjaness. Fólkið hafði flutt inn kókaín en var hvorki eigandi þess né hafði skipulagt dreifinguna. Innlent 20. júlí 2023 14:38
Hlaðvarp um ættardeilur Ásmundar Einars: „Þessu fólki fyrirgef ég aldrei“ Þrjár frænkur Ásmundar Einars Daðasonar mennta-og barnamálaráðherra hafa byrjað með nýtt hlaðvarp um fjölskylduerjurnar á Lambeyrum. Þær segja skemmdarverk framin í hverjum mánuði og vonast til að hlaðvarpið geti stöðvað þau. Innlent 17. júlí 2023 18:04
Gæti verið sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Til greina kemur að Steina Árnadóttir, hjúkrunarfræðingurinn sem ákærð er fyrir að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans, verði sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir Landsrétti. Innlent 14. júlí 2023 18:08
Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður. Innlent 14. júlí 2023 17:33
Nuddari viðurkenndi kynferðisbrot í textaskilaboðum Nuddarinn Ioseb Gogiashvili hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir kynferðisbrot gegn konu á heimili hennar. Ioseb flúði land en var handtekinn og framseldur til Íslands. Innlent 14. júlí 2023 15:45
Launamál dómara læðist fram hjá Landsrétti Mál héraðsdómara, sem stefndi ríkinu eftir að henni var tilkynnt um að hún hefði fengið ofgreidd laun og fór með sigur af hólmi, fer beint til Hæstaréttar. 260 af æðstu embættismönnum þjóðarinnar fengu sams konar tilkynningu. Innlent 14. júlí 2023 15:14
Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu í sumarbústað Maður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi. Brotin voru framin gegn fyrrverandi eiginkonu hans í sumarbústað. Innlent 14. júlí 2023 13:30
„Ég veit ekki á hvaða hausaveiðum yfirvöld eru“ Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýnir ákvörðun ríkissaksóknara, um að áfrýja sýknudómi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, harðlega. Innlent 13. júlí 2023 16:31
Sýknudómi hjúkrunarfræðingsins áfrýjað Sýknudómi Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, hefur verið áfrýjað af ríkissaksóknara. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum, þar sem ekki taldist sannað að hún hefði haft ásetning til þess. Innlent 13. júlí 2023 13:48
Skilorð fyrir manndráp af gáleysi í Gleðivík Karlmaður hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók lyftara yfir erlendan ferðamann sem hafði verið að skoða listaverkið Eggin í Gleðivík við hafnarsvæðið á Djúpavogi. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 13. júlí 2023 12:31
Ummæli um vælandi kerlingar og byrlanir bættu gráu ofan á svart Áminning sem var veitt lögreglukonu sem gerði lítið úr þolendum kynferðisbrota og meðlimum Öfga á Facebook var í samræmi við lög. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi lögreglukonuna ekki eiga rétt á miskabótum vegna áminningarinnar og breytingar á starfi hennar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ummæli lögreglukonunnar um vælandi kerlingar og byrlanir höfðu áhrif á niðurstöðu dómsins. Innlent 11. júlí 2023 16:32
Hæstiréttur tekur djammbannið ekki til umfjöllunar Málskotsbeiðni eiganda skemmtistaðarins The English Pub í máli gegn íslenska ríkinu hefur verið hafnað. Landsréttur úrskurðaði að djammbannið hafi verið löglegt. Innlent 11. júlí 2023 13:25
Sveddi tönn ákærður í Brasilíu Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefur verið ákærður af ríkissaksóknara í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Þann 3. júlí síðastliðinn var fyrirtaka í málinu hjá dómstól í Rio de Janeiro þar sem sönnunargögn voru lögð fram. Innlent 11. júlí 2023 12:20
Hreiðar hyggst setja hótelbyggingu á fullt Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða í Skaftárhreppi, segir að framkvæmdir við tíu milljarða króna hótel á jörðinni fari núna fullt en hann hafði betur í dómsmáli um vegtengingu fyrir helgi. Hann vonast til að hótelið verði opnað eftir átján til tuttugu mánuði. Innlent 10. júlí 2023 23:16
Fullyrðing um nauðgun innan marka tjáningarfrelsisins Kona nokkur hefur verið sýknuð af kröfu fyrrverandi kærasta um miskabætur og fangelsisrefsingu vegna ummæla sem hún lét falla á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram árið 2022. Þar sakaði hún ónafngreindan karlmann um nauðgun en fyrrverandi kærastinn taldi augljóst að um sig væri að ræða. Innlent 10. júlí 2023 15:16
Frakki í fangelsi í fjórtán mánuði fyrir fíkniefnasmygl Franskur karlmaður var í síðustu viku dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Hann hafði rúmlega kíló af sterku metamfetamíni meðferðis til landsins frá París. Innlent 10. júlí 2023 14:05
Þóttist vera starfsmaður ákæruvaldins og heimtaði gögn um eiginkonuna Karlmaður hefur verið fundinn sekur um margvísleg brot gegn eiginkonu sinni og barni, meðal annars með því að falsa pappíra og þykjast vera starfsmaður ákæruvaldsins til þess fá heilbrigðisgögn um eiginkonuna. Maðurinn var hins vegar sýknaður af refsikröfu vegna geðrænna vandamála sem hann glímir við. Innlent 10. júlí 2023 12:12
Hringdi 237 sinnum á Neyðarlínu og hafnað um miskabætur Íslenska ríkið hefur verið sýknað af miskabótakröfu manns sem var handtekinn eftir að hafa hringt 237 sinnum að ástæðulausu í neyðarlínu. Hann var sjálfur talinn hafa valdið aðgerðum lögreglu. Innlent 10. júlí 2023 10:57
Tekinn með fimm hundruð töflur af Oxycontin innan klæða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað fimm hundruð töflur af Oxycontin, 80 milligramma, til landsins með flugi í apríl síðastliðinn. Innlent 10. júlí 2023 07:40
Íslensk kona stefnir Boston borg: „Hún óttast stöðugt að vera sett í fangelsi“ Íslensk kona sem búsett er í Boston hefur höfðað skaðabótamál á hendur borginni, borgarstjóra og fleiri aðilum fyrir óréttmæta lögsókn sem höfðuð var á hendur henni vegna þjófnaðarbrots á seinasta ári. Heldur konan því fram að brotið hafi verið á stjórnarskrárbundnum réttindum hennar á margvíslegan hátt og fer hún fram á þrjár og hálfa milljón dollara í bætur. Innlent 8. júlí 2023 08:06
Hreiðar hafði betur í deilu um veg að Orustustöðum Hreiðar Hermannsson, eigandi jarðarinnar Orustustaða í Skaftárhreppi, hafði betur í dómsmáli sem tveir eigendur nágrannajarðarinnar Hraunbóls/Sléttabóls 2 höfðuðu til að meina honum að nota og endurbæta vegslóða sem liggur að Orustustöðum um land Hraunbóls. Lögregla hefur ítrekað verið kölluð til vegna þessara nágrannadeilna og hafa þær sett áform Hreiðars um tíu milljarða króna hótelbyggingu í uppnám. Innlent 7. júlí 2023 23:20
Ekki tekið ákvörðun um að áfrýja í Vatnsendamáli Kópavogsbær hefur ekki tekið ákvörðun um að áfrýja ákvörðun Héraðsdóms Reykjaness sem gert hefur bænum að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested, syni Þorsteins Hjaltested heitins, 1,4 milljarða króna ásamt vöxtum í deilum um Vatnsendaland. Bærinn hefur undanfarin ár verið með varúðarfærslur vegna málsins í bókum sínum. Innlent 7. júlí 2023 16:16
Eldri kylfingar sem hunsuðu dómara lausir úr banni Tveir eldri kylfingar sem hunsuðu úrskurð dómara á Íslandsmóti á Akureyri fengu keppnisbann sem þeir voru dæmdir í stytt fyrir áfrýjunardómstóli. Þeim er því frjálst að skrá sig í Íslandsmótið í ár sem fer fram um næstu helgi. Golf 7. júlí 2023 15:01
Kópavogsbæ gert að greiða syni Þorsteins Hjaltested 1,4 milljarða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Kópavogsbæ til að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested, syni Þorsteins Hjaltested heitins 1,4 milljarða króna ásamt vöxtum í deilum um Vatnsendaland. Innlent 7. júlí 2023 13:03
Samtök atvinnulífsins í mannréttinda-grímubúningi Samtök atvinnulífsins (SA) eru hagsmunasamtök íslenskra atvinnurekenda. Samtökin taka hlutverk sitt sem hagsmunaverðir fyrirtækja mjög alvarlega og líta ekki á það sem markmið að gæta að réttindum launafólks. Skoðun 6. júlí 2023 07:31
Tíu mánuðir fyrir tvær líkamsárásir Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa framið tvær líkamsárásir, þar af eina á fimmtán ára dreng, og fyrir tvö umferðarlagabrot. Innlent 5. júlí 2023 13:46
Eftirlitsstofnanir sýknaðar af kröfum hvalveiðiskipstjóra Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Matvælastofnun og Fiskistofu af kröfu tveggja skipstjóra hvalveiðiskipa Hvals hf. um miskabætur vegna eftirlits með veiðum þeirra í fyrra. Skipstjórarnir töldu meðal annars brotið á friðhelgi einkalífs síns með eftirlitinu. Innlent 4. júlí 2023 12:34
Dæmdur í fangelsi og 153 milljóna sektar vegna skattabrots Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi og greiðslu 153 milljóna króna sektar fyrir meiri háttar skattabrot. Viðskipti innlent 4. júlí 2023 08:23
Trans maður fær orlofsgreiðslur vegna brjóstnáms Hæstiréttur hefur úrskurðað að trans maður átti rétt til veikindaorlofs hjá verslun sem sagði honum upp. Taldi rétturinn að afleiðingar kynmisræmis gætu verið sjúkdómar, svo sem þunglyndi og félagsleg einangrun. Innlent 3. júlí 2023 20:00