Besta deild kvenna

Besta deild kvenna

Leikirnir




    Fréttamynd

    Blikastúlkur unnu toppslaginn

    Blikastúlkur eru með fullt hús eftir fjórar umferðir í Landsbankadeild kvenna en Breiðablik vann KR 4-0 á Kópavogsvellinum í kvöld en fyrir leikinn höfðu liðin unnið alla 3 leiki sína í deildinni. Valsstúlkur komust í annað sætið með naumum 3-2 sigri á botnliði ÍA og Stjarnan vann sinn annan 1-0 sigur í röð, nú á FH á útivelli.

    Sport
    Fréttamynd

    Hrefna með fernu fyrir KR

    Heil umferð fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld og varð engin breyting á tveimur efstu sætum deildarinnar. Topplið KR lagði FH, 6-1 þar sem Hrefna Jóhannesdóttir skoraði fernu og eru Vesturbæjarstúlkur efstar með 9 stig eins og Breiðablik sem vann erfiðan útisigur á ÍBV, 1-2. Íslandsmeistarar Vals rassskelltu nýliða Keflavíkur, 0-9.

    Sport
    Fréttamynd

    Heil umferð hjá konunum

    Heil umferð verður í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Keflavík og Íslandsmeistarar Vals eigast við suður með sjó, Stjarnan og ÍA mætast í Garðabæ, KR tekur á móti FH og ÍBV fær Breiðablik í heimsókn. Leikirnir hefjast klukkan 20.

    Sport
    Fréttamynd

    Tvö glæsimörk frá Dóru Maríu

    Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjaði vel undir stjórn Jörundar Áka Sveinsssonar en liðið vann 2-0 sigur á Skotum í vináttulandsleik þjóðannna í Perth í gær. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en íslenska liðið var mun sterkara í þeim síðari og var sigurinn fyllilega verðskuldaður.

    Sport
    Fréttamynd

    Blikastúlkur sigruðu nýliða naumt

    Greta Mjöll Samúelsdóttir tryggði Breiðablik nauman sigur á nýliðum Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu en sigurmark hennar kom 2 mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 3-2 á Kópavogsvelli. Valur er 2-0 yfir gegn Stjörnunni en sá leikur hófst kl. 14.00.

    Sport
    Fréttamynd

    Sjö marka sigur meistaranna

    Dóra María Lárusdóttir skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara Vals í 7-0 sigri á Stjörnunni á Hlíðarenda í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í dag. Fyrr í dag vann Breiðablik-Keflavík, 3-2 og ÍA steinlá fyrir KR, 1-7. Staðan í leik FH og ÍBV sem hófst kl. 15 er enn 0-0.

    Sport
    Fréttamynd

    Tvær frá Everton til ÍBV

    Kvennalið ÍBV í Landsbankadeildinni sem vann 12-2 sigur á ÍA í fyrstu umferð hefur fengið til sín tvær 17 ára stelpur frá enska liðinu Everton. Þetta eru markvörðurinn Danielle Hill og miðjuleikmaðurinn Chantell Parry en kvennalið Everton er mjög sterkt og með því leika m.a. Sammy Britton og Rachel Brown, landsliðsmarkvörður Englands, sem báðar hafa leikið með ÍBV.

    Sport
    Fréttamynd

    Sparkað í sólinni í kvöld

    Í kvöld fara fram þrír leikir í Landsbankadeild kvenna og einn í karlaflokki en fyrstu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld. Fylkismenn taka á móti KR kl. 20.00 og verður leikurinn í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Að auki fara fram tveir leikir í forkeppni VISA bikarkeppni KSÍ.

    Sport
    Fréttamynd

    Fjórar nýjar til Keflavíkur

    Lið Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna hefur fengið liðsstyrk frá Bandaríkjunum fyrir átökin í sumar að því er fram kemur á heimasíðu Keflavíkurliðsins. Um er að ræða fjórar stúlkur frá sama háskólanum.

    Sport
    Fréttamynd

    KR sigraði Stjörnuna

    Keppni í Landsbankadeild kvenna hófst í gærkvöldi þegar KR sigraði Stjörnuna, 3-1. Vanja Stephanovic skoraði tvö mörk fyrir KR og Fjöla Dröfn Friðriksdóttir eitt. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði mark Stjörnunnar.

    Sport
    Fréttamynd

    Meistarar Vals steinlágu

    Íslandsmeistarar Vals í Landsbankadeild kvenna töpuðu mjög svo óvænt stórt fyrir Breiðabliki í kvöld, 4:1, í fyrstu umferð deildarinnar. Blikastúlkur sem léku reyndar einum fleiri í 60 mínútur. ÍBV tók ÍA í barkaríið, 12-2 og nýliðar Keflavíkur unnu FH, 2:0.

    Sport
    Fréttamynd

    Nýliðarnir með 5 erlenda leikmenn

    Nýliðarnir í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, Keflavík, tefla fram fimm erlendum leikmönnum í sumar. Tvær serbneskar stúlkur eru á leiðinni: Katarina Jovic, 27 ára varnar- eða miðjumaður, og Vesna Smilijkovic, 22 ára framherji.

    Sport
    Fréttamynd

    Bandarískar stúlkur með KR

    Kvennalið KR í knattspyrnu hefur samið við tvær bandarískar stúlkur sem spila með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Þær heita Carmen Watley og Katherine Winstead og að sögn Írisar Eysteinsdóttur, þjálfara KR, koma þær til landsins 11. maí og munu þær styrkja KR-liðið til mikilla muna.

    Sport
    Fréttamynd

    Olga frá út tímabilið?

    Markadrottningin Olga Færseth, leikmaður knattspyrnuliðs ÍBV, meiddist illa á hné í æfingaleik og verður frá í nokkrar vikur. Hún missir því af fyrstu umferð Landsbankadeildar kvenna. Í versta falli eru liðbönd slitin og þá mun Olga ekkert spila með ÍBV í sumar sem er gríðarlegt áfall fyrir bikarmeistarana.

    Sport
    Fréttamynd

    Helena tekur við KR

    Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá KR af Írisi Eysteinsdóttur í sumar. Íris á von á barni í sumar og getur ekki stýrt liðinu út leiktíðina. Helena skoraði 222 mörk í 275 leikjum með meistaraflokki KR frá 1986 til 2001 og var fyrirliði fjögurra Íslandsmeistaraliða félagsins.</font />

    Sport
    Fréttamynd

    Sigurlás þjálfar Eyjastúlkur

    Sigurlás Þorleifsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna ÍBV knattspyrnu. Sigurlás er margreyndur þjálfari, þjálfaði karlalið ÍBV og Stjörnunnar á sínum tíma og einnig kvennalið ÍBV með góðum árangri. Sigurlás tekur við af Heimi Hallgrímssyni sem gerði ÍBV að bikarmeisturum í sumar.

    Sport
    Fréttamynd

    Guðrún Sóley í háskólaliði ársins

    Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, knattspyrnukona úr KR, hefur bætt enn einni fjöður í hatt sinn en hún var um helgina valin í háskólalið ársins í Bandaríkjunum. Guðrún varð sem kunnugt er háskólameistari með liði sínu Notre Dame fyrir skömmu.

    Sport
    Fréttamynd

    15,8 milljónir til íslenskra liða

    Knattspyrnusamband Evrópu hefur úthlutað 15,8 milljónum króna til íslenskra félagsliða en þetta er hluti af tekjum Meistaradeildarinnar og er eyrnamerkt barna- og unglingastarfi. Stjórn KSÍ hefur ákveðið að tekjurnar renni til félaga sem voru í Landsbankadeildinni 2002 og fær hvert þeirra 1.580 þúsund krónur í sinn hlut.

    Sport
    Fréttamynd

    Markadrottningar KR enn á förum

    Kvennalið KR í knattspyrnu hefur misst tvo markahæstu leikmenn sína frá því í sumar því Hólmfríður Magnúsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍBV og Guðlaug Jónsdóttir er á leiðinni til Breiðabliks.

    Sport
    Fréttamynd

    Guðlaug og Þóra til Blika

    Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær þá  hefur landsliðskonan Guðlaug Jónsdóttir gengið til liðs við Breiðablik frá KR. Þá hefur íþróttadeildin heimildir fyrir því að landsliðsmarkvörðurinn Þóra B Helgadóttir ætli að spila með Breiðablik á næstu leiktíð.

    Sport
    Fréttamynd

    Margrét Lára í Val

    Það er ljóst að Íslandsmeistarar Vals í kvennafótboltanum ætla sér lítið annað en að verja titilinn á komandi tímabili. Þær hafa fengið Eyjastúlkuna Margréti Láru Viðarsdóttur í sínar raðir en Margrét Lára var valinn efnilegasti leikmaður Landsbankadeildar kvenna annað árið í röð fyrir skömmu auk þess sem hún var markahæst í deildinni í sumar.

    Sport
    Fréttamynd

    ÍBV bikarmeistari

    ÍBV tryggði sér bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu í gærdag með sanngjörnum 2-0 sigri á Íslandsmeisturum Vals.

    Sport
    Fréttamynd

    Bikarinn til Eyja

    Stelpurnar úr ÍBV voru rétt í þessu að tryggja sér bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu með 2-0 sigri á Íslandsmeisturum Vals.

    Sport
    Fréttamynd

    Valsstúlkur enduðu með sigri

    Lokaumferðin í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. Nýkrýndir Íslandsmeistarar Vals lögðu ÍBV að velli í Eyjum 3-1. FH vann Fjölni 2-1, Stjarnan skellti Blikum 4-1 og KR bar sigurorð af Þór/KA/KS 3-1.

    Sport
    Fréttamynd

    Mörg lítil markmið hjá Val

    Elísabet Gunnarsdóttir skilaði Íslandsmeistaratitlinum á Hlíðarenda á sínu fyrsta ári með liðinu. "Ég held að við höfum sýnt í þessum leik að við erum vel að þessum titli komnar," sagði hún þegar titilinn var í höfn hjá Valsliðinu.

    Sport
    Fréttamynd

    Valur Íslandsmeistari í dag?

    Valur getur í dag tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í knattspyrnu í fyrsta sinn í fimmtán ár. Valur mætir Breiðabliki á Valsvellinum klukkan 14 en á sama tíma keppa Fjölnir og ÍBV. Valur hefur sex stiga forystu og nægir jafntefli, svo framarlega að ÍBV vinni Fjölni.

    Sport
    Fréttamynd

    Valsstúlkur Íslandsmeistarar

    Valsstúlkur urðu í dag Íslandsmeistarar í knattspyrnu þegar þær unnu Breiðablik 3-0 á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Nína Ósk Kristinsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir skoruðu mörk Valsliðsins. Fimmtán ár eru liðin síðan Valur varð síðast Íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu.

    Sport
    Fréttamynd

    Valskonur vængjum þöndum

    Valsmenn fjölmenntu á Hlíðarenda í gær og sá langþráða stund renna upp þegar Íris Andrésdóttir varð fyrsti fyrirliði knattspyrnuliða félagsins til að lyfta Íslandsmeistaratitlinum í fimmtán ár.

    Sport
    Fréttamynd

    KSÍ aðhefst ekkert frekar

    Forráðamenn KSÍ hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna atviks sem átti sér stað á leik KR og FH á KR-velli á dögunum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu.

    Sport