Íslenski boltinn

Þóra leikur ekki með Blikum í sumar

mynd/anton brink

Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir sem leikið hefur með liði Breiðabliks undanfarin ár, verður ekki með liðinu á næsta tímabili. Þóra er að flytja til Belgíu vegna vinnu sinnar og ætlar að reyna fyrir sér með liði Anderlecht þar ytra. Þetta er mikið áfall fyrir lið Breiðabliks, enda hefur Þóra verið lykilmaður liðsins síðustu ár. Þóra er samningsbundin Blikum til ársins 2009 en hefur fengið árs leyfi frá samningnum.

Nánar verður greint frá málinu í morgunsjónvarpi Stöðvar 2. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×