Vill fullan þunga í viðræður um tengingu krónunnar við evru Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögur um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið og samstarf í gjaldeyrismálum. Formaður Viðreisnar segir þjóðina eiga að fá að ákveða næstu skref í þjóðaratkvæðagreiðslu. Innlent 31. mars 2021 20:01
Leggja til endurupptöku aðildarviðræðna við ESB Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Innlent 31. mars 2021 14:40
Aukafjárveiting til lögreglu vegna eldgossins Mikið mæðir nú á viðbragðsaðilum á Suðurnesjum. Nú þegar hafa 16 þúsund manns komið að sjá gosið í Geldingadölum og það hefur kallað á mikla viðveru við umferðarstjórnun og almenna gæslu. Skoðun 30. mars 2021 14:30
Þingmaður sendir frá sér bók um eldgosið Kolbeinn Óttarsson Proppé er að senda frá sér um þessar mundir bók um eldgos og fjallar þar meðal annars um það gos sem nú er yfirstandandi í Geldingadölum á Reykjanesi – sem er reyndar kjördæmi þar sem Kolbeinn ætlar sér að sækja fram í. Innlent 30. mars 2021 11:28
Áslaug, Ástráður, Kjartan Bjarni og Skúli vilja verða næsti umboðsmaður Alþingis Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður, Ástráður Haraldsson dómari, Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari og settur umboðsmaður, og Skúli Magnússon dómari hafa gefið kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Innlent 29. mars 2021 13:43
Krakkarnir sem krefjast lækkunar kosningaaldurs Um árabil hefur komið upp sú hugmynd í þjóðfélaginu að lækka kosningaaldur niður í 16 ár. Í gegnum tíðina hefur alls kyns fólk þurft að berjast fyrir réttinum til þess að kjósa. Við lærum í skólanum um það þegar barist var fyrir kosningarétti kvenna, fátækra og ungs fólks. Nú er komið að því að kosningaaldurinn verði lækkaður úr 18 í 16 ára aldur í öllum kosningum og að miðað sé við fæðingarár en ekki fæðingardag. Skoðun 27. mars 2021 10:16
Logi segir ríkisstjórnina skauta fram hjá atvinnuleysinu Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina skauta framhjá atvinnuleysinu í fjármálaáætlun sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Atvinnuleysið væri aðal úrlausnarefnið eftir kórónuveirufaraldurinn og hefði áhrif flestar þjóðhagsstærðir. Innlent 23. mars 2021 19:45
Hver græðir? Eitt af einkennum hægristjórna er að ráðast að eftirlitsstofnunum og veikja þá aðila sem standa vörð um almannahag með öllum ráðum. Núverandi ríkisstjórn er þar engin undantekning. Skoðun 22. mars 2021 07:31
Samfylkingin þurfi „að spýta í lófana“ Sósíalistaflokkur Íslands mælist enn á ný inni á þingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Flokkur fólksins næði ekki inn á þing og fylgi Samfylkingar dalar. Innlent 21. mars 2021 18:45
Þingmenn Samfylkingar vilja aukið framboð grænkerafæðis Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis. Aðrir þingmenn flokksins styðja tillöguna. Innlent 18. mars 2021 16:25
Inga Sæland fékk að vita hverjir eru í sviðsljósinu hjá RÚV Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sú sem kemur langoftast fyrir í fréttum og í þáttagerð starfsmanna Ríkisútvarpsins. Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins kemst varla á blað. Innlent 18. mars 2021 15:50
Hvernig bætum við þjónustu við eldra fólk? Nú ætla ég að svara eins og stjórnmálamenn gera yfirleitt ekki. Svarið kemur strax, flóknu útskýringarnar á eftir. Við bætum hana með því að fela sveitarfélögunum ábyrgð á öllum þjónustuþáttum (öðrum en beinni heilbrigðisþjónustu). Skoðun 18. mars 2021 15:31
Óþolandi staða Efla þarf Verðlagsstofu skiptaverðs sem þarf að hafa burði til þess að bera saman afurðaverð á erlendum mörkuðum og afurðaverð hér á landi. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 18. mars 2021 13:50
Katrín og Bjarni útiloka ekki samstarf næstu fjögur árin Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra útiloka ekki áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf. Þeim þykir báðum samstarfið á kjörtímabilinu sem nú er að líða hafa gengið vel. Innlent 18. mars 2021 10:28
„Skotgrafapólitík“ í umsögnum um auðlindaákvæði veldur vonbrigðum Sumar umsagnir sem borist hafa um frumvarp um breytingar á stjórnarskrá valda Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra vonbrigðum. Innlent 18. mars 2021 07:42
Rósa Björk: Ætlum við að klúðra stöðunni? Svandís Svavarsdóttir segir löngu tímabært að Íslendingar fái upplýsingar um afhendingaráætlun bóluefna fyrir næsta ársfjórðung. Gert er ráð fyrir að fjörutíu og þrjú þúsund manns verði bólusettir í lok mánaðarins. Innlent 17. mars 2021 14:48
Vanmetinn „hálftími hálfvitanna“ Umræður um störf þingsins fara nú fram einu sinni í viku en ekki tvisvar eftir að skipulagi þingvikunnar var breytt í tilraunaskyni. Þingmaður Pírata gerir athugasemd við það og segir umræðuna dýrmæta fyrir lýðræðið. Innlent 17. mars 2021 13:27
Krafði ríkisstjórnina um kröftugri aðgerðir fyrir atvinnulausa Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld þurfa að hreyfa sig hraðar og koma þeim sem hefðu verið atvinnulausir lengi til mun meiri aðstoðar en hingað til. Félagsmálaráðherra segir allar aðgerðir stjórnvalda miða við þetta og sú nýjasta sé sú viðamesta til sköpunar starfa. Innlent 16. mars 2021 19:20
Staða kirkjunnar fest rækilega í sessi Björn Leví Gunnarsson segir ný heildarlög dómsmálaráðherra færa kirkjunni óheyrilegt fjármagn án nokkurra skuldbindinga. Innlent 16. mars 2021 11:11
„Það eru allir að tala um píkur alla daga“ Brynjar Níelsson alþingismaður er hættur að halda tækifærisræður vegna viðtekinnar móðgunargirni og ríkjandi vandlætingar. Innlent 15. mars 2021 17:22
Sex sjokkerandi staðreyndir um Ísland Förum saman yfir 6 punkta sem lýsa Íslandi í dag. Skoðun 12. mars 2021 10:30
Svarar Tobbu og telur um pólitískt högg á ráðherra að ræða „Það verður lítið hlé á árásum á mig vegna fyrri starfa minna fyrra á tíð sem hæstaréttardómari. Tilgangurinn er að selja almenningi þá hugmynd að ég hafi verið sérstakur verndari kynferðisbrotamanna.“ Innlent 11. mars 2021 20:55
Þátttaka í prófkjöri Pírata tilefni til bjartsýni Prófkjöri Pírata fyrir Alþingiskosningarnar í haust lýkur á laugardag. Innlent 11. mars 2021 12:26
Hefur mikilvægari hnöppum að hneppa en að munnhöggvast við „hörundsáran flokksgæðing“ Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, óskar eftir því að þingmennirnir Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fallist á að mæta honum á opnum fundi til að ræða það sem hann kallar „árásir“ og tilefni þeirra. Hann vill aukinheldur að fundurinn verði opinn öllum. Innlent 11. mars 2021 10:14
Vill hitta þingkonur á fundi til að ræða „árásir“ Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, óskar eftir því að þingmennirnir Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fallist á að mæta honum á opnum fundi til að ræða það sem hann kallar „árásir“og tilefni þeirra. Innlent 11. mars 2021 07:39
Lilja þurfi að svara fyrir ákvörðun um áfrýjun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra verða að svara því hvers vegna hún ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms, sem komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður kærunefndar jafnréttismála stæði óhaggaður. Innlent 8. mars 2021 20:27
Afhentu Svandísi ríflega fimm þúsund undirskriftir Heilbrigðisráðherra tók í dag við ríflega fimm þúsund undirskriftum frá hópnum Aðför að heilsu kvenna. Stofnandi hópsins segir bresti í þjónustu við greiningu á leghálssýnum hafa skapað vantraust. Innlent 8. mars 2021 17:58
Hulda ráðin framkvæmdastjóri og Bjarki starfsmaður þingflokks VG Hulda Hólmkelsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hún hefur starfað sem upplýsingafulltrúi þingflokksins frá árinu 2019 og síðustu mánuði verið starfandi framkvæmdastjóri þingflokksins. Innlent 8. mars 2021 14:19
Frá Vinstri grænum og til Bændasamtakanna Kári Gautason hefur verið ráðinn til Bændasamtaka Íslands þar sem hann mun koma að úrvinnslu og greiningu hagtalna landbúnaðarins, ásamt því að koma að hagrænum greiningum sem tengjast umhverfis-, loftlagsmálum, fæðuöryggi og tryggingamálum. Viðskipti innlent 8. mars 2021 13:58
Dómsmálaráðherra og lögreglustjóra boðið að aflétta trúnaði Jón Þór Ólafsson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og þingmaður Pírata, hefur boðið dómsmálaráðherra og lögreglustjóra að aflétta trúnaði um það sem kom fram í máli þeirra á fundum nefndarinnar um símtöl ráðherra til lögreglustjóra á aðfangadag. Innlent 8. mars 2021 12:09