Eftirmál - Ásdís Rán og rafmyntadrottningin sem hvarf
Sími Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur var hleraður í aðdraganda þess að besta vinkona hennar, Ruja Ignatova, hvarf sporlaust frá Búlgaríu í október 2017. Ruja var ein ríkasta kona heims og hafði hagnast gríðarlega á One Coin, rafmynt sem síðar kom í ljós að var byggð á píramídasvindli. Ásdís opnar sig um hvarf vinkonu sinnar í þættinum og lýsir atburðarásinni frá fyrstu hendi.