„Finn að við erum að fara verða leiðinlegir núna“
Á laugardaginn fór fram viðureign í 16-liða úrslitum í spurningarþættinum Kviss. Í myndveri Stöðvar 2 mættust liðin Afturelding og Breiðablik. Í liði Aftureldingar voru þeir Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA og Steinþór Hróar Steinþórsson sem er þekktur sem Steindi Jr. Þetta var í þriðja skipti sem þeir mæta fyrir hönd Aftureldingar.