Fótbolti

Sak­laus en missti af Ólympíu­leikunum eftir mis­tök fé­lagsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aivi Luik missti af tækifærinu á því að vera með á Ólympíuleikunum í París en nú er komið í ljós að hún var ranglega sakfelld.
Aivi Luik missti af tækifærinu á því að vera með á Ólympíuleikunum í París en nú er komið í ljós að hún var ranglega sakfelld. Getty/Albert Perez

Ástralska knattspyrnukonan Aivi Luik féll á lyfjaprófi í fyrra og var í kjölfarinu dæmd í þriggja mánaða bann. Nú hefur hún verið sýknuð og fengið uppreisn æru sinnar.

Í ljós kom að félag hennar hafði gert stór mistök. Luik lék með ítalska félaginu Pomigliano á þeim tíma en nú er hún hjá BK Häcken í Svíþjóð.

„Heiðarleiki skiptir mig miklu máli og þetta tók mikinn toll af mér. Ég vildi ekki að fólk sæi mig sem svindlara,“ sagði Aivi Luik við Aftonbladet í Svíþjóð.

Hún hefur hreinsað nafnið sitt en þetta kostaði hana ekki bara vanlíðan því þetta kostaði hana einnig þátttöku í Ólympíuleikunum í París með ástalska landsliðinu.

„Þetta var mjög erfitt fyrir mig en ég fékk líka mikinn stuðning. Þetta var allt svolítið yfirþyrmandi,“ sagði Aivi.

Hin fertuga Luik vissi auðvitað sannleikann en var að hugsa um að áfrýja ekki dómnum. Það er dýrt að áfrýja til Íþróttadómstólsins.

„Ég sagði að það væri kannski ekki þess virði. Fólk sem þekkir mig vissi að ég myndi ekki svindla og það væri bara nóg,“ sagði Aivi. Alexis Schoeb, lögmaður hennar, gaf sig ekki og pressaði á hana að áfrýja.

„Hann vildi virkilega berjast fyrir réttlætinu. Ég er svo ánægð að við gerðum það og fengum þessa niðurstöðu. Ég á honum svo mikið að þakka,“ sagði Aivi.

„Ég veit að ég er ekki sú eina og það eru margir sem hafa þurft að upplifa svipaða hluti. Að vera sakfelldur fyrir eitthvað sem þú gerðir ekki. Það hafa ekki allir verið eins heppnir og ég,“ sagði Aivi.

„Kerfið er ekki fullkomið en ég vona að fólk fái aðstoð strax svo að þetta þurfi ekki að fara svona langt,“ sagði Aivi.

Hún getur þó ekki spilað strax eftir að hafa fótbrotnað í vetur en ætlar sér að snúa aftur inn á völlinn sem fyrst.

„Tímasetning var ekki sú besta en ég hlakka til að koma til baka og gefa liðinu allt mitt besta. Hjálpa félaginu sem stóð með mér allan tímann. Ég vil hjálpa okkur að vinna gullið,“ sagði Aivi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×