Fótbolti

Erfið staða Ingi­bjargar og Hafrúnar en nýja liðið neitar að tapa

Sindri Sverrisson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir er á leið í mikilvæga landsleiki á Íslandi, eftir svekkjandi tap í Danmörku í dag.
Ingibjörg Sigurðardóttir er á leið í mikilvæga landsleiki á Íslandi, eftir svekkjandi tap í Danmörku í dag. Getty/Alex Nicodim

Íslenskar landsliðskonur voru á ferðinni í danska og sænska fótboltanum í dag. Ingibjörg Sigurðardóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir eru í erfiðri stöðu í baráttunni um sæti í úrslitum danska bikarsins.

Ingibjörg var í byrjunarliði Bröndby en Hafrún varamaður þegar liðið mætti Nordsjælland, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum danska bikarsins. Svo fór að gestirnir frá Nordsjælland unnu 1-0 sigur en liðin mætast aftur á skírdag.

Mikil spenna er einnig í hinu undanúrslitaeinvíginu þó að þar sé nýstofnað C-deildarlið FC Kaupmannahafnar að spila við sigursælt lið Fortuna Hjörring. Liðin gerðu nefnilega 1-1 jafntefli í fyrri leik sínum og þar með hefur FCK ekki enn tapað, eftir 17 fyrstu leiki sína frá stofnun.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir er leikmaður FCK en hún kom til félagsins frá FH í fyrra.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir á ferðinni með FCK gegn Fortuna Hjörring í undanúrslitum danska bikarsins.FCK/Maria Louise Reichardt

Ísabella mætt á bekkinn og Guðrún fyrirliði

Í Svíþjóð var hin unga Ísabella Sara Tryggvadóttir mætt í leikmannahóp Rosengård, eftir komuna frá Val, en hún kom þó ekkert við sögu í 1-0 útisigrinum gegn Växjö í 2. umferð úrvalsdeildarinnar í dag.

Guðrún Arnardóttir var aftur á móti komin á sinn stað í byrjunarliði Rosengård og með fyrirliðabandið, eftir að hafa komið inn á sem varamaður í fyrstu umferð. Bryndís Arna Níelsdóttir var einnig í byrjunarliði Växjö en skipt af velli á 73. mínútu.

Þær Ingibjörg, Hafrún og Guðrún halda nú til Íslands í leikina mikilvægu við Sviss og Noreg í Þjóðadeildinni en Bryndís var ekki valin að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×