Sport

Segir „ind­verskt rottuhlaup“ hafa toppað hand­bolta í vin­sældum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kristinn Albertsson var nýlega kjörinn formaður KKÍ. Sagan af vinsældalistanum var sögð í sigurræðunni. 
Kristinn Albertsson var nýlega kjörinn formaður KKÍ. Sagan af vinsældalistanum var sögð í sigurræðunni.  Vísir/Sigurjón

Eftir að hann hlaut kjör á ársþingi KKÍ ákvað Kristinn Albertsson að nýta tækifærið til að segja frá „vinsældakosningu“ sem hann rakst á fyrir einhverjum árum, þar sem fullyrt var að „indverskt rottuhlaup“ væri vinsælli íþrótt en handbolti. Ummælin hafa ekki fallið í kramið hjá handboltasamfélaginu hér á landi.

Kristinn var framkvæmdastjóri KKÍ fyrir tæpum þremur áratugum síðan og sagan sem hann sagði er frá þeim tíma. Þá, líkt og nú, voru öll sérsambönd með skrifstofur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

„Eins og þið þekkið þegar kollegar, eða samkeppnisaðilar að einhverju leiti, hittast. Þá er svona verið að gorta sig af hinu og þessu. Handboltinn var sérstaklega pain in the neck. Af hverju? Jú, þeir voru endalaust með kassann úti…

Svo tek ég eftir því einn daginn að það kemur einhver svona vinsældakosning á heimsvísu. Það gerðist þá og ég held að það hafi ekki gerst aftur að körfuboltinn var settur númer eitt í heiminum sem vinsælasta íþróttin, fótbolti númer tvö og blak númer þrjú…

Svo man ég ekki alveg tölurnar, ekki halda því gegn mér, en þetta var sirka svona:

Númer 186 var handbolti. Númer 185 var indverskt rottuhlaup.“ 

Sagði Kristinn og uppskar mikinn hlátur úr salnum. Hann sagðist síðan alltaf hafa skellt þessum vinsældalista á borðið þegar honum var ofboðið kjaftbrúkið í handboltamönnum.

„Að þessu sögðu, þá þykir mér afar vænt um handbolta. Ég hlakka alltaf til að horfa á handbolta í janúar í skammdeginu. En mig langaði til að deila þessari sögu með ykkur“ sagði Kristinn að lokum áður en hann gekk af sviði. 

Ef kveikt er á spilaranum hér fyrir neðan má heyra Kristinn sjálfan segja söguna, sem tekur um tvær mínútur.

Áður hafði hann eytt einni mínútu í að þakka fólki fyrir, tala um tímana framundan og þess háttar. Auk framboðsræðunnar sem hann hélt fyrr um daginn, en þar sprakk hann á tíma og kom sögunni ekki að. 

Mikil óánægja

Óhætt er að segja að ummælin hafi ekki fallið í kramið hjá handboltasamfélaginu hér á landi. Margir lýstu óánægju sinni á samfélagsmiðlum.

„Fyrir neðan allar hellur“

„Hélt að við værum komin lengra“

„Börn og unglingar sem æfa bæði þessi sport“

„Slakasta sigurræða sögunnar“

Aðkast í annað sinn á fáeinum dögum

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem handboltinn verður fyrir aðkasti frá forystufólki úr öðrum íþróttum. Kári Árnason, fyrrum landsliðsmaður í fótbolta og yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, sagði síðasta fimmtudag að búið væri að „aumingjavæða“ stórmót í fótbolta, þau séu að verða líkari handbolta „þar sem er bara stórmót á hverju einasta ári, sem er jú gaman því þetta er í leiðinlegasta mánuði ársins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×