Körfubolti

Hjör­var valdi upp­á­halds seríurnar sínar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Extra-menn komu ekki að tómum körfuboltakofanum hjá Hjörvari Hafliðasyni.
Extra-menn komu ekki að tómum körfuboltakofanum hjá Hjörvari Hafliðasyni. stöð 2 sport

Gestur Bónus Körfuboltakvölds Extra í þessari viku var ekki af verri endanum; fótboltadoktorinn sjálfur, Hjörvar Hafliðason.

Hann er ekki bara fróður um fótbolta heldur einnig um hinar ýmsu íþróttir. Ekki stóð því á svari hjá doktornum þegar Hörður Unnsteinsson og Tómas Steindórsson fengu hann til að velja fimm bestu seríurnar í sögu úrslitakeppninnar.

Í 5. sætinu á lista Hjörvars var einvígi Vals og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn 2022. Eftir ótrúlegan fjórða leik á Sauðárkróki unnu Valsmenn oddaleik liðanna á Hlíðarenda. Hjálmarsleikurinn svokallaði en Hjálmar Stefánsson fór á kostum í leiknum.

Hjörvar spólaði svo vel aftur í tímann og valdi úrslitaeinvígi Njarðvíkur og Grindavíkur fyrir þrjátíu árum í 4. sæti listans. Hann minntist þess að hafa hlustað á lýsingu frá fyrsta leiknum í útvarpi.

Eftirminnilegt einvígi Snæfells og Keflavíkur um Íslandsmeistaratitilinn 2010 var í 3. sæti lista Hjörvars. Hólmarar urðu þá Íslandsmeistarar í fyrsta og eina sinn eftir að hafa unnið Keflvíkinga stórt í oddaleik suður með sjó.

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld Extra - Uppáhalds seríur Hjörvars

Í 2. sæti listans var fyrsta sería Breiðabliks í úrslitakeppni í sögu félagsins. Blikar mættu þá Íslandsmeisturum Njarðvíkinga í átta liða úrslitum en töpuðu í oddaleik.

„Ég hef svo sem ekki haldið eitthvað sérstaklega með Breiðabliki en þarna var allt liðið skipað strákum sem ég þekki. Þetta voru bara gaurar úr MK. Ég man eftir að hafa verið á leið á leik númer tvö og ég hugsaði: Ég vona að þeir tapi ekki með 30-40 stigum. Heyrðu, þeir vinna leikinn. XXX Rottweiler hundar í hálfleik, stappaður Smárinn,“ sagði Hjörvar um annan leikinn.

Uppáhalds sería Hjörvars í úrslitakeppninni er milli KR og Njarðvíkur í undanúrslitum 2015. KR-ingar fóru í úrslit eftir ótrúlegan sigur í oddaleik í Vesturbænum.

„Þetta var algjörlega meiri háttar sjónvarp og það er það sem körfuboltanum á Íslandi hefur tekist; að búa til þetta meiri háttar sjóv sem úrslitakeppnin er,“ sagði Hjörvar.

Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi Extra má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×