Handbolti

Einar kveður Guð­mund og fer í „stærstu og bestu deild heims“

Sindri Sverrisson skrifar
Einar Þorsteinn Ólafsson í treyju Hamburg en hann mun skipta yfir ti félagsins í sumar.
Einar Þorsteinn Ólafsson í treyju Hamburg en hann mun skipta yfir ti félagsins í sumar. HSV Hamburg

Landsliðsmaðurinn og varnarsérfræðingurinn Einar Þorsteinn Ólafsson hefur samið við þýska handknattleiksfélagið Hamburg um að koma í sumar frá danska félaginu Fredericia.

Einar Þorsteinn kom til Fredericia frá Val árið 2022 en hefur ekki náð að festa sig í sessi þar og lýsti pabbi hans, Ólafur Stefánsson, yfir óánægju með þá meðhöndlun sem Einar hefði fengið hjá Guðmundi Guðmundssyni þjálfara liðsins.

Sagði Ólafur að Einar þyrfti að finna sér nýtt félag með góðan þjálfara og ná sinni gleði aftur. Og nú er orðið ljóst að Einar fetar í fótspor pabba síns og fer í þýsku deildina í sumar en samningur hans við Hamburg gildir svo til ársins 2027.

„Hamburg er fyrsta félagið mitt í Bundesligunni og ég hlakka mikið til því að Bundesligan er auðvitað stærsta og besta deild í heimi,“ segir Einar á heimasíðu Hamburg.

Bitter bíður spenntur

Einar hefur áður búið í Þýskalandi, í Mannheim, þegar pabbi hans lék með Rhein-Neckar Löwen og þessi 23 ára landsliðsmaður flytur í sumar reynslunni ríkari eftir dvölina í Danmörku.

„Þessi ákvörðun var í raun auðveld fyrir mig. Ég vissi ekki hvernig ég átti að láta þegar umboðsmaðurinn sýndi mér tilboðið fyrst – þetta er einfaldlega svo stórt tækifæri. Það er stórt skref að fara í þýsku deildina og ég hlakka mjög mikið til. Ég er gríðarlega stoltur og spenntur að spila fyrir svona stórt félag í framtíðinni, og hver leikur mun hafa mikla þýðingu fyrir mig,“ segir Einar.

Johannes Bitter, íþróttastjóri Hamburg og fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þýskalands, er sömuleiðis spenntur fyrir komu Íslendingsins í sumar.

„Með sína reynslu af að spila í Meistaradeild Evrópu og með íslenska landsliðinu þá kemur Einar með akkúrat það sem við viljum að borðinu. Hann er fjölhæfur varnarmaður sem er fljótur að sjá fyrir hvað gerist og hefur einstaka varnarhæfileika. Hann getur enn bætt líkamlega burði en allt í allt er hann mjög spennandi viðbót við okkar vörn,“ sagði Bitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×