Skoðun

Þrjú lykil­skref í átt að betri há­skóla. Ingi­björg Gunnars­dóttir mun stíga þau

Styrmir Hallsson skrifar

Færni sem kennari.

Eftir að hafa starfað við háskólann í yfir 20 ár hefur Ingibjörg safnað sér mikla reynslu sem kennari. Hún hefur kennt fjölbreytta áfanga þvert á deildir heilbrigðisvísindasviðs og einkennist sú kennsla af mikilli þekkingu og yfirvegun. Ein mikilvægasta áhersla hennar er að eiga gott samtal við nemendur þar sem hægt er að koma fram ólíkum sjónarmiðum og efla gagnrýna hugsun. Þjálfun á hinu síðastnefnda er hugsanlega eitt mikilvægasta hlutverk háskólans í breyttu samfélagi dagsins.

Fær vísindakona.

Árið 2023 var Ingibjörg tilnefnd sem heiðursvísindakona Landspítalans. Verðskulduð nafnbót og viðurkenning eftir áralanga vinnu með mörgu af færasta rannsóknarfólki heims, þvert á háskóla. Hún er einn helsti sérfræðingur innan næringar ungbarna og næringar á meðgöngu og hefur tekið þátt í vinnu að norrænum ráðleggingum um mataræði. Hún er því óhrædd við að vera leiðandi rödd í vægast samt stormasömu umhverfi. Ingibjörg veitir ungu vísindafólki möguleika, færir þeim ábyrgð, eflir færni þeirra og lyftir þeim upp á hærra stig. Hún hefur tekið þátt í því að byggja upp meistaranámsleið og doktorsnám í næringarfræði, leiðbeint ótal nemendum og stutt nemendur í vegferð þeirra innan vísindanna. Þannig hefur hún rutt veginn fyrir nemendur til þess að stíga sín fyrstu skref inn í heim vísindanna og þannig mótað framtíð HÍ sem rannsóknarháskóla.

Þekkir innri kerfi háskólans.

Ingibjörg veit hvað þarf til þess að bæta háskólann enn frekar og hefur fjallað um leiðir til þess í framboði sínu. Hún er því með skýra hugsjón um þær breytingar sem þarf að fara í og leiðtogahæfileikana til þess að ná þeim í gegn. Samfélagslegt mikilvægi háskólans er mikil og þrátt fyrir langvarandi vanfjármögnun býr HÍ að ómetanlegum mannauði. Í öllu samstarfi hefur Ingibjörg lagt áherslu á skýr samskipti og góða samvinnu, lykileiginleikar í fari einstaklings sem á að reka háskólann. Það er ljóst að hún mun skapa háskólaumhverfi þar sem við fáum betri tækifæri til þess að nýta okkar hæfileika á sem bestan hátt og þannig efla háskólann Hún hefur hugsjónina sem nær að nýta þennan mikla mannauð sem við Íslendingar búum að.

Ingibjörg Gunnarsdóttir mun stíga hin réttu skref í átt að bættum Háskóla. Hún er því sá frambjóðandi sem fær mitt atkvæði.

Höfundur er nemandi við Háskóla Íslands




Skoðun

Skoðun

Við kjósum Silju Báru í dag!

Agla Elín Davíðsdóttir,Ari Borg Helgason,Hekla Sól Hafsteinsdóttir,Margrét Bo Wan Waage Reynisdóttir,Nína Kristín Gunnarsdóttir,Ragnheiður Dóra H. Jónsdóttir skrifar

Skoðun

Kjöt og krabba­mein

Hulda María Einarsdóttir,Jórunn Atladóttir,Sigurdís Haraldsdóttir skrifar

Sjá meira


×