Innlent

Leggur niður stjórn Trygginga­stofnunar og sparar milljón á mánuði

Árni Sæberg skrifar
Inga Sæland er félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar. Áætlað er að með því geti tíu til tólf milljónir króna sparast á ári.

Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að stjórnir sem heyri beint undir ráðherra þyki almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og bent hafi verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar á stofnunum sem heyra undir yfirstjórn ráðherra hafi reglulega komið fram athugasemdir við skipan slíkra stjórna þar sem stjórnskipuleg staða þeirra sé oft ekki nógu skýr.

Tryggingastofnunin hafi haft sérstaka stjórn frá árinu 2004. Skipun seinustu stjórnar hafi runnið út í nóvember síðastliðnum, eða við lok síðasta kjörtímabils. Millibilsástand hafi þó ekki skapast þar sem yfirstjórnarhlutverk ráðherra og ráðuneytis hans sé skýrt lögum samkvæmt.

Stjórn Tryggingastofnunar verði formlega lögð niður með lagabreytingu á Alþingi nú í vor. Þetta gefi færi á því að hagræða í rekstri Tryggingastofnunar og gæti hagræðingin numið á bilinu tíu til tólf milljónum króna á ársgrundvelli. Lagabreytingin verði hluti af frumvarpi ráðherra til breytingar á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×