Lífið

Ari Eld­járn er bæjarlistamaður Sel­tjarnar­nes

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ari tók við verðlaununum ásamt fjölskyldunni á Bókasafni Seltjarnarness.
Ari tók við verðlaununum ásamt fjölskyldunni á Bókasafni Seltjarnarness. Seltjarnarnesbær

Ari Eldjárn var útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2025 við hátíðlega athöfn á bókasafni Seltjarnarness í gær.

Þetta er í 29. sinn sem bæjarlistamaður er útnefndur en menningarnefnd Seltjarnarness sér um val á bæjarlistamanni að því er fram kemur í tilkynningu á vef Seltjarnarnesbæjar. Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar bæjarins veitti Ara viðurkenningarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð milljón króna sem fylgir nafnbótinni.

Fram kemur í tilkynningunni að Ari hafi haft uppistand að aðalatvinnu frá árinu 2009 en hann hefur komið fram með uppistandshópnum Mið-Íslandi á meira en 400 sýningum og skrifað handrit að fjórum Áramótaskaupum. Seinasta áratuginn hefur Ari sýnt yfir hundrað sýningar af Áramótaskopinu um allt land, yfir hundrað sýningar á ensku á Fringe-hátíðinni í Edinborg, Melbourne International Comedy Festival og í Soho Theatre í Lundúnum.

Ari hefur verið búsettur á Seltjarnarnesi síðan 2018, á tvær dætur sem ganga í Mýrarhúsaskóla og er að því er fram kemur í tilkynningunni stoltur Gróttupabbi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.